Feykir - 10.06.1992, Qupperneq 3
22/1992 FEYKIR 3
vegna frélta af áslandi þorsksfofnsins
„Kjarkleysi og vitleysa ef skrefið
verður ekki stigið til fulls"
segir Sveinn Ingólfsson hjá Skagsfrendingi
,,Það er auðvitað iaránlegt að
það skuli ekki vera hugað
nægjanlega að stuðningi við
þessa undirstöðugrein þjóðar-
búskaparins, t.d. ltvað rann-
sóknir og kennslu varðar.
Það er vitað mál að vitneskja
um fiskistofna hér um land er
ekki nægjanleg. A sama tíma
og við neyðumst til að draga
úr veiðum, eru fjárlög til
fiskirannsókna skert. Ogeins
er þetta í skólakerfinu. Það
vantar samræmt nám í
SAMVINNUBOKIN
•Nafnvextir 6,25% •Ársávöxtun 6,35%
Raunávöxtun Samvinnubókar áríÖ 1991 var 7,64%
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAQS SKAQFIRÐINQA
Þær Hafdís Einarsdóttir og Hera Birgisdóttir liéldu um daginn
tombólu. Létu þær ágóðann 3.105 krónur renna í sjóð Soffíu
I iansen sem berst liarðri baráttu að ná dætrum sínum tveim frá
Tvrklandi.
afhenda það fyrir jól. Þetta
nýja frystiskip er rúmiega
helmingi stærra en Örvar.
Þessa dagana er verið að
vinna að hönnunarfram-
kvæmdum vegna byggingar
sex íbúða fjölbýl ishúss á
Skagaströnd. Byggingarfélagið
Strönd er tilbúið að vinna að
byggingu þessa hús ásamt
Skagstrendingi, en Strönd
fékk úthlutað láni fyrir
byggingu þriggja félagslegra
íbúða á dögunum. ,,Eg vil
ekkert segja til urn hverjar
líkurnar séu á að við byggjum
þetta hús. Það getur farið
mikið eftir því hvaða tilboð
við fáunt í byggingu þeirra”,
sagði Sveinn Ingólfsson.
Jákvæður
púnktur í
tilverunni....
Feykir!
„Þetta gat verið verra. Það
sökk þó ekki kjarnorkukaf-
bátur á miðunum hjá okkur.
Þetta kemur illa við alla, jafnt
niður á öllurn, þó þetta bitni
kannski einna harðast á okkur
til að bvrja með. En það er
enginn uppgjafartónn í okkur
og óþarfi að barnia sér”, sagði
Sveinn Ingólfsson framkvæmda-
stjóri Skagstrendings vegna
niðurstöðu Alþjóða hafrann-
sóknarstofnunarinnar, að \egna
ástands þorskstofnsins sé full
ástæða fyrir íslendinga að
draga verulega úr veiðum
sínunt á næsta ári, eða sem
nænii 40% miðað við núverandi
veiðiheimildir.
Talið er að þessi samdráttur
i veiðum, sem fyrirséð er að
verður verulegur, þó menn
trúi því tæplega að þors-
kveiðar verði skertar uni
40%, bitni einna harðast á
útgerð eins og Skagstrendingi,
sem að auki er að kaupa nýtt
og stærra skip, leggja út í
stórkostlega fjárfestingu, þar
sem öllu þarf á að halda. Því
var Sveinn spurður að því
hvort boginn hafi verið
spenntur til hins ýtrasta og
áætlanir varðandi nýja skipið
standist við þessar nýju
fréttir um fiskstofnana.
„Við erum nú búnir að
standa í útgerð í 23 ár og
vitum að svikull er sjávar-
aflinn. Við reiknum alltaf
með að verða fyrir einhverjum
áföllum. En vitaskuld verður
þetta erfitt og slæmt”.
Nú hafið þið verið að reyna
að skaffa Hólanesi hráefni.
Verður ekki það verkefni
erfiðara þegar horfir til þessa
samdráttar?
„Það segir sig alveg sjálft
að heimiidimar dagast saman
jafnt hjá ísfisktogurunum og
frystitogurunum. Annars óttast
ég eiginlega meira að fisk-
vinnslan í landi standistekki
þennan mikla samdrátt”.
Trúir þú því að veiði-
heimildirnar verði. skertar
svona mikið, 40% í þorsk-
inum?
„Já. Gögn sem þessi nefnd
vinnur niðurstöður sínar úr
eru íslensk. Það væri óskap-
legur barnaskapur hjá okkur
ef við einbeittum okkur ekki
að því nú að byggja upp
stofninn. Kjarkleysi og vit-
leysa ef skrefið yrði ekki
stigið til fulls”, sagði Sveinn
Ingólfsson.
Sveinn segir að samkvæmt
samningi eigi nýja skipið að
alltendast í Noregi 15.janúar
nk., en jafnvel hafi komið til
tals hjá Norðmönnunum að
Hugsanlega hægt að auka
sókn í aðrar tegundir
segir Einar í Fiskiðjunni
„Það fer allt eftir því hvað
þetta verður mikil skerðing.
Mér finnst óhugsandi að hún
verði þetta mikil, en veruleg
samt. Það væri hægt að bæta
heildarmagnið upp með ýmsu
móti. Til dæmis með því að
leyfa meiri veiðar á öðrum
tegundum, t.d. ýsunni. Fyrst
að þorskinum liefur fækkað þá
ætti að vera meiri áta í sjónum
og betri vaxtarskilyrði fyrir
aðrar tegundir”, segir Einar
Svansson framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar/Skagfirðings um
niðurstöðu Alþjóða hafrann-
sóknarstofnunarinnar um 40%
samdrátt í þorskvciðum.
Einar segir að þessar
fregnir breyti í engu ál'ormum
um kaupin á Vigranum, sem
reiknað er nteð að birtist við
bryggja á Sauðárkróki með
haustinu, og þá hverfi
Skagfirðingur á braut. „Þetta
skip verður mestmegnis á
karfaveiðum. Það hefuraflað
vel og er sterkt og gott skip,
öflugur skipsskrokkur sem
endist í áratugi”.
Einar telur að auka þurfi
fiskirannsóknir til muna.
sjávarúvegsfræðum. Þar er
ekki hægt að tala urn
heilsteypt nám. Rannsóknir
og menntun og öflun meiri
þekkingar er helsta svar
okkar við þessum þrenging-
um, vonandi tímabundnu, í
sjávarútveginum”, sagði Einar
Svansson.