Feykir - 17.06.1992, Blaðsíða 4
4FEYKIR 23/1992
Hestasport stefnir
ferðalöngum „til móts
við íslenska hestinn"
Ferðaþjónustuaðilinn Hesta-
sport í Skagafirði hefur
bryddað upp á nýjung í þeirri
viðleitni sinni að vekja athygli
á íslenska hestinuni, egar
erlenda ferðahópa ber að
garði. Þeir hjá Hestasporti
hafa tekið hina glæsilegu
aðstöðu á Vindheimameluin á
leigu, og munu í sumar
gangast fyrir sýningum á
Melunum. Dagskráin sem
kallast „Til fundar við
íslenska hestinn”, saman
stendur af öllu því helsta sem
forvitnir ferðalangar kynnu
að vilja vita um íslenska
hestinn í nútíð og fortíð. Það
er fríður flokkur hesta og
knapa sem vinnur á þcnnan
hátt að markaðssetningu
íslenska hestsins á Vind-
heimamelum í sumar.
Eins og allir hestamenn
vita er söngurinn nátengdur
hestamennskunni. Þegar dym-
ar opnast á veitingaskálan-
um hefur söngkvartett hesta-
manna söng undir stjórn
hesta- og tónlistarkonunnar
Sólveigar Einarsdóttur, og
salurinn ómar af léttleika
söngsins. Eftir tvö stutt lög
bjóða Magnús Sigmundsson,
annar forsvarsmanna Hesta-
sports og Ingimar Ingimars-
son, gesti velkomna. Skýra
þeir í fáum orðum sérstöðu
íslenska hestsins, og fá
þátttakendur að auki afhent-
an lítinn bækling með öllum
helstu upplýsingum. Þessi
bæklingur er prentaður á sjö
tungumálum.
Vakin sérstök athygli
á mýktinni
Eftir skamma viðdvöl í
Gæðingarnir teknir til kostanna.
SKAGFIRDINGAR
NÆRSVEITAMENN
ÓDÝR SUMAR-
FATNAÐUR Á ALLA
FJÖLSKYLDUNA!
ALLTAF EITTHVAÐ
NÝTT í HVERRI VIKUI
*Ventcl veCéatuítt!
VERSLUN
HARALDAR JÚLÍUSSONAR
Þetta er sýningarflokkurinn sem vinnur að markaðssetningu íslenska hestsins á Vindheima-
melum í sumar.
Söngurinn er nátengdur hestamennskunni.
skálanum er haldið út á völl.
Þar ber fyrir augu gesta
hnitmiðuð sýning á hæfni
íslenska hestsins. Fimm
glæsilegir hestar líða þar eftir
brautum með hinn lands-
þekkta háfeta og glæsihest
Hrímni frá Varmalæk fremstan
í ílokki. Sýndar eru allar
fimm gangtegundirnar og að
auki vakin sérstök athygli á
mýkt hestsins með því að
tveir knapar ríða hring á
vellinum með bjórglas í
hendi. Er þetta þekkt aðferð
til að sýna mýkt íslenska
hestsins.
Við lok sýningar á vellinum,
sem tekur um 20 mínútur, er
gestum gjarnan boðið að
skreppa á bak. Þar á eftir er
síðan haldið ískálann að nýju
og gefst gestum kostur á að
skoða þar myndir af íslenska
hestinum á myndböndum og
geta jafnhliða notið léttra
veitinga.
Fólk hrífst sem aldrei
hefur komið nálægt
hestum
Þeir Magnús Sigmundsson
frá Vindheimum og Björn
Sveinsson á Varmalæk, sem
standa að rekstri Hestasports,
fengu hinn þekkta hesta-
mann Ingimar Ingimarsson
til liðs við sig í vor varðandi
sýningarnar á Vindheima-
melum. í sumar geta skipu-
lagðir ferðahópar komist á
þessar sýningar með því að
panta með minnst tveggja
daga fyrirvara. Þegar er búið
að bóka talsvert og lítur vel
út t.d. með miðvikudaga og
laugardaga í sumar.
Þegar fjölmiðlafólk var á
ferð á Vindheimamelum sl.
fimmtudag höfðu tveir ferða-
hópar komið í heimsókn, þá
um morguninn og daginn
áður. Ingimarsagði viðbrögð
fólks hafa verið mjög góð og
sér virtist sem þessi nýjung
lofaði góðu. ,,Við höfum
rekið okkur svo margoft á
það hvað íslenski hesturinn
er forvitnilegur fyrir ferða-
langa, ekkert síður þá sem
hafa aldrei komið nálægt
hestum áður, eins og er nú
yfirleitt í þessum ferða-
hópum. Þeir kannast t.d. við
það sem hafa staðið í
hrossarekstrum að ferðafólk
stoppar gjarnan og gefur sér
góðan tíma til að skoða
hestana”, sagði Ingimar.
Óplægður akur
Rúnar Gíslason fólksflutn-
ingabílstjóri tók undir orð
Ingimars. Rúnar þekkir vel
til þess fólks sem heimsækir
landið, eftir að hafa verið
rútubílstjóri í vel 25 ár.
„Maður hefur oft rekið. sig
á það að ferðaáætlanir
raskast ef fólk kemst í kynni
við íslenska hestinn. Þó ég sé
ekki hestamaður, þá hef ég
komist að þeirri niðurstöðu
að hesturinn sé sú mesta
perla sem við eigum í
sambandi við ferðamenn.
Náttúruperlumar okkar standa
honum ekki einu sinni
snúning. Þarna er enn mikill
akur óplægður”, sagði Rúnar.
Kunnir hestamenn sem sáu
sýninguna ,,Til móts við
íslenska hestinn” á Vind-
heimamelum, voru sammála
um að hér væri um mjög
skemmilega og hnitmiðaða
sýningu að ræða, sýnt væri
margt á stuttum tíma. Að
lokum má geta þess að
sýningin er hrein viðbót við
starfsemi Hestasports. Fyrir-
tækið mun reka áfram
hestaleigu við tjaldstæðin í
Varmahlíð og á Steinsstöðum,
einnig bjóða upp á lengri og
styttri ferðir á hestum, t.d.
austur í Mývatnssveit og
suður yfir Kjöl.
Bl FREIÐAEIGENDUR:
Látið vélarstilla
bifreiðina fyrir sumarið!
Ný tölvustýrð stillitæki!
BIFREIÐAVERKSTÆÐI K.S.