Feykir - 10.06.1992, Blaðsíða 5
22/1992 FEYKIR5
„Víð hjónin skemmtum okkur ekkert síður en ungmennin"
Sigurlaug Hermannsdóttir segir frá velheppnaðri æfingaferð til Danmerkur
„Ef við hefðuni vitað hvað
þetta yrði stór hópur, hefðum
við aldrei tekið að okkur
fararstjórn í ferðinni. En við
sjáum svo sannarlega ekki
eftir að hafa slegið til, því
þetta var í einu orði sagt alveg
frábær ferð. Hópurinn, sem
var mjög ólíkur, skipaður 15-
19 ára unglingum, varð eins
og ein fjölskyIda um leið.
Þetta eru alltsaman skemmti-
legir og góðir krakkar og við
hjónin skemmtum okkur alveg
dásamlega, sjálfsagt ekkert
síður en ungmenninn sem
undu sér vel við æfingar og leik
þessa daga”, sagði Sigurlaug
Herniannsdóttir á Blönduósi,
en hún var ásamt manni sínum
Hlyni Tryggvasyni fararstjóri
í ferð íslenskra ungmenna í
æfingahúðir til Danmerkur á
dögunum. Það var engu líkar
en Silla væri nýkominn úr
velheppnaðri brúðkaupsferð,
þegar blaðamaður Feykis sló
á þráðinn til hcnnar um
helgina.
Arlega skipuleggur UMFÍ
ferð fyrir frjálsíþróttafólk í
æfingabúðir. Ovenjugóð þátt-
taka var að þessu sinni, 28
ungmenni lýstu áhuga á
förinni. Þar af voru sex
Skagfirðingar, einn úr USAH,
2 frá UMSE, 3 frá HSÞ,einn
frá UNÞ, 5 frá HSK, 4 frá
HSH, 5 frá USÚ og einn frá
USVS. Þjálfari hópsins var
Jón Sævar Þórðarson frá
UMSE.
Æfingabúðirnar voru að
þessu sinni í Fuglsö í
Danmörku. Farið var út 28.
maí og komið lieim aftur 5.
júní.
Einstakur hópur
„Þetta var vitaskuld krökk-
unum sjálfum að þakka hvað
ferðin heppnaðist vel. Það er
auðvelt að vera fararstjóri
þegar farið er eftir öllum
Frá UMSS
Nú hcfur skrifstofa UMSS
verið flutt aftur í sitt gamla
húsnæði í sundlaugarhúsinu á
Sauðárkróki og mun hún verða
þar til húsa a.m.k. fyrst um
sinn. Síðustu ár hefur
skrifstofan verið í Varmahlíð.
I sumar verða tveir
starfsmenn hjá UMSS, þær
Matthildur Ingólfsdóttir og
Svahildur Pálsdóttir, sem verða
í hálfu starfi hvor.
Símatíminn á skrifstofu
UMSS er kl: 10 - 12 alla virka
daga og er síminn 35460,
einnig verður opið milli 13 og
16 á þriðjudögum og
fimmtudögum
íþróttaflokkurinn sem fór í æfingabúðir til Danmerkur.
síðan farið aftur eftir há-
reglum, og ekki þarf að vera
með neitt nöldur. Eg var
svolítið hissa á því að 19 ára
unglingar í dag, létu sér
segjast um að snerta ekki
einu sinn bjórglas hvað þá
annað í ferðinni.
Æfingaaðstaðan var frá-
bær. Veðrið einstakt alla
dagana, yfir 20 stiga hiti og
sól. Það bjargaði okkur
eiginlega að við vorum þarna
rétt við sjóinn og fengum því
smágolu. Það var líka
heppilegt fyrir krakkana að
ekki voru nema 800 metrar
niður að ströndinni og þau
nautu þess svo sannarlega að
synda í sjónurn. Það var æft
vel í ferðinni. Byrjað á
morgnana klukkan 10 og
degið.
Hvíldardagur var í miðri
vikunni og þá skruppum við
til Arósa í verslunarferð. Það
var daginn fyrir keppnis-
ferðina til Randers. Krökk-
unum okkargékk ágætlega á
mótinu og mörg þeirra bættu
sig verulega. Þátttaka Dananna
hefði mátt vera meiri, en
ástæðu þess má rekja til
prófanna hjá dönsku skóla-
fólki.
Stutt að stinga sér
í sjóinn
Síðasta kvöldið fór síðan
allur hópurinn í Tívolíið í
Kaupmannahöfn og um
morguninn var svo farið í
gönguferð á Strikinu, litið
inn í dýragarð og tleira. Þrátt
fyrir að æfingarnar og
keppnin væri að baki hélt
þessi reglusami hópur sínu
striki og allt fór vel fram. Og
það er alveg á hreinu að við
kveiktum ekki í kirkju
Kristjánsborgarhallar, sem
brann þarna um nóttina”,
sagði Sigurlaug.
Silla sagði þennan hóp
ungmenna alveg einstakan.
Við heimkomuna var gist á
UMFI hótelinu eins og
kvöldið fyrir utanferðina.
„Við Hlynur skruppum í
heimsókn út í bæ og vissum
að krakkarnir ætluðu á
tónleikana með Iron Mayden.
Við bjuggumst því við að þau
væru enn úti þegar við
kæmum, og urðum því
svolítið hissa þegar þau voru
komin heim og háttuð þegar
við komum. Þau sögðu að
þeim hafi ekkert litist á,
drykkjuskapurinn mikill og
samkoman frekar ógeðsleg.
Komin í klemmu
Þegar við svo kvöddum
hópinn kölluðu þau á okkur:
„Það verður gaman að sjá
ykkur á næsta móti”. Það var
eins og ekki kæmi annað til
greina en við fylgdum þeim
áfram til næsta móts og þau
hafa eiginlega sett mig í
klemmu, því nú verð ég
líklega að halda með fleirum
en USAH krökkunum”,
sagði Silla að endingu.
Sveinn Margeirsson ungur
og efnilegur hlaupari úr
Framför í Lýtingsstaðahreppi
var eitt skagfirsku ung-
mennanna sem fór í ferðina.
Sveinn var yfir sig ánægður,
sagði ferðina hafa tekist
alveg frábærlega, og ekki var
verra að hann bætti sig
verulega í ferðinni. Setti tvö
ný héraðsmet í sínum
aldursflokki, 14 ára ogyngri.
Hljóp 1500 metra á 4:31,7
mín, sem er aðeins sex
sekúntur frá Islandsmetinu,
og 800 metra á 2:10.5 mín.
„Þetta voru líka þeir bestu
fararstjórar sem ég hefhaft”,
sagði Sveinn.
f LANDSBANKANUM
FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA,
FLORÍNUR, ESCUDOS OG LIRUR
HVORT SEM ÞÚ VILT I SEÐLUM EÐA FERÐATÉKKUM
E
g þá er ekki allt upp talið.
í öllum afgreiöslum Landsbankans
geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust
gengið að gjaldmiðlum allra helstu
viðskiptalanda okkar vísum.
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiölum.
Við minnum lfka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.
Góða ferð.
f Landsbanki
Mi íslands
Banki allra landsmanna
Útibúiö á Sauðárkróki