Feykir - 17.06.1992, Page 3
23/1992 FEYKIR3
Sjómannadagurinn er hátíðisdagur allra aldurshópa á Skagaströnd. Ekki síst barnanna
sem hér eru á vappi milli Örvars og bryggju.
IVIikið um dýrðir á Skagaströnd
á Sjómannadaginn
Mikið var um dýrðir á
sjómannadaginn á Skaga-
strönd eins og jafnan, en þetta
er helsti hátíðardagur ársins á
staðnum. Þátttakan var mjög
almenn í hátíðarhöldunum,
sem hófust með skemmtisigl-
ingu frá togarabryggjunni um
morguninn. Að henni lokinni
var farið í skrúðgöngu til
Hólaneskirkju, þar sem haldin
var sjómannamessa.
Hátíðarhöldin hófust eftir
hádegið með karnivalgöngu
frá Höfðaskóla niður á
bryggju. Kappróðurinn var
næst á dagskrá, en ætíð fylgir
þeirri keppni nokkur eftir-
vænting. Starfsmenn véla-
verkstæðisins sáu sér t.d. færi
á því núna að vinna bikarinn
í fimmta skipti alls og hreppa
hann til eignar. Það tókst þó
ekki, og æfingar áhafnar
Arnars, sem komu í land
fyrir þremur dögum, skiluðu
árangri. Hólanesstúlkur sigr
uðu í kappróðri kvenfólksins
og hjá unglingunum sigraði
sveit Jóseps Stefánssonar.
Þá var komið að ýmsum
leikjum á togarabryggjunni,
reiptogi, naglaboðhlaupi o.fl.
ásamt ýmsum öðrum uppá-
komum í höfninni. Avarp
dagsins flutti að þessu sinni
Unnur Kristjánsdóttir kennari
á Skagaströnd og bæjarfull-
trúi á Blönduósi. Unnur er
fylgjandi samvinnu Blöndu-
ósinga og Skagstrendinga í
hafnarmálum, en væntan-
lega hefur það samt ekki
verið ástæðan fyrir því að
hún var fengin til að tala yfir
Skagstrendingum á sjómanna-
daginn.
Skagstrendingar heiðra ætíð
eldri borgara bæjarins á
sjómannadaginn. Ekkierþar
Gigtarfélagið með
málþing á Króknum
einvörðungu um aldraða
sjómenn að ræða, stundum er
farið út fyrir þeirra raðir og
þannig var í þetta sinn. Að
þessu sinni voru heiðruð
sæmdarhjónin Gunnar Ben-
ónýsson og Bergljót Óskars-
dóttir. Þau hafa búið á
Skagaströnd í rúm 50 ár.
Gunnar, sem er frá Siglufirði,
var lengi fastur starfsmaður
Síldarverksmiðja ríkisins, en
var þar áður sjómaður.
Bergljót er Skagstrendingur.
Vann í síldinni áður fyrr, en
síðan lengi í fiskvinnu.
Kaffisala var í Höfðaskóla
um miðjan daginn og þar var
einnig málverkasýning Skag-
strendingsins Sveinbjöms Blö-
ndal. Hátíðahöld sjó-
mannadagsins á Skagaströnd
voru í umsjón Björgunar-
sveitar Skagastrandar. Þeim
lauk meðdansleik í Fellsborg
um kvöldið. Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar lék
fyrir dansi.
Söngsamkoma í
Húnaveri 5. júlí n.k.
Undanfarinn áratug hefur
verið staðið fyrir samkomum,
þar sem fólk safnast saman til
að syngja saman ættjarðar-
Ijóð, slagara, réttarsöngva og
hvað annað sem upp hefur
komið. Jói í Stapa og
Heiðmar Jónsson kusu sig
sjálfa í nefnd til að standa
fyrir Sumarlokasamkomum
árin 1982-‘85. í framhaldi af
ári söngsins og fleiri tilvikum
hefur Húnaver verið pantað til
söngs og samveru sunnudag-
inn 5. júlí nk. frá kl. 4-17.
Söngglaðir og laglausir eru
jafn velkoninir, en á staðnum
verða fjölritaðirsöngtextarog
sungin jafnt ættjarðarlög sem
slagarar.
I Reykjavík hefur verið
komið saman einu sinni til
tvisvar á vetri tilsöngs, oftast
í Risinu, en líka á Þinghóli
auk þess var borðað og
sungið saman í Básnum í
Ölfusinu ‘91 og þá var góð
þátttaka úr Uppsveitunum.
Sameiginlegt þessum sam-
komum er að ekki hefur
mikið verið haft fyrir skemmti-
efni, þó oftast 2-4 atriði,
söngtextar eru ævinlega
fjölritaðir og mikið sungnir.
Oftast er boðið upp á dans,
þannig að einhver hefur með
sér harmóniku, en venjulega
er aðeins dansað í hálftíma til
klukkutíma.
Nú verður boðið til
samkomu í Húnaveri sunnu-
daginn 5. júlí nk. sem hefst
kl. 14 og stendur væntanlega
til kl. 17. Þar verða á
boðstólum fjölritaðir textar,
sem sungnir verða auk
annars sem í huga kemur.
Einhver skemmtiatriði verða
s.s. kórsöngur og einsöngur,
hellt verður upp á kaffi, en
gestir eru beðnir að grípa
með sér kleinur eða pönnu-
kökur, sem settar verða
saman á borð og síðan neytt
sameiginlega og söngröddin
hvíld á meðan.
Þó þessi ofangreind stefna
sé kannski fremur gerð til
Húnvetninga en annarra,
nær hún þó líka til allra, sem
annað tveggja vilja taka þátt í
söng, eða eyða lítilli stund
með skrafbræðrum og rabb-
systrum að nýlokinni Jóns-
messu. Væntanlega verður
minnst á þennan Húnavers-
söng í Feyki, en viðtakendur
bréfsins eru beðnir að þegja
ekki yfir efni þess við
söngglaða eða skraffúsa
nábúa, en halda á lofti
boðskapnum.
Skrifað á Flúðum í júní 1992.
Bestu óskir um gott sumar.
Heiðmar Jónsson.
Sveinn
Margeirs. slú
íslandsmetið
Hlauparinn efnilegi, Sveinn
Margeirsson UMSS, sló
íslandsmetið í 1500 metra
hlaupi aldursflokks 14 ára og
yngri, á fyrri hluta Meistara-
móts íslands sem fram fór í
Mosfellsbæ um siðustu helgi.
Sveinn hljóp á 4:18,6
mínútum og er það um sjö
sekúntum betra en gamla
Islandsmetið sem Finnbogi
Gylfason FH átti. Um mikla
bætingu var að ræða hjá
Sveini. Hann átti best áður
4:31,7, sem var héraðsmet
sett á æfingamóti í Dan-
mörku á dögunum.
í tilefni norræna gigtarársins
1992 boðar Gigtarfélag ís-
lands til málþings um gigtar-
sjúkdóma á Norðurlandi vestra
laugardaginn 20. júní 992 í
Dvalarheimili alraðra 1 hæð
við Sjúkrahús Skagfirðinga á
Sauðárkróki. Sex stuttir
fyrirlestrar verða fluttir á
þinginu og á eftir verða
pallborðsumneður. Fundarstjóri
verður Ólafur Sveinsson
læknir.
Þingið er öllum opið sem
áhuga hafa á gigtarsjúk-
dómum. Aðgangur og veit-
ingar eru ókeypis. Þingið
verður sett klukkan 13,30.
með ávarpi Ingibjargar Sveins-
dóttur formanns Gigtarfélags-
ins á Norðurlandi eystra. Þá
flytur Jón Þorsteinsson læknir
erindi um slitgigt, Ingvar
Teitsson læknir talar um
langvinna liðagigt, Frosti
Jóhannsson erindreki norræna
gigtarársins á Islandi fjallar
um norræna gigtarárið 1992
og um þjáningar af gigt og
viðhorf sjúklings.
Eftir kaffihlé víkur Jón
Þorsteinsson læknir að bein-
þynningu, Ingvar Teitsson
læknir fjallar um vefjagigt og
því næst eru pallborðs-
umræðurnar á dagsskrá.
Gert er ráð fyrir því að
þingslit verði um kiukkan
16,30.
SKATTSKRAR NORÐURLANDS-
UMDÆMIS VESTRA 1991.
AUGLÝSING UM FRAMLAGNINGU:
Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 veröa skattskrár í
Noröurlandsumdæmi vestra ásamt launaskattskrám fyrir gjaldárið 1991
lagðar fram til sýnis dagana 15. júní til og með 28. júní n.k.
Skattskrárnar liggja frammi á Skattstofunni Siglufirði og hjá
umboðsmönnum skattstjóra í öðrum sveitarfélögum.
Athygli er vakin á að enginn kæruréttur myndast
við framlagningu skattskránna.
SIGLUFIRÐI 9. JÚNÍ1992.
SKATTSTJÓRINN í NORÐURLANDSUMDÆMI VESTRA,
BOGI SIGURBJÖRNSSON.