Feykir - 17.06.1992, Side 2
2FEYKIR 23/1992
Óháö Iréttabtaö á Noröuriandi veslra
Kemur 'út á miðvikudögum vikulega.
Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aðal-
gata 2, Sauðárkróki. Póstfang: Pósthólf
4, 550 Sauðárkróki. Símar: 95.-35757 og
95-36703. Fax: ' 95-36162. Ritstjóri:
Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Ólafsson A.-Hún., Eggert
Antonsson V.Hún. Auglýsingastjóri:
Hólmfríður Guðmundsdóttir. Blaðstjórn:
Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar Jónsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftar-
verð 110 krónur hvert tölublað.
Lausasöluverð: 120 krónur. Umbrot:
Feykir. Setning og prentun: Sást sf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.
kaupir Dalsá
Sauðárkróksbær hefur keypt
evðijörðina Dalsá skammt
ofan Heiðar í Gönguskörðum.
Jarðarkaupin eru af flestum
bæjarfulltrúum talin koma
bæjarfélaginu til góða vegna
útivistar, hrossabcitar, og
hugsanlega vatnsréttinda í
franitíðinni.
Ekki hefur ríkt einhugur
um þessi kaup innan bæjar-
stjórnar. Reyndar var búið
að ganga frá sölu við eiganda
jarðarinnar, Siguið B. Magniis-
sonar, fyrir ári og einnig
kaupum bæjarins á túnskika
Sigurðar á Nöfum. Átti
kaupverðið þá að vera 1800
þúsund. Síðan gerðist það að
Sigurður rifti sölu Dalsár, en
salan á túnunum gekk
eftir.
Söluverð Dalsár nú er
1650 þúsund. Viggó Jónsson
bæjarfulltrúi framsóknar sem
var andvígur kaupunum
fyrir ári, sat hjá viðafgreiðslu
bæjarstjórnar nú. Anna
Kristín Gunnarsdóttir Alþýðu-
bandalagi lét hinsvega bóka
að hún væri andvíg kaupunum.
Þau Viggó og Anna telja
bæinn ekki á þessu stigi hafa
þörf fyrir Dalsárlandið, og
þessum peningum væri betur
varið í annað.
Suðurleið
Þann 1. júní sl. byrjaði
Suðurleið sf. á Sleitustöðum
sínar árlegu áætlunarferðir
milli Siglufjarðar og Reykja-
víkur. Þetta verður fimmta
sumarið sem Suðurleið er með
áætlunarferðir á þessari leið.
Eins og áður verður farið til
Reykjavikur á sunnudögum,
þriðjudögum og fimmtudögum
og ekið norður daginn eftir.
Suðurleið sf. er rekin af
Jóni Sigurðssyni og íjölskyldu
á Sleitustöðum í Hólahreppi.
Jón sagði í samtali við
fréttamann að nú væri tekinn
í notkun nýr og glæsilegur
bíll af gerðinni Mercedes
Bens sem tekur 20 farþega.
Bifreiðin var keypt sl. haust
sem sendiferðabíll en í vetur
hefur fjölskyldan unnið við
að byggja yfir og innrétta
bílinn með það fyrir augum
Fíi með lægsta
tilboð í
slökkvistöðina
Nýlega voru opnuð tilboð í
rúmlega 100 fermetra við-
byggingu við Slökkvistöðina á
Sauðárkróki, sem steypt
verður upp seinna í sumar.
Lægsta tilboð í verkið kom frá
Friðriki Jónssyni sf. 4,767
milljónir. Kostnaðaráætlun er
5,269 milljónir.
Þrjú önnur tilboð bárust.
Guðlaugur Einarsson kom
næstur með 5,122 millj., þá
Trésmiðjan Borg 5,328 og
hæsta tilboðið var frá
Trésmiðjunni Ýr, 5,880 mill-
jónir.
Stækkun slökkvistöðvar-
innar var orðin brýn þar sem
mjög þröngt hefur verið á
bílakosti slökkviliðsins undan-
farin ár. Miklar endurbætur
hafa verið gerðar á Dúða-
húsinu síðustu misseri. Er
aðstaða slökkviliðsins á efri
hæð hússins orðin mjög
glæsileg.
FASTEIGN TIL SÖLU
Tilboð óskast í húseignina Raftahlíö 75 sem er þriggja
herbergja raðhús ásamt bílskúr.
Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboöi sem er eöa
hafna öllum. Upplýsingar í síma 36686
eftir kl. 15 á daginn.
Tfdridansaffúóbunnn 9-fvedur
Þá er komið ctð því sem allir hafa beðið eftir.
Jónsmessudansleikur ífelagsheimilinu Skajyaseli
laugardafann 20. 6. kl. 23.
Hljómsveitin Miðaldamenn sjá umfjörið.
Nú mœta allir í stuði á Skajjann!
Sœtaferðjrá Bláfelli kl. 22.30; kr. 800
GÓÐA SKEMMTUN• STJÓRNIN
hefur sumaráætlun
Jón Sigurðsson við stýri hins nýja bíls Suðurleiðar.
að harin yrði í ferðum á
leiðinni Siglufjörður- Reykja-
vík.
Aðspurður sagðist Jón
þokkalega ánægður með þær
viðtökur sem áætlunarferðir
Suðurleiðar hefðu fengið,
það hefði verið aukning á
farþegafjölda ár frá ári og því
ljóst að sífellt fleiri nýttu sér
þennan ferðamöguleika.
ÖÞ.
Vöruhús Hvammstanga
flytur í nýtt húsnæði
Föstudaginn 12. júní sl. flutti
Vöruhús Hvammstanga hf
verslun sína í annað húsnæði,
en eins og mörgum er kunnugt
hefur Kaupfélag Vestur-Hún-
vetninga á Hvammstanga fest
kaup á húsnæði því sem
verslunin hefur verið í að
Höfðabraut 6.
Undirbúningurinn fyrir
flutninginn hefur staðið yfir sl.
tvo mánuði. Flutt var að
Brekkugötu 2 í húsnæði það sem
Verslun Sigurðar Pálmasonar
var til húsa áður en hún flutti að
Höfðabraut 6. Að sögn aðstand-
enda Vöruhússins vonast þeir til
að rekstrarkostnaður muni
lækka nokkuð við að flytja í
minna húsnæði og telja þeir að
viðskipti við verslurtina muni
ekki dragast saman í hlutfalli við
minnkun húsnæðis. Þá hafi
margir látið í ljós ánægju sína
með að verslun skuli aftur
vera komin á þennan gamla
og rótgróna verslunarstað á
Hvammstanga, en í þessu
húsnæði hefur verið rekin
verslun allt frá árinu 1926 til
ársins 1986, svo að segja má
að það tilheyri húsinu að þar
sé rekin verslun.
EA.
Amælishátíð USAH
um næstu helgi
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga er 80 ára á þessu
ári. Af því tilefni verður
afmælishátíð haldin í Félags-
heimilinu á Blönduósi nk.
sunnudagskvöld að loknu
héraðsmóti USAH í frjálsum
íþróttum. Þar verða kaffi-
veitingar, afhending verð-
launa fyrir árangur á héraðs-
mótum og Pálmi Gíslason
form. UMFÍ fiytur ávarp.
Á héraðsmóti USAH keppir
Guðbjörg Gylfadóttir íslands-
meistari í kúluvarpi kvenna,
en hún er félagi í Umf. Fram
Sólgarðaskóli:
Þeim sem panta gistingu eða afnot af Sólgaröaskóla í
Fljótum í sumar er bent á að hafa samband viö Örn í
síma 96-71060
á Skagaströnd. Einnig mun
Pétur Guðmundsson íslands-
meistari karla í kúluvarpi
keppa sem gestur á mótinu.
Héraðsmótið hefst laugar-
daginn 20. júní.
MÓ.
Jákvæður
púnktur í
tilverunni....
Feykir!