Feykir - 20.11.1991, Side 8
Oháö fréttablaö á Noröurlandi vestra
20. nóvember 1991, 41. tölublað 11. árgangur
STERKUR AUGLYSINGAMIÐILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga frá kl. 9.15 -16.00
M Landsbanki
Sími 35353 i f A Islands Banki allra landsmanna
Þrátt fyrir að ryðgaða bárujárnið geri gamla hótelið hálf óhrjálegt, en víst er að húsið verður
hið fallegasta eftir endurbætur.
„Eins og þurfi verkfall til að koma
mönnum að samningaborðinu"
segir formaður verkalýðsfélags Austur-Húnvetninga
Gamla kaupfélagið og
hótelið gert upp
„Okkur finnst þetta aðgerðar-
leysi gjörsamlega óþolandi.
Við höfum verið með lausa
samninga í tvo mánuði og
ekkert gerist. Það Iítur helst út
fyrir að þurfi að koma til
verkfalla svo að menn komi
sér að samningaborðinu”,
sagði Valdimar Guðmannsson
formaður Veikalýðsfélags Austur-
Húnvetninga sem hefur veitt
stjórn og trúnaðarmannaráði
heimild til verkfallsboðunar.
Félagsfundurinn sem var
haldinn sl. fimmtudagskvöld
var vel sóttur, sá fjölmenn-
asti frá því félagið var
endurvakið fyrir nokkrum
árum. „Það virðist vera mikil
ákveðni í fólki núna og við
vorum þarna að ítreka
samþykkt sem gerð var 6.
september sl. Það er greini-
lega kurr í fólki í verkalýðs-
félögunum víða um land og
við viljum gera okkar til að
eitthvað fari að gerast”.
Valdimar sagði að það
væri grundvallarkrafa félags-
manna að ef semja ætti á
þjóðarsáttagrunni, þá þyrftu
lægstu launin að hækka og
launamunur að minnka.
„Við semjum ekki upp á ekki
neitt, erum samt ekki með
neinar sérkröfur á þessu
svæði, verðum sjálfsagt í
einhverju samfloti hvenær
sem það verður, því manni
sýnist að vinnuveitendur ætli
að humma af sér samninga-
gerð fram yfir áramót”.
Mikill uppgangur er nú í
endurnýjun gamalla húsa á
Hofsósi. Eins og kunnugt er
voru í sumar hafnar endur-
bætur á „gamla pakkhúsinu”
sem kallað er, norsku bjálka-
húsi frá 18. öld sem talið er
elst sinnar tegundar hér á
landi. Akvörðun um varð-
veislu þessa húss á sinn þátt í
því að nú er ákveðið að gamla
hótelið og kaupfélagshúsið í
Kvosinni verði líka gerð upp.
Jafnvel verður byrjað að ditta
að hótelinu á næstu dögum.
Valgeir Þorvaldsson smiður
og bóndi á Vatni var
aðalhvatamaðurinn að endur-
gerð bjálkahússins, sem er á
minjaskrá og hefur Þjóð-
minjasafnið kostað verkið.
Valgeir mun einnig hafa
umsjón með endurnýjun
húsanna tveggja, en það er
frændi Valgeirs burtfluttur
Skagfirðingur og athafna-
maður í Reykjavík sem á
stóran þátt í endurgerð hinna
húsanna, sérstaklega hótels-
ins sem hann keypti og ætlar
að láta endurgera. Um
kaupfélagshúsið hafa bundist
samtökum heimaaðilar og
nokkrir burtfluttir Skagfirð-
ingar.
„Okkur fannst vel við hæfi
að flikka svolítið upp á þessi
hús og staðinn í leiðinni. Þau
eiga sér merka sögu þessi
hús, og mál eru að þróast til
betri vegar á Hofsósi þegar
þangað eru farin að koma
bæði vor- og haustskip”,
sagði Sigmundur Frans Krist-
jánsson frá Róðhóli bygg-
ingavöruinnflytjandi og at-
hafnamaður. Skip kom með
timbur í gamla bjálkahúsið á
Hofsós í vor, og til stóð að
annað timburskip kæmi
þangað í haust, en það varð
frá að hverfa vegna veðurs.
Sigmundur ætlar sér að
gera smekklegar íverur í
hótelinu og taka þar á móti
vinum og kunningjum. Uppi
eru hugmyndir um að í
kaupfélagshúsinu verði sett
upp sýnishorn af verslun
eins og hún gerðist fyrr á
öldinni.
Mikill músagangur
Stundum er talað um mikla
músavetur og svo virðist
sem einn slíkur sé nú að byrja.
I haust hefur víða á
landinu orðið vart mikils
fjölda hagamúsa, sem leita
heim að hýbýlum manna. Sala
á músagildrum hefur verið
mjög mikil í haust.
Það er gömul þjóðtrú að
mikill músagangur þýði
harðan vetur, og ef til vill
freistast margir til að álykta
. svo, þegar frostakafla gerir
svo snemma á vetrinum eins
og þann í kringum síðustu
helgi, en frost var þá
sumstaðar inn til sveita um
15 stig þegar mest var.
Náttúrufræðingar telja hins-
vegar ástæður þessa mikla
músagangs nú, einstaka
veðurblíðu síðasta vetur og
gott sumar. Þetta hafi örvað
viðkomu dýranna og mun
minna verið um dauða
afkvæma en í meðalári.
feykjur
„Hljóöfráar" konur
Sagt er að litlu hafi munað
að tvær málglaðar húsmæður
úr Húnaþingi hættu við
feiðina til Glasgow á dögunum.
Þegar þeim var sagt að þotan
sem þær ættu að fljúga með
væri hljóðfrá leist þeim
ekkert á blikuna. Þær vildu
nefnilega geta talað saman á
leiðinni.
Veröur Pétur meö?
Töluverðar líkur eru á að
körfuknattleikskappinn kunni,
Pétur Guðmundsson leiki
með Tindastóli að nýju í
vetur, en hann lék með liðinu
í úrvalsdeildinni sl. vetur.
Körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls hefur gert kappanum
tilboð um að leika með gegn
ákveðinni greiðslu fyrir hvem
leik sem hann spilar og ætla
nokkur fyrirtæki í bænum að
standa straum af greiðslun-
um. Pétur tók sér frest fram í
miðja vikuna að svara
tilboðinu.
Það yrði Tindatóli mikill
styrkur að fá Pétur í sínar
raðir, sérstaklega vegna þess
að meiðsli hafa hrjáð leik-
menn úrvalsdeildarliðsins í
vetur. Þá kemur tilkoma
Péturs með að auka mjög
aðsókn að leikjum. Gárung-
arnir segja reyndar að
spennan í kringum Pétur
stafi ekki eingöngu af
hæfileikum kappans inni á
vellinum, heldur komi menn
spenntir á leikina til að sjá
hvort Pétur verði með eða
ekki, en þessi frægasti
körfuboltamaður landsins
hefur löngum átt við meiðsli
að stríða, og missti af þeim
sökum af mörgum leikjum
með Tindastóli síðasta vetur.
Veiöieöli
Veiðieðli er ákaflega ríkt í
sumum mönnum. Það fannst
að minnsta kosti húsmóður-
inni á Króknum sem var að
horfa á fræðslumynd af
Blettatígurnum í sjónvarpinu,
og sagði við manninn sinn.
Alveg eruð þið nauðalíkir,
drepið allt sem kvikt er.
Hann var heldur ekki á því
að gefa frá sér veiðivonina,
rjúpnaskyttan sem hélt til
veiða á laugardagsmorguninn
síðasta. Færið var afar slæmt
svo hann sneri við. En til
veiðar skyldi haldið og fyrst
að rjúpnafærið brást var
báturinn settur á flot í
stillunni og haldið í svartfugl.
Og þeir lágu fjörutíu út við
Eyjar þennan laugardags-
part.
GÆÐAFRAMKOLLUni
BÓKABIŒ)
BRYNJARS