Feykir - 17.06.1992, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Konurnar í hópnum prófa hér hákarlinn.
Boðið uppá góðmeti í
bjálkahúsinu í sumar
Hugmyndin er að bjóða
ferðahópum upp á sýnishorn
af islenskum mat í gamla
bjálkahúsinu á Hofsósi í
sumar, hákarl með' ísköldu
brennivíni, harðfisk og súrs-
aðan mat ýmiskonar. Þetta
kom fram í kynningu fyrir
frétta- og ferðamálafólk í
bjálkahúsinu sl. fóstudag, en
Ferðamálafélag Skagafjarðar
og Siglufjarðar bauð þessu
fólki í heimsókn nú fyrir
helgina.
Þá er einnig, eins og fram
hefur komið, hugmyndin að
tengja bjálkahúsið Drangey.
Komið verði upp safni muna
þaðan og farnar ferðir út í
eyna úr fjörunni við bjálka-
húsið.
Valgeir Þorvaldsson á
Vatni og helsti forvígismaður
endurreisnar kvosarinnar á
Hofsósi gat þess einnig að
gamla hótelið yrði væntan-
lega opnað um næstu
mánaðamót. Ungt fólk að
sunnan mun veita hótelinu
forstöðu í sumar. Ætlunin er
að vera með kaffistofu á
neðri hæðinni og bjóða þar
bakkelsi á gamla móðinn:
kleinur, jólakökur og fleira,
ásamt ekta könnukaffi.
Sagðist Valgeir vonast til
að í kvosinni gæti skapast
rammíslensk stemmning, sem
fylgdi hinni rómuðu gestrinsi
er gjarnan hefur verið kennd
við sveitaheimili landsins.
Góð aðsókn í Kánlrýbæ
„Ef framhaldið verður eitt-
hvað í líkingu við fyrsta
daginn kvíði ég engu. Þá
verður kátt í Kántrýbæ”, sagði
Hallbjörn Hjartarson að
loknuni sjómannadeginum, en
þá opnaði hann Kántrýbæ að
nýju eftir að staðurinn hafði
verið lokaður í sex ár.
Þegar blaðamaður Feykis
var á ferðinni á Skagaströnd
á sjómannadaginn, stóð
Hallbjörn kófsveittur við að
steikja hamborgara og franskar
kartöflur. Hann afgreiddi
hverja pöntunina á fætur
annarri og veitti komumanni
ekki eftirtekt í fyrstu, enda
mikið að gera.
„Þetta er búið að vera
mjög strembið hjá mér
undanfarið. Maður hefur
gjörsamlega verið á haus í
þessu, ekki sofið nema svona
þrjá tíma á sólarhring. En
þetta hafðist, og svo er bara
vonandi að fólk taki þessi
vel. Ég trúi því sjálfur að fólk
Hallbjörn Hjartarson var mjög ánægður með viðtökurnar sem
Kántrýbær fékk eftir að hafa verið lokaður í sex ár.
vilji hafa Kántrýbæ hér á
Skagaströnd”, sagði Hall-
björn að endingu og hélt
áfram að skella hamborgur-
um á helluna. • Og á eftir að
hafa smakkað einn með öllu,
þá er ljóst að Kántrýborgar-
arnir standa fyrir sínu og vel
það.
Óvenjulegur hreiðurstaður skógarþrastar
Þegar bensínafgreiðslumaður
á Abæ var að setja eldsneyti á
tank Broncojeppa í bænum á
dögunum, veitti hann eftirtekt
dálítið óvenjulegu ofan á
gormafestingu í framhjólshúsi
jeppans. Hreiðurkarfa varþar
vel jörfuð við gormafestinguna.
Hún er það ofarlega í
hjólhúsinu að spegil urfti til
að sjá ofan í hreiðrið. Komu
þá í Ijós sex stráheil
skógarþrastaregg.
Frosti Frostason, eigandi
jeppans, vissi ekki hvaðan á
sig stóð veðrið þegar Gunnar
Bragi afgreiðslumaður spurði
hvort hann hefði Iítið notað
jeppann nú í vor. Fosti
samsinnti því, en kvaðst hafa
verið að ditta að honum núna
undanfarið með sölu í huga.
,,Ég var búinn að þvælast
þónokkuð á jeppanum yfir
hvítasunnuhelgina, en síðan
þarna á þriðjudeginum upp-
götvaðist hreiðrið, þannig að
ég fór og lagði jeppanum
heima”, sagði Frosti. Hann
fór til vinnu sinnar í
Steinullarverksmiðjunni á hjóli
í síðusutu viku.
Þegar svo Frosti gáði með
spegli í hreiðrið í fyrradag
voru komnir sex ungar.
Frosti verður greinilega að
bíða með að setja Bronkóinn
á sölu þangað til ungarnir eru
flognir úr hreiðrinu.
Hreiðurkarfan er vel njörfuð niður í gormafestinguna.
—KTengill lip—
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
, jQKIbilaveflístgdi
SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141