Feykir


Feykir - 10.06.1992, Blaðsíða 6

Feykir - 10.06.1992, Blaðsíða 6
6FEYKIR 22/1992 hagyrðingaþáttur 121 Heilir og sælir lesendur góðir. Gott þykir mér að byrja þáttinn að þessu sinni með vísu eftir Halla Hjálmars. Skagafjarðar-fögur sýsla fer að verða miður sín. ' Hún skelfur alveg eins og hrísla ef ég smakka brennivín. Stundum fer öðruvísi en ætlað er, eins og fram kemur í næstu vísu Haraldar. Einu sinni ætlaði ég að yfirtaka heiminn, en allt fór það á annan veg af þvi ég var svo gleyminn. Bóndi nokkur austur á Melrakkasléttu tók saman við stúlku þar úr nágrenninu. Hafði hún áður verið trú- lofuð að minnsta kosti tveimur mönnum, og hét annar þeirra Egill og hinn Oddur. Um þennan nýja ráðahag hennar var ort þessi vísa. Bóndinn hellti úr buddu vel, býtti gjaldi þéttu, er hann keypti Egilssel og Oddsstaði á Sléttu. Jóhanna Benónýsdóttir var greindarkerling, sem eitt sinn átti heima á Skagaströnd. Eitt sinn, eftir að hún var orðin öldruð, réði hún sig vetrartíma á heimili eitt þar í kaupstaðnum. Svo stóð á að húsbóndinn var syðra á vertíð en konan ein heima með ung börn. Var því tekið svo til orða, að Jóa ætti að vera selskapsdama húsfreyju. Um tíðindi þessi orti Lúðvík Kemp þessa vísu. Fullvel tamin frægðar naut fyrir gamansvörin. Seinast frama sjötug hlaut, selskapsdama kjörin. Þegar vist Jóhönnu lauk, þótti Kemp enn vera tilefni til að gera vísu. Flest í heimi fallvalt er, flögra menn að þessu og hinu. Jóa hefur sagt af sér selskapsdömu embættinu. Ekki kann ég að segja lesendum hver ort hefur næstu vísu, né hver hefur fengið svofelldan dónt. Hvar sem þínar Ieiðir lágu lést þú rök og stefnu falt. Þú varst ótrúr yfir smáu yfir stærra settur skalt. Önnur kemur hér í svipuðum dúr, en ekki kann ég að nefna höfund hennar. Með vörunum sagði hann „vinur minn” veg þér drottinn greiði. En hjartað óskaði „and- skotinn” annist þig og leiði. Ekki linnir frásögnum af endalausum gjaldþrotum fyrir- tækja eða einstaklinga. Næsta vísa gæti vel átt við þær fréttir af slíku, sem fluttar hafa verið nú að undanförnu. Þegar félagseignin er orðin nógu rúin, forsprakkarnir sjálfum sér selja þrotabúin. Það er Jónas Jónsson frá Garði, sem leggur okkur hinum til þetta heilræði. Að sitja mætum meyjum hjá mér er ljúft að gera. En þær sem bæði bíta og slá best er að láta vera. Imba Sveins var kona nefnd, sem eitt sinn átti heirna í Gnúpverjahreppi. Var hún þekkt leirskáld þar í sveit, og þótti kátlegur hennar skáldskapur eins og til dæmis þetta. Tveir menn fóru út að slá, í duggarapeysum vóru. Fóru heim og hættu að slá og sáu eftir, að þeir fóru. Þegar Grímur Thomsen dó var sendur maður austur að Stóra-Núpi til séra Valdimars Brims og hann beðinn að yrkja erfiljóð eftir skáldið. Þegar Imba spurði þessi tíðindi þótti henni tilefni til eftiifarandi yrkingar. Grímur Thomsen dáinn var, sendimaður sendur var, upp í séra Valdiniar til að yrkja ljóðin þar. Þá er gaman að rifja upp þessa kunnu vísu, en ekki minnist ég þess að hafa nokkurn tírna heyrt eftir hvern hún er. I nefið taka nú er mál, nenni ei vaka lengur. Heldur slakað hefur sál hún til baka gengur. Stefán Sveinsson, síðast fornbókasali í Reykjavík, var eins og margir vita góður gleðimaður og snjall hag- yrðingur. Eftir hann mun vera næsta vísa. Einn ég lóna lífs í dans, laus við tjón og hatur. Astin þjónar eðli manns eins og spónamatur. Næsta vísa mun vera ort, er hann starfaði við vega- lagningu yfir Stóra-Vatns- skarð. Vekjum hlátur andans enn, eyðunt gráti og trega. Við erum kátir vegamenn og vinnurn mátulega. Ein vísa kemur hér enn eftir Stefán. A þó bjáti og ólög þrenn ört á bátinn stefni. Lifi ég kátur leik mér enn lífið er hlátursefni. Tindastóll trónir á toppi þriðju deildar Aðeins 50% æðarvarp á Ströndum findastólsmenn lentu í „strögli" þegar att var kappi við Ægismenn í Þorlákshöfn sl. laugardag. Allsterkur vindur setti svip sinn á leikinn. Gestunum tókst einungis að skora eitt mark í fyrri hálfleik og hcimamcnn jöfnuðu síðan strax í upphafi seinni hálfleiks. Pétur Péturson náði aðskora fyrir Tindastól snemma í leiknum, laglegt mark beint úr aukaspyrnu. Tindastóls- menn sóttu síðan án afláts en tókst ekki að skora fleiri mörk í fyrri hálfleiknum. Strax í upphafi seinni hálfleik náðu síðan heima- menn aðjafna. Jafnræði var síðan með liðunum og ómögulegt að sjá hvert stefndi með skiptingu stiga, þar til Sverrir Sverrisson náði að skora fyrir Tindastól stundarfjórðungi fyrir leiks- lok, mark af stuttu færi upp úr góðri sendingu fyrir markið. Tindastóll trónir nú eitt liða á toppi deildarinnar, er með níu stig eftir þrjá leiki. Næsti leikur í deildinni verður á Sauðárkróksvelli nk. föstudgskvöld kl. 20. Andstæðingarnir eru frá Dalvík. „Varpið er ekki komið almennilega af stað ennþá, en það er greinilegt .að það verður um helmingi minna núna en í meðalári. Þetta er víst svipað í Ofeigsfirði líka. Kollurnar eru fáar miðað við Blikana, þeir eru niargir um sömu kolluna”, sagði Oskar Kristinsson á Seljanesi í Arneshreppi á Ströndum. Bændur á Ströndpm er fyrir nokkru farnir að huga að æðarvarpinu, bæði þeir sem búa þar af staðaldari og eins hinir sem stunda nytjar yfir sumarið. Oskar tilheyrir þeirn hópi. Æðarfuglstofninn þar vestra varð fyrir miklum skakka- föllum í sjávarmengun á síðasta sumri. „Miðað við talningu dauðs fugls og ágiskun okkar þá, var aðeins útlit fyrir að 20-30% varps- fuglsins lifði þetta af, en þetta virðistekki hafa reynstsvona slæmt”, sagði Óskar. Hann sagði að æðardúnn þeirra Seljanesmanna hafi numið 60 kílóum á síðasta vori, en yrði líklega unt 30 kg. nú. „Eg býst við að þetta sé verst hjá okkur hérna norður frá og í Ófeigsfirðinum. Strax og kemur hér í næstu vík. í Arnes, er þetta ekki eins slæmt”, sagði Óskar. Leiðrétting: í frásögn af víðavangs- hlaupi á Skagaströnd í Feyki nýlega féllu niður nokkrar línur. Réttur texti hljóðar svo: og hvetja þá til að greikka sporið, sigur sé í nánd. Og litlu kropparnir taka á öllu sem þeir eiga til, en ekki geta allir unnið, þótt öllu sé tjaldað dugir það samt ekki til þess að allir geti orðið fyrstir. Þá kemur til skjalanna hinn sanni íþróttaandi. Allirsætta sig við fengna niðurstöðu. Ný tölvustýrð stiUitæki! BIFREIOAVERKSTÆOI K.S SKAGFIRÐINGAR NÆRSVEITAMENN ÓDÝR SUMAR- FATNAÐUR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA! ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT í HVERRI VIKU! *VentcL (Aelúömin! VERSLUN HARALDAR JÚLÍUSSONAR

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.