Feykir - 20.11.1991, Qupperneq 6
6 FEYKIR 41/1991
hagyröingaþáttur 108
Heilir og sælir lesendur
góðir. Harkalega hefur nú
blásið víða um land og að
minnsta kosti hér norðan-
lands verið talsvert vetrarríki.
Svo mun einnig hafa verið
þegar Þorsteinn Asgrímsson
á Varmalandi í Skagafirði
orti eftirfarandi vísur.
Vindur á þakinu vælir,
völlurinn hrakinn og snjáður.
Hitinn er mínus á mælir,
meira en tuttugu gráður.
Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd er afkastamikill
í yrkingunum. Hann er
höfundur að næstu vísu og
má með sanni segja að sínum
augum lítur hver á silfrið.
Þó að íslensk yfirvöld
óráðssíugerla
ali til að auka gjöld
er hann Davíð — perla.
Önnur vísa kemur hér eftir
Rúnar.
Ýmsir syðra segja það,
saumaðir í drambsins flík,
að landsbyggðin sé orðin að
ómaga á Reykjavík.
Rúnar hefur eins og fleiri
fylgst með þeirri vandasömu
fjárlagagerð sem nú hefur
staðið yfir á hinu háa
Alþingi. Hann yrkir svo.
Fjárlagagerðin, já harðsótt er
hún,
því hallinn á ríkinu ervandi.
Það væri því forsjálni af
Friðriki Dún
að flytja sem skjótast úr
landi.
Fleiri alþingismenn hafa
verið í sviðsljósinu nú að
undanförnu. Jón Baldvin
hefur hlotið mikla athygli
eftir samningsgerðina um
EES og þá ekki síður eftir
viðskiptaförina til Dalvíkur
með frúna og hattinn. Heyrst
hefur að eftirfarandi vísa hafi
verið á sveimi á Alþingi nú að
undanförnu.
Ognar stuð er á mér núna
og yfirborðið glæst.
Eg seldi hattinn og síðan frúna,
nú sel ég landið næst.
Alltaf er gaman að rifja
upp vísur eftir Jón S.
Bergmann. Hann yrkir svo.
Meðan kærleikskrafturinn
klýfur strauminn þungan,
vörðinn haldi um heiður þinn
hreina og hvassa tungan.
Jón mun hafa ort eftir-
farandi vísur, þegar hann var
fimmtugur.
Að ég græddi gull og völd
getur enginn sannað.
Hef ég þó í hálfa öld
heiminn víða kannað.
Aflinn minn var ekki stór,
oft mér lá við strandi.
Eftir hálfa öld ég fór
öngulsár að landi.
Þó að lækki bjarma brún
og boðar hrynji um kjölinn,
dreg ég seglin hæst við hún
og held um stjórnarvölinn.
Hugur hvass á hættustund
hleypir krafti í limi.
Þá er alltaf eitthvert sund
opið þó hann brimi.
Ekki kann ég að segja
lesendum hver yrkir svo.
Þar er fögur fjallasýn,
fossar, dalir, elfur.
Yst við voga eyjan mín
í aftanloga skelfur.
Ragnar Agústsson frá
Svalbarði er höfundur að
næstu vísu. Eigi veit ég um
tildrög hennar, en verið gæti
að einhver af vísum Ragnars
hafi ranglega verið eignuð
öðrum.
Heimaganginn horfðu á
hoppa í túni mínu.
Borgfirðingar brugðu þá
brennimarki sínu.
Vissulega er nú full þörf á
því fyrir okkur landsbyggðar-
fólk að fleiri gerðu sér ljósar
þær staðreyndir sem fram
koma í eftirfarandi vísu.
Ekki hef ég orð á því,
en ýmsa kann að gruna
að margur sæki svölun í
sveitamenninguna.
Eins og margir vita er
Hermann Jóhannesson frá
Kleifum snjall hagyrðingur.
Þegar Páll Skúlason lögfræð-
ingur var að taka sitt
embættispróf, er sagt að
Hermann hafi hughreyst
hann með eftirfarandi vísum.
Ef menn brjóta af sér mjög
eða tapa máli.
Fara þeir að fá sér lög-
fræðiráð hjá Páli.
Ekki kemur aðeins hann
upp um þá sem ljúga
heldur útbýr óðar sann-
anir sem menn trúa.
Einn hann verður allra synd-
ugra sakamála-
flutningsbrjóta fyrirmynd.
Fyrir því ég skála.
Einn með snjöllustu hag-
yrðingum þessarar þjóðar,
Hallgrímur Jónasson kennari
frá Fremri-Kotum er nú ný-
látinn, vantaði aðeins 5 daga
til að hann næði því að verða
97 ára gamall. Langar mig til
að enda þennan þátt með
vísu eftir Hallgrím sem hann
mun hafa ort er hann varð 86
ára.
Oft um kæra ættargrund
áður var í förum.
Bíð ég nú við síðsta sund,
senn mun lagt úr vörum.
Verið þið þar með sæl að
sinni.
Guðmundur Valtýsson
Sími. 95-27154
Sonja Sif íþrótta-
maður Neista
Sonja Sif Jóhannsdóttir var
valinu íþrótta- og frjálsáþrótta-
maður Neista 1991 á uppskeru-
hátíð félagsins sem haldin var
í Höfðaborg á Hofsósi sl.
föstudagskvöld. Fjölmennt var
á hátíðinni, um 150 manns
mættu, enda höfðu ungmenna-
félagar lagt mikla vinnu í
undirbúning skemmtiatriða
og eru alkunnir fyrir frumleg-
heit á því sviði.
Starfsemi Neista varblóm-
leg á árinu. Iþróttaiðkun
félaganna lýtur mest að
knattspyrnu og frjálsum
íþróttum, en kvennasveit
UMSS er að mestu borin
uppi af Neistakonum.
Jón Bjarnason var valinn
bestur í yngri flokkum
félagsins í knattspyrnu. í
20%
AFSLÁTTURAF
ÖLLUM VÖRUM FYRIR
DÖMUR OG HERRA.
SICÓR Á
TILBOÐI
KR 990, 1200, 1500, 1900,
2500, 2900, 3700, 3990
M.A. GÖTUSKÓR,
SPARISKÓR, KULDASKÓR
SPARTA
FATAVERSLUN/SKÓBÚÐ
Stelpurnar stóðu sig vel
meistaraflokki var Sigmundur
Jóhannesson valinn besti
leikmaðurinn og Stefán Stein-
þórsson sá efnilegasti. Oddur
Jónsson fékk viðurkenningu
fyrir að vera markakóngur
liðsins á síðasta keppnis-
tímabili og Jón Einar
Kjartansson var heiðraður
fyrir vel unnin störf í þágu
félagsins.
Unglingaflokkur stúlkna nja
Tindastóli stóð sig mjög vel í
fyrsta fjölliðamóti vetrarins
sem fram fór á Króknum um
helgina. Sigraði alla sína leiki
og er því efst í a-riðli
íslandsmótsins. Sjöunda og
10. flokki gekk ekki eins vel en
báðir eru einnig í a- riðli.
Úrslit í leikjum stúlknanna
urðu þessi:
UMFT-ÍBK 54:45
UMFT-Haukar 44:26
UMFT-KR 45:24
Nú er lokið Butler-
tvímenningskeppni félagsins.
Atján pör tóku þátt og urðu
efstu pör þessi:
1. Olafur Jónsson/Steinar
Jónsson 125 stig.
2. Kristján Blöndal/Gunnar
Þórðarson 109 stig.
Grindavík og urðu úrslit í
leikjum drengjanna þessi:
UMFT-UMFG 21:29
UMFT-Haukar 22:29
UMFT-UMFN 25:24
UMFT-ÍBK 26:52
UMFT-KR 33:34
Tíundi flokkurinn keppti í
Hafnarfirði. Vitað er að
Tindastóll sigraði Grindavík
og IR en tapaði fyrir
Njarðvík, Keflavík og Val.
Úrslit hafa ekki borist
blaðinu.
3. Sigurgeir Angantýsson/
Gunnar Pétursson 102 stig.
4. Jón Ö. Berndsen/Einar
Svansson 101 stig.
Ekkert verður spilaðnæsta
mánudagskvöld en mánu-
daginn 2. desember verður
spiluð rúbertukeppni.
Sjöundi flokkur keppti í
Frá Bridgefélagi Sauðárkróks
í HÁTÚNI OPIÐ FRÁ KL. 1-17
LAUGARDAG OG SUNNUDAG
8 jafnar vaxtalausar greiðslur af öllum
verðmeiri húsgögnum til jóla
hAtipk
...búðin þín