Feykir


Feykir - 10.06.1992, Qupperneq 8

Feykir - 10.06.1992, Qupperneq 8
10. júní 1992, 22. tölublað 12. árgangur STERKUR AUGLÝSINGAMIÐILL! Landsbankinn á Sauðárkróki Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga frá kl. 9.15 -16.00 : apapa M Landsbanki Sími 35353 í Wk íslands Banki allra landsmanna „Eldti sama ástand í atvinnumálum unglinga hér og víða annarstaðar" Segir Matthías Viktorsson hjá atvinnumiðluninni Samkvæmt upplýsingum Matt- híasar Viktorssonar hjá atvinnu- miðlun Sauðárkróksbæjar virðist atvinnuástand vera nokkuð gott í bænum um þessar mundir, einnig hjá ungmenn- um, en annað mátti skilja á umræðum um atvinnumál ungmenna á fundi bæjar- stjórnar í síðustu viku. Svo virðist sem allir nemendur á framhaldsskólíialdri hafi fengið vinnu, en síðustu vor hafa nokkrir úr þeim aldurshópi verið á skrá a.m.k. í 2-3 vikur eftir skóla. Hinsvegar hefur enn ekki tekist að útvega átta unglingum sem luku grunn- skólaprófi í vor atvinnu. Matthías kvaðst vongóður um að þessir krakkar fengju vinnu á næstunni, þar sem spurst hafi verið eftir vinnu- afli nú undanfarið. ,,Sem betur fer, er ekki hér í dag það ástand sem virðist vera viðvarandi víða. Það fækkaði t.d. á atvinnuleysisskránni um 20 síðast, og ég held að atvinnuástand megi teljast mjög gott í bænum í dag”, sagði Matthías. Upplýsingar Matthíasar stangast á við unrræður og ummæli í bæjarstjórn í síðustu viku. Á þeim mátti skilja að talsvert atvinnuleysi væri meðal ungmenna í bænum. Bæjarfulltrúar bentu réttilega á, að atvinnuleysi mætti ekki vera það fyrsta sem unglingar kynntust þegar þeir kærnu út úr skóla á vinnumarkaðinn. Leita yrði lausna á þessu vanda- máli strax. Krökkum í vinnuskólanum hefur fjölgað mikið frá síðasta ári, eru nú 170. Munar ntestu urn að nú kom mjög stór árgangur inn í unglingavinnuna, 50 krakkar. Þykir sýnt að á næsta ári verði að fækka árgöngum í unglingavinnunni, þannig að ekki verði tekið við næsta árgangi, en hann er enn stærri en sá sem bættist við nú, eða 60 krakkar. Vinnu- skólinn var styttur um eina viku frá því sem áður var ákveðið. Það sparar bæjar- sjóði 750 þúsund. Samkvæmt fjárhagsáætlun átti að fara til unglingavinnunnar 3,4 mill- jónir, en vegna fjöldans verður kostnaðurinn 5 rnill- jónir. feykjur Enn "mynda.^hús* gagnasalar á ferð Sjálfsagt er fólki hér um slóðir enn í fersku minni málarekstur sá er varð vegna sölu leðursófasetta, sem seld voru hér og víðar á landinu eftir myndalista á síðasta vori. Svo virðist sem enn á ný verði farið að selja húsgögn eftir myndalista út um landið. Nýlega var dreift i hvert hús á Sauðárkróki og sjálfsagt víðar, myndalista þar sem gefur að líta fallegar litmyndir af framleiðslu aðila sem segist vera stærsta fyrirtæki á Islandi í fram- leiðslu sófasetta. Fyrirtækið hafi starfað í 12 ár og einkunnarorð þess séu: stöðug framþróun. Vonandi reynist þessi aðili traustari en sá sem heimsótti héraðið fyrir ári, en þess ber þó að geta að Neytenda- samtökin hafa varað fólk við viðskiptum af þessu tagi, þ.e. að kaupa vöru eftir mynda- lista, og að greiða vöruna fyrirfrant að einhverju eða öllu leyti. eins og gerðist t.d. með greiðslukortaviðskiptunum fyrir ári. Fertugír Skagstendingar Allt er fertugum fært, segir máltæki sem haft hefurverið í hávegum lengi. Nokkrir Skagstrendingar sem ná þessu aldursmarki á þessu ári, komu saman nýlega, og stofnuðu félag fertugra á staðnum. Með stofnun félagsins vilja Skagstrendingamir undir- strika gullvægi máltækisins og það að lífið er ákaflega skemmilegt fertugu fólki og hægt er að gera sér margt til skemmtunar. Magnús Jónsson sveitar- stjóri er einn stofnfélaga. Magnús segir félagið sérstakt að því leyti að fólki sé einungis heimilt að vera í félaginu þetta eina ár, sent fertugsafntælið rennurupp. I lögurn félagsins segir m.a. að það sé hvorki samvinnufélag né hlutafélag, og félagar hafi engar skyldur gagnvart félag- inu né félagið gegn þeim. „Við ætlum að gera okkur ýmislegt til skentmtunar á árinu, en það eina sem ákveðið hefurverið.erferðút í Hrísey í sumar”, sagði Magnús. Brotin lög á minkum Nú er lokið aðgerðum til fækkunar útigangskatta á Húsavík og féllu sex kettir í valinn. Að auki féll einn minkur sem kom beint í llasið á meindýraeyðinum, er hann var að leita katta. Það er álitamál hvort hér hafi ekki verið brotin lög á minknum, því aðeins voru auglýstar aðgerðir til fækk- unar köttum, þannig að minkar, a.m.k. þeir sem lásu Víkurblaðið hafa ugglaust talið sig óhulta á meðan útrýmingarherfeiðin gegn flæk- ingsköttum stóð yfir. Við vísum þessu máli til Sigurðar Líndal. (Víkurblaðið) Trúlega eiga ntargir eftir að reyna hæfni sína á vatnaþotu á Sléttuhlíðarvatni í sumar. Vatnaþotuleiga við Sléttuhlíðarvatn Vegfarendur um Sléttuhlíð í sumar eiga sjálfsagt eftir að veita eftirtekt hvítfyssandi fari á Sléttuhlíðarvatni, vegna umferðar á vatninu. Nýlega stofnuðu hjónin á Hrauni, Magnús Pétursson og Elín- borg Hilmarsdóttir, fvrirtækið Vatnasport sent leigir út vatnaþotur. Þessari nýju afþreyingu hefur verið vel tekið á svæðinu, og þónokkuð margir léku sér á vatninu yfir hvítasunnuhelgina. Vatnasport leigir út tvær þotur til að byrja með og hugmyndin er einnig að vera nteð sjóskíði til leigu. „Við fengum þessa hugmynd í vetur. Það eru allir í þessu sama í ferðaþjónustunni, sumarhúsum, gistingu og hestasporti. Það er aðeins á Akureyri sem boðið er upp á vatnaþotur hér Norðanlands, og okkur fannst ekki saka að kanna áhuga Norðvestlendinga og ferðafólks fyrir þessu”, sagði Magnús. ,,Eg er bjartsýnn á að þetta verði vinsælt. Aðstæður fyrir íþróttina eru mjög góðar hér. Við erum hérna skammt frá þjóðveginunt og því ætti þessi afþreyingarmöguleiki ekki að fara framhjá veg- farendum”, sagði Elínborg. Þegar blaðamaður Feykis var á ferðinni um helgina virtist fólk kunna vel við sig á vatninu. Talsverð urnferð fólks hafði verið þarna um daginn, mest frá Siglufirði en einnig frá Sauðárkróki. Metþátttaka í hérðaðssýningu í Húnaveri Mikil aukning hefur orðið í þátttöku á héraðssýningu Húnvetninga sem hefst í Húnaveri í dag. Að þessu sinni eru skráð um 70 hross og er það mun fleira en vanalega, reiknað var með 40 hrossum að þessu sinni. Hrossin verða dæmd í dag og fyrripart morgundagsins, en kl. 4 síðdegis á morgun hefst síðan yfirlitssýning á best dæmdu hrossunum. „Þessi mikla þátttaka sýnir þann aukna áhuga sem er á tamningum og hesta- mennsku á svæðinu. Það hefur orðið sprenging í þessu undanfarið og menn leggja greinilega rnikið upp úr því að fá kynbótahryssur sína dærndar”, sagði Guðmundur Valtýsson á Eiriksstöðum foiTnaður Hestamannafélags- ins Oðins. Guðmundur sagði að hvem stórviðburðinn ræki nú annan hjá hestamönnum í Húna- þingi. Hestamannafélögin hefðu ákveðið að vera með sam- eiginlegt mót laugardaginn 20. júní í Húnaveri. „Það hefur komið til tals að Skagfirðingar riðu yfir til okkar og tækju þátt í mótinu, eins og var hérna í eina tíð”. BÓKAEÚÐ BEmJARS

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.