Feykir - 16.10.1991, Side 3
36/1991 FEYKIR 3
Gunnlaug Ingvarsdóttir í hópi unglinga sem sækja f élagsmiðstöðina.
Kýr skotin á færi við Blönduós
Eftir árangurslausan eltingarleik við
hana í nærri sólarhring
Félagsmiðstöð
unglinga opnuð
á Króknum
Mikill eltingaleikur átti sér
stað á Blönduósi og grennd
fyrir helgina þegar færa átti
fimm vetra kú til slátrunar.
Flótti kýrinnar stóð hátt í
sólarhring, en grípa varð til
þess ráðs að skjóta hana á
færi þar sem hún leitaði
skjóls undir barði við bæ í
nágrenni Blönduóss.
Það var laust upp úr
hádegi á fimmtudag sem
Valgarður Hilmarsson bóndi
á Fremsta-Gili mætti í
sláturhús með þrjá nautgripi.
Beljan fyrrnefnda var ekkert
á því að fara í réttina og
stökk í fangið á húsbónda sínum
þar sem hann varnaði henni
útgöngu. Kýrin tók á rás
niður að sjó, en komist var
fyrir hana skammt frá
Blöndubrú. Rásaði hún þá til
baka á sláturhússplanið og
stökk þaðan inn á tvær
nærliggjandi lóðir. Ekki
tókst að króa hana af í
girðingu og geystist hún í
gegnum bæinn upp í sveit.
Þarf vart að taka fram að
meðan á eltingaleiknum stóð
vatð ..messufall” hjá slátur-
húsfólkinu.
Sundsprettur hjá
Breiðavaði
Þar sem sýnt þótti að kýrin
væri orðin snarvitlaus var
skytta kölluð á vettvang.
Kusu tókst þó að sleppa
undan byssumanninum, þar
sem hún rásaði meðfram
vötnum við Skagastrandar-
veg og tók sér meðal annars
sundsprett í vatninu hjá
Breiðavaði. Þaðan lá leiðin
yfir Langadalsveg og niður
að Blöndu. Héldu menn að
þaðan mundi hún rata heim
að Fremsta-Gili, en hún var
ekki á þeim buxunum heldur
tók strikið upp á við að nýju,
þaut yfir girðingu og skurð
og upp í fjall þar sem stóð var
á beit. Langt varnú liðið dags
og var ákveðið að láta kusu
eiga sig til morguns ef ske
kynni að henni rynni móður-
inn.
Æddi yfir allt
sem fyrir varö
Það var síðan á tólfta
tímanum um kvöldið þegar
Valdimar Guðmannsson bóndi
í Bakkakoti var að koma af
fundi niðri á Blönduósi, að
hann hittir óvenjulegan veg-
faranda niður við sláturhús.
Kom Valdimar boðum til
Valgarðs sem fékk þrjá
sveitunga sína til liðs við sig.
Var kýrin þá komin upp að
Blönduósgirðingu en eftir
langan eltingaleik hvarf
kýrin út í myrkrið. Næst var
komist að handsama kusu
þegar einum hlaupagikkn-
um tókst að ná taki á hala
hennar.
Strax í býtið var hafin leit.
Við nokkra eftirgrennslan
fannst skepnan undir moldar-
barði við bæinn Blöndu-
bakka á Neðri-byggð skammt
frá Blönduósi. Ein besta
skytta héraðsins Guðráður
Jóhannsson á Beinakeldu
hafði verið kallaður til og
náði hann að koma skoti á
kúna af nokkru færi. Varð
hún þá loksins að játa sig
sigraða og hélt eftir tæpan
sólarhrings flótta á vit feðra
sinna.
„Eg hefði aldrei trúað því
að óreyndu að skepnan gæti
orðið svona vitlaust, þó hún
ætti vanda til að vera
stressuð. Það var eins og hún
sæi ekki neitt og æddi yfir allt
sem fyrir varð”, sagði
Valgarður á Frems'ta-Gili.
Félagsmiðstöð fyrir unglinga
hefur verið hleypt af stokkun-
um á Sauðárkróki og er hún til
húsa í Grettisbæli félagsað-
stöðu gagnfræðaskólans. Um-
sjónarmaður var ráðinn í
sumar Gunnlaug Ingvarsdóttir
26 ára Reykvíkingur sem
reynslu hefur af starfrækslu
tveggja félagsmiðstöðva í
borginni. Hún er lærður
tómstundaleiðbeinandi frá lýð-
háskólanum í Gautaborg í
Svíþjóð.
Gunnlaug kom til starfa 1.
september og hóf þá undir-
búning starfsins, svo sem að
viða að sér leiktækjum og
ýmislegs annars sem til
starfseminnar þarf. Félags-
miðstöðin er opin tvo tíma
fyrir kvöldmat og tvo og
hálfan tíma á kvöldin frá
mánudegi til fimmtudags-
kvölds. Opnunartímanum er
skipt milli 6.-1 0. bekkjar
grunnskólans, yfirleitt ekki
nema einn bekkur í einu og
síðan er diskótek fyrir alla
bekki annað hvert föstudags-
kvöld.
„Mér finnst þetta hafa
farið ágætlega af stað.
Krakkarnir hafa sýnt þessu
áhuga og mætt ágætlega. Að
vísu er stór hópur í íþróttum
og kemur því minna hingað,
en ég er ánægð með
íþróttaáhugann hérna ogþað
kom mér á óvart hvað hann
er mikill. Opnunartíminn
eins og hann er núna og
skipting milli bekkja er ekki
endanleg og gæti breyst. Það
tekur sinn tíma að koma
þessu af stað, bæði fyrir mig
að átta mig almennilega á
hlutunum og eins er þetta
nýtt fyrir krakkana”, sagði
Gunnlaug.
Gunnlaug segir að varla
verði möguleiki á klúbbstarf-
semi í félagsmiðstöðinni í
vetur. Það stafi af fæð
starfsfólks, hún geti ekki
bæði annast leiðsögn í
klúbbunum og gæslu sam-
tímis. Nauðsynlegt verði að
fá karlmann til aðstoðar við
gæslu á föstudagskvöldum
þegar diskótekin eru haldin.
Ekkert hafi borið á því að
krakkar hafi áfengi um hönd
í félagsmiðstöðinni, enda
hafi þeim verið gerð grein
fyrir að það þýddi brott-
rekstur. Hinsvegar hafi það
sýnt sig í Reykjavík á
föstudagskvöldum að þannig
stemmning geti myndast að
nauðsynlegt sé að leita á
unglingum, og þá sé ekki
hægt að bjóða strákunum
upp á að kvenmaður annist
þá leit.
Auglýsing í jafn
víðlesnu blaöi
borgar sig
JÓLAKORT
Líknarfélög, söfnuðir, skólar,
íþróttafélög o.fl. sem eru í
fjáröflunarhugleiðingum
Nú er rétti tíminn til að láta
prenta jólakortin
Litprentun eftir Ijósmyndum
og teikningum.
Leitið upplýsinga tímanlega
AÐALGÖTU 2 - SÍMI 95-35711
SAUÐÁRKRÓKI