Feykir - 11.12.1991, Qupperneq 3
44/1991 FEYKIR 3
„Ekki síður mikilvægt fyrir
sveitirnar að atvinnulíf styrkist
og eflist á Sauðárkróki"
segir Jón Ásmundsson framkvæmdastjóri Átaks
„Það er ekki hægt að nefna
nein ákveðin verkefni á nafn
ennþá. Við höfum unnið að
tveim til þrem mjög tímafrek-
um verkefnum sem komin eru
á lokastig í meðförum Ataks,
auk minni verkefna. Þetta
hefur verið gaman og mjög
áhugavert, en öllum má vera
ljóst að þetta stendur og fellur
með árangrinum sem maður
sér af starfmu. Átak er í raun
tilraun til að flýta þróun
atvinnumála á svæðinu”.
Ataki hf var ýtt úr vör á
liðnu vori. Jón Ásmundsson
framkvæmdastjóri verkefnisins
hóf störf í maí. Það eru 42
fyrirtæki og aðilar á Sauðár-
króki sem standa að Átaki.
„Það er ótvíræður kostur
að vinna fyrir þröngt og
afmarkað svæði. Engu að
síður lít ég á héraðið meira og
minna sem eitt atvinnusvæði.
Það er því ekkert síður
mikilvægt fyrir sveitirnar að
atvinnulíf styrkist og eflist á
Sauðárkróki”, sagði Jón
Ásmundsson framkvæmda-
stjóri í samtali við Feyki á
dögunum.
Aðilum líst vel á
staðsetningu
Auk beinna erinda sem
komið hafa inn á borð Átaks,
hefur verkefnið staðið fyrir
að auglýsa eftir fyrirtækjum
sem hugsanlega væru til sölu
eða vildu flytja starfsemisína
til Sauðárkróks. Sex aðilar
lögðu inn erindi, sum þeirra
hafa verið afskrifuð en önnur
eru í athugun. Að sögn Jóns
verður haldið áfram að
auglýsa eftir fyrirtækjum á
næstunni, en er áhugavert
fyrir fyrirtæki að flytja sig
hingað?
„Svæðið hefur marga
augljósa kosti sem snúa að
atvinnurekstri. Landfræðilega
eru þeir miklir. Samgöngur
góðar bæði til Eyjafjarðar-
svæðisins og Reykjavíkur, og
fara batnandi. Flugsam-
göngur eru einna öruggastar
á landinu. Hér er tiltölulega
ódýr hitaveita og stöðugt og
gott vinnuafl. Eg hef orðið
var við að aðilum líst vel á
staðsetningu gagnvart fram-
leiðslu í iðnaði”.
Margir lagt mikla
vinnu að mörkum
Er mikið um að fólki líti inn,
viðri hugmyndir sínar og
spjalli?
„Það er minna en ég bjóst
við, en dálítið um það samt.
Eg er sannfærður um að
neikvæð umræða um lands-
málin hefur þarna einhver
áhrif”.
Vinna að atvinnuþróun er
þannig að menn sjá oft ekki
árangur starfs síns fyrr en
eftir nokkurn tíma. Er það
ekki þreytandi?
„Maður reynir að láta það
ekki pirra sig þó sýnilegur
árangur í einstökum verkum
komi ekki í ljós á vikum og
jafnvel mánuðum. í fæstum
tilfellum eru viðfangsefnin
það augljós að séð verði fyrir
um lyktir. Og þó að afskrifa
þurfi mál, þá er það á vissan
hátt árangur. Sumum verk-
efnum tengjast fjölmargir
aðilar og verða þau þar af
leiðandi tímafrekari”.
Jón segist hafa fengið
mikinn stuðning frá stjórnar-
mönnum og aðilum Átaks.
„Þeir sem standa að þessu
hafa margir hverjir lagt
mikla vinnu að mörkum. Eg
held ég vildi ekki fást við
þessi verkefni án stuðnings
heimaaðila”, sagði Jón í
Átaki að endingu.
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS
gleöja augað!
Kaffivélar, hrœrlvélar, brauðrlstar, vöfflujárn,
strokjárn, handþeytarar, eggjaseyöar,
hraösuöukönnur, áleggshnífar, veggklukkur,
vekjaraklukkur, djúpstelklngarpottar o.m.fi.
AEG
HANDRYKSUGA:
Liliput
Verð áður 3.089 kr.
Verð nú 2.790 kr. stgr.
YAMAHA
HUÓMBORÐ • GÍTARAR
4« SA>iYO
Panasonic
SJÓNVÖRP • HUÓMTÆKI
%>
‘s&&
i7
VIDEO# UTVARPSKLUKKUR
KASSETTUTÆKI
OG MARGT FLEIRA!
©rafsjáhf fs
Sæmundargötu 1 Sauðárkról
Sauðárkróki