Feykir


Feykir - 26.06.1991, Side 6

Feykir - 26.06.1991, Side 6
6 FEYKIR 24/1991 Guðmundur Halldórsson frá Bergsstöðum Minningarorð Það er stutt síðan að ég átti símtal við Guðmund frá Bergs- stöðum. Tal okkar fjallaði um sameiginlegan vin okkar, sem hafði átt í erfiðum og snöggum veikindum. Kynni okkar Guðmundar eru gömul. í fyrstu mynduðust þau fyrir atbeina Magnúsar á Frostastöðum og Jóhanns Sal- bergs Guðmundssonar^ sýslu- manns Skagfirðinga. Eg var nýlega tekinn við núverandi starfi mínu sem framkvæmda- stjóri Fjórðungssambands Norð- lendinga. Eins og gengur þarf í slíku starfi að bera hönd fyrir höfuð sér. Til liðs við mig kom Guðmundur Halldórsson frá Bergsstöðum, sem þá var ritstjóri Einherja. Hann birti í blaðinu viðtal við mig, þar sem ég gat borið af mér sakir og skýrt stöðu mála í réttu Ijósi. Saman fór á þessum tíma, að með skipulögðum hætti var vegið að rótum samnorðlensks samstarfs af ólíklegustu öHum. Þetta varð til þess að þjappa mönnum saman um það norðlenska samstarf, sem var fyrir hjá Fjórðungssambandi Norðlendinga. Menn úr öllum stjórnmálaflokkum gengu til liðs við málstað sambandsins. Einn þeirra var Guðmundur frá Bergsstöðum, sem auk margra hlýddi ekki kalli foringjans. Guðmundur Halldórsson var sérstæður persónuleiki. Ættjarðar- tryggð hans og trúnaður við hið upprunalega, rætur ómengaðar sveitamenningar og fyrirlitning á peningjahyggju mótaði mjög skáldskap hans og lífsviðhorf allt. Þetta var rauði þráðurinn hjá þeirn, sem nauðugir lcnda á mölinni og voru sveitamenn á sálinni. Guðmundur var í hópi þeirra vinstrimanna í Framsóknar- flokknum, sem fann sig ekki eftir að formaðurinn hafði vikið nafna sínum og órólegu deildinni á dyr. Svo fór um Guðmund og ntargan að verða vegalaus í pólitík. Honum féll allur ketill í eld, þegar þingmaður flokksins, sem var á vinstribrúnni, gekk i lið um virkjun Blöndu. Guðmundur frá Bergsstöðum var húmanískur sveitamaður, með rætur í menningu þeirrar fósturjarðar, sem ól hann upp til manndómsára. Hann leitaði vestur yfir fjallið, til upprunans, eins oft og hann átti þess kost. Litla sumarhúsið var honum unaðsreitur. Guðntundur átti stranga lífsbaráttu. Hann átti við mikil veikindi að stríða. Lífshlaupið skekkti lífsmynd hans og breytti því lífshlutverki, sem hann hefði helst kosið sér. Þrátt fyrir þetta liggur eftir hann athygliverður bókmenntaskerfur. Skerfur til þjóðlífssögu. um þann tíma þegar unga kynslóðin yfirgaf óðal feðra sinna og leitaði lukkunar í þéttbýlinu. Þetta er saga væntinga og brostinna vona, allt frá stríðsárunum til samtimans, þegar lönd eru lögð undir vatn til að þjóna gróðahagsmunum útlendinga. Menn geta spurt hvaðerraunsæi og livað er rómantík eða hyllingar frá liðnum tíma. Boðskapur Guðmundar frá Bergsstöðum átti hljómgrunn. Aðvörun þegar ættjörðin á í hlut. Fáir höfundar hafa gert þessum tíma betri skil, en Guðmundur skáld frá Bergs- stöðum. I þessunt hópi ereinnig góðvinur og skáldbróðú' Guðmund- ar. Indriði Guðmundur, skáld og ritstjóri frá Gilhaga. Þetta eru máské síðustu „sveitamennimir” í íslenskum bókmenntum, sem tengt hafa tímana saman og hafa varpað ljósi á mestu fráhvarfs- tíma þjóðfélagshátta á íslandi, allt til vorra tíma. Svo fór um okkur Guðmund að ekki lágu leiðir okkar saman varðandi Blöndu. Þrátt fyrirallt héldust kynni okkar á milli. Minningin urn Guðmund og kynni við hann eru mér veganesti. Hvað Guðmundi tókst að afreka þrátt fyrir langvarandi heilsuleysi er aðdáunarvert. Hér kom til haukur í horni. Fyrirorð Jóhanns Salbergs Guðmunds- sonar sýslumanns réðst Guð- mundur til bókavörslu við Sjúkrahús Skagfirðinga. I þessu starfi naut Guðmundur sín og þar hefur hann gengið til verka eftir því sem kraftar og heilsa leyfði til hinstu stundar. Fjölskyldu Guðmundar á Skógargötunni færi ég þakkir fyrir góð kynni. Votta eiginkonu og dóttur og vinum hans „vestan fjalls” samúð og hluttekningu mína. Askell Einarsson. Skaðsemi reykinga á börn Fréttatilkynning frá Kiwanishreyfingunni Fyrsta stigið í höfn! Jafntefli í markaleik gegn Fylki I>rátt fyrir að jafntefli og eitt stig þyki frekar rýr uppskera á heimavelli eftir að þriggja stiga kerfið var tekið upp, er vonandi að stigið sem Tindastólsmcnn kræktu í sl. föstudagskvöld dugi til að stappa stálinu í liðið og þetta sé upphafið af frekari stigasöfnun. Ekki vantaði mörkin þegar Fylkir kom í heimsókn, sex urðu þau alls. Leikurinn skiptist í tvö horn. Tindastólsmenn virkuðu kjark- lausir í fyrri hálfleiknum og gáfu gestunum alltof mikinn frið. Staðan í leikhléi var því sanngjörn, en heimamenn mættu síðan mjög ákveðnir til seinni hálfleiks og fengu þá mun fleiri færi en Fylkismenn. Skammt var liðið leiks þegar Þyrnirós kom við sögu og miðherjinn knái Örn Valdimars- son var boðinn velkominn inn í teiginn, sem hann þáði með þökkum og Stefán Vagn Stefánsson átti enga möguleika í markinu. Um miðjan hálfleikinn jafnar siðan Tindastóll. Kevin átti góða sendingu á Guðbrand sem varfelldur. Björn Björnsson skoraði af öryggi úr vítinu. Skömmu síðan náðu heimamenn góðri skyndisókn og þrátt fyrir að þeir væru aðeins þrír gegn helmingi fleiri Fylkismönnum tókst þeim að skora. Kevin gaf góða sendingu fyrir markið, Guðbrandur nikkaði boltanum til hliðar og Hólmar Astvalds- son skoraði af öruggi með skoti upp í þaknetið af stuttu færi. Rétt á eftir jafna síðan Fylkismenn. Tindastólsvörnin var sein fram eftir „hreinsun”, boltinn barst til baka inn í teiginn þar sem Örn var aftur dauðafrir og skoraði örugglega. Rétt fyrir leikhlé fullkomnaði hann síðan þrennu sína með fallegu skallamarki. Tindastólsmenn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og náðu að ógna marki Fylkis verulega. Var Guðbrandur þar í aðalhlutverki, en þessi annars markheppni leikmaður hefur ekki enn fundið netmöskvana. Um tíu mínútur voru liðnar þegar Tindastóls- menn jöfnuðu og enn kom Kevin Grimes við sögu. Hann átti góða sendingu fyrir markið og Sigurjón Sigurðsson skoraði með fljúgandi skalla alveg niður við grasrót. Eftir markið dofnaði talsvert yftr leiknum, en Tindastóll virtist samt liklegri aðilinn til að krækja í stigin þrjú. A siðustu mínútu leiksins gerðist það hinsvegar að dæmd var víta- spyrna á Tindastól. Svo heppi- lega vildi til að Kristinn Tómasson skaut yfir og heinta- menn höfðu því ástæðu til að fagna í leikslok. Ef vítið hefði ekki komið til, hefðu Tindastóls- menn mátt vera svekktir yfir að ná ekki öllum stigunum. Tindastóll varð fyrir miklu áfalli þegar Gísli Sigurðsson markvörður meiddist á æfingu i síðustu viku. Krossbönd i hné gáfu sig og gékkst Gísli undir uppskurð í fyrradag. Ljóst er að hann spilar ekki meir með Tindastóli í sumar. Stefán Vagn Stefánsson sem kom í ntarkið í stað Gísla stóð sig vel í sinni frumraun í annani deildinni. Næsti leikur Tindastóls verður nk. föstudagskvöld gegn Þrótti syðra og á þriðjudagskvöld koma Haukar í heimsókn. Umdæmisstjórn Kiwanishreyf- ingarinnar á íslandi og i Færeyjum hafa sett sér það markmið að veita málefnum bama og unglinga forgang umfram önnur verkefni. Er þetta í samræmi við langtímamarkmið alhcimshreyfingar kiwanismanna, sem leggja sérstaka áherslu á verndun bama frá fæðingu til fimm ára aldurs. Til að ná þessum markmiðum mun kiwanis styðja við félög, samtök og stofnanir sem vinna að málefninu. Unnið verði að almennri fræðslu um réttinda- mál og félagslega stöðu barna, og skyldur foreldra og uppalenda gagnvart þeim. Stuðlað verði að siðferðilegri vakningu gegn ofbeldi og illri meðferð á börnum. Atak verði gert til varnar slysum á ungbörnum í heimahúsum. Að þessu sinni leggur kiwanis- hreyfingin sérstaka áherslu á skaðsemi reykinga á börn í móðurkviði og hættu óbeinna reykinga á börn. Óbeinar reykingar kallast það þegar börn og aðrir anda að sér reyk frá fólki sem er að reykja. Reykur frá brennandi sígarettu inniheldur tvöfalt meira magn nikótíns en það sem reykinga- maðurinn andarað sér.ogfimm sinnurn meira af kolsýringi. Þetta getur valdið ungbörnum öndunarcrfiðleikum. Óbeinar reykingar geta valdið ungbörnum skaða og þau börn sem eru óvarin fyrir reyknum anda honum að sér. Vindlinga- reykur inniheldur næstum 4000 efni. M.a. ammoníak, bensín, formaldehýð ( ertir húð, augu og öndunarfæri) og blásýru. auk kolsýringsins sem áður er getið. Rannsóknir sína að börnum sem anda að sér reyk er hættara við kvefi, eyrnabólgu, kverkabólgu og hálseitlabólgu. Einnig getur það valdið erfiðleikum í lungna- starfsemi og jafnvel dregið úr vexti lungna hjá ungbörnum. Börn læra af foreldrum sínum. Börn foreldra semreykja eru líklegri til að verða reykingafólk en aðrir. Verðandi foreldrar í hópi reykingafólks ættu þvi að reyna að hætta að reykja, og eftir fæðingu bamsins forða því frá óbeinum reykingum. Reykingar og þungun Reykingar verðandi mæðra eru hættulegar. Þegar þunguð kona reykir, andar hún að sér nikótíni og kolsýringi. Nikótínið dregur úr magni þeiixar næringar sem berst til fóstursins. Reykingar verðandi mæðra sem reykja mjög rnikið auka mjög hættu á: fósturláti 170%, fæðingu fyrir timann 300%, andvana fæðingum 55%, fæðingar- göllum (t.d. klofinni vör og klofnum gómi) ungbarnadauða (sérstaklega fyrstu 28 dagana eftir fæðingu) og öndunarerfið- leikum (astma) hjá komabörnum. Því fyrr sem verðandi móðir hættir að reykja því betra. Ef hún hættir strax og hún uppgötvar að hún er þunguð, dregur hún úr hættunni á að bamið verði fyrir einhverjum af þeim skakkaföllum sem áður er getið. Ef hún hættir þegar hún er komin fjóra mánuði á leið, eru líkurnar á fyrirbura eða undir- málsbarni þær sömu og hjá konum sem reykja ekki. Ef hún hættir einhvern tíma áður en barnið fæðist eykur hún likurnar á að fæða heilbrigt bam. (hþ tók saman) + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa Árna Gunnarssonar frá Þverárdal, Freyjugötu 19, Sauöárkróki Guö blessi ykkur öll Margrét Jóhannesdóttir, Ingibjörg Árnadóttir, Grétar Jónsson, ísgeröur Árnadóttir, Bjarni Sigurösson, Elsa Hallbjörg Árnadóttir, Björn Jónsson og barnabörn

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.