Feykir - 20.11.1991, Síða 4
4 FEYKIR 41/1991
Heimsókn í
Húnaþing
Ӓ tilefni fundar Sambands
íslenskra sveitarfélaga í Húna-
vallaskóla í Torfalækjarhreppi
23. ágúst sl., voru sveitar-
stjórnir þéttbýlisstaða Húna-
þings heimsóttar. Rætt var við
heimamenn um málefni byggðar-
lagsins, skoðuð helstu mann-
virki og fræðst um fram-
kvæmdir sem yfir stóðu eða
fyrirhugaðar voru. Hvarvetna
hlutu komumenn hinar bestu
móttökur”.
Þannig er upphaf skemmtilegrar
greinar Unnars Stefánssonar
ristjóra Sveitarstjórnarmála í
nýjasta hefti ritsins. Þar sem
Sveitarstjórnarmál eru ekki
útbreidd utan raða sveitar-
stjórnarmanna, þótti tilhlýði-
legt að Feykir miðlaði henni
til fleiri Húnvetninga, enda
veitti Unnar góðfúslegt leyfi
sitt til slíks.
Við höfnina á Skagaströnd frá vinstri talið: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri Skagaströnd,
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í Bolungarvík, Herdís Á. Eggertsdóttir kona hans, Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri á Dalvík, Valgarður Hilmarsson oddviti Engihlíðarhrepps, Elín
Þormóðsdóttir og Þórður Skúlason maður hennar, hjónin Anna Johnsen og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, Ingvar Viktorsson bæjarfulltrúi Hafnarfirði, María Ólafsdóttir Reykjavík,
Bryndís Brynjólfsdóttir bæjarfulltrúi á Selfossi, Ingvar Ingvarsson bæjarfulltrúi Akranesi og
Ljósmyndir Unnar Stefánsson.
Gunnhildur Hannesdóttir kona hans.
Hér eiga þeir tal saman Torfl Jónsson á Torfalæk, Valgarður
Hilmarsson á Fremstagili og Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á
Blönduósi.
Síðdegis fimmtudaginn 22.
ágúst kom stjómin á Hvamms-
tanga, en áður hafði Þórður
Skúlason framkvæmdastjóri
sambandsins og fyrrverandi
sveitarstjóri á Hvammstanga
kynnt byggðarlagið og sveitar-
FEYKIR ER EKKI
EINUNGIS FRÉTTABLAÐ
...HELDUR STERKUR
AUGLÝSINGAMIÐILL!
Öll blöð þurfa auglýsingar til að stonda undir útgáfukostnaði.
•Með auglýsingu í Feyki gefst þér tækifæri til að
auglýsa vöru og þjónustu á Norðvesturlandi öllu,
þar sem blaðið hefur mikla útbreiðslu.
Feykir fer inn ó flest heimili á Sauðárkróki,
stærstu vinnustaðina og velflestir bæjarbúar lesa blaðið.
í stærstu hreppum Skagafjarðar er Feykir keyptur
á nær hverju heimili.
Feykir hefur góða útbreiðslu í Húnaþingi.
Þó eru ótaldir á fjórða hundrað óskrifendur blaðsins í Reykjavík
og víða um land
Útbreiðsla Feykis er styrkur Noðurlands vestra
VERNDUM ATVINNUTÆKIFÆRI - VERNDUM BYGGÐ
VERSLUM í HEIMABYGGÐ
brag í Vestur-Húnavatns-
sýslu og farið með nokkrar
vísur um Húnvetninga. A
Hvammstanga tóku hrepps-
nefndarmenn og makar
þeirra á móti gestunum svo
og Bjarni Þór Einarsson
sveitarstjóri, sem síðan fór
með komumenn í skoðunar-
ferð um staðinn.
Fyrst var ekið að íþrótta-
og útivistarsvæði í Kirkju-
hvammi, þar sem útbúið
hefur verið tjaldstæði með
snyrtiaðstöðu. Litið var á
leikskóla í smíðum, nýlega
heilsugæslustöð, sundlaugog
færanlega malbikunarstöð,
sem þéttbýlisstaðimir á Norður-
landi vestra keyptu sameigin-
lega á sínum tíma, en
fyrirtækið Króksverk hf á
Sauðárkróki á nú og rekur.
Mikið hafði verði unnið við
malbikun gatna á Hvamms-
tanga á sumrinu. Þá var
þessa dagana unnið að
dýpkun á höfninni, og átti
dýpkunarskipið sem þarvar,
að losa um 20 þúsund
rúmmetra jarðvegs upp úr
höfninni. Komið var í
saumastofuna Drífu, þar
sem 20 manns vinna, og í
fyrrum verslunarhús Sigurðar
Pálmasonar, þar sem nú er
rekin upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn og sölubúð með
heimilisiðnaðarvörur úr Vestur-
Húnavatnssýslu undir heitinu
„Gallerí Bardúsa”. Heimsókn-
inni á Hvammstanga lauk
með því að hreppsnefndin
bauð til kvöldverðar á Hótel
Vertshúsi, þar sem Bjarni
Þór sagði nánar frá söj>u og
málefnum hreppsins. I máli
hans kom fram að íbúar
Hvammstanga voru 706 hinn
1. desember 1990.
Viö Reykjabraut
Fyrir. hádegi 23. ágúst var
haldið- að stjómstöð Hitaveitu
Blönduóss á bæjarhlaðinu á
Reykjum, sem er rétt við
skólahúsið, en þaðan hefur
heitt vatn verið leitt út
borholum 14 km leið til
Blönduóss frá árinu 1977.
Gestur Þórarinsson veitu-
stjóri og bæjarverkstjóri á
Blönduósi skýrði fyrir gestum
sjálfvirkan stjórnbúnað sem
þar er á dælingu vatns til
Blönduóss. Gestur skýrði
m.a. frá því að mikill
ávinningur hefði orðið af því
að breyta úr hemlakerfi við
sölu vatns yfir í vatnssölu
samkvæmt rennslismæli. Að
loknu fyrsta árinu með hinu
nýja sölufyrirkomulagi væri
ljóst að sparast hefði mikið
vatn og rafmagn svo og
viðhald á dælum.
Á Blönduósi
Á Blönduósi sagði bæjar-
stjórinn, Ofeigur Gestsson,
frá starfsemi bæjarins. M.a.
var ekið að brimvarnargarð-
inum sem verið hafði til
umræðu sl. vor, og skýrði
Ofeigur sjónarmið heima-
manna varðandi hafnarmálin.
Fram kom í máli hans að
fyrsta opinbera fjárveitingin
til hafnarframkvæmda á
íslandi hefði verið 5000
króna framlag til bátabryggju á
Blönduósi á árinu 1894.
Skoðað var heimilisiðnaðar-
safn, sem Samband austur-
húnvetnskra kvenna rekur
með stuðningi nokkurra
sveitarfélaga í sýslunni. Elísabet
Sigurðardóttir forstöðukona