Feykir - 17.06.1992, Blaðsíða 8
17. júní 1992, 23. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLÝSINGAMIÐILL!
Margrét Ingvarsdóttir vinnur að handverki í baðstofu
Glaumbæjar.
Glaumbæjarsafn 40 ára
Sl. sunnudag var þess minnst í
Glaumbæjarstofu að 40 áreru
liðin frá því sýning var fyrst
opnuð í gamla bænum í
Glaumbæ. Fjölmenni úr héraðinu
heimsótti Glaumbæ á sunnu-
daginn, liðlega 200 manns.
Eittbvað var um að fólk færi
að tilmælum safnvarðar.
Sigríðar Sigurðardóttur, og
kæmi ríðandi til kirkju að
gömlum syð.
Afmælishátíðin hófst með
messu í Glaumbæjarkirkju
kl. 14. Því næst bauð stjórn
safnsins gestum til kaffi-
veitinga í Glaumbæjarstofu.
Inni í gömlu baðstofunni
voru nokkrar konur við iðju
sína og félagar úr Harmó-
nikkufélagi Skagaíjarðar komu
í heimsókn, þöndu nikkumar
og fylltu bæinn af tónlist.
Jón Sigurðsson bóndi og
alþingismaður á Reynistað
var helsti hvatamaður að
stofnun Glaumbæjarsafns.
Vann hann að því ljóst og
leynt frá árinu 1936 að
bærinn í Glaumbæ yrði
friðlýstur.
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga frá kl. 9.15 -16.00 ■ AfAPA M Landsbanki
Sími35353 i Wk Islands Banki allra landsmanna
Vorfundur á Skaganum
Umtalsvert
tap á
Miklalaxi
Um 50 milljóna króna halli
varð á rekstri laxeldisstöðvar-
innar Miklalax í Fljótum á
síðasta ári. Er aðalástæða
hans talin bár fjármagns-
kostnaður samfara erfiðri
skuldastöðu, ásamt því að
markaðsverð á laxi erog hefur
verið lágt.
Miklalaxmenn eru samt
bjartsýnir á að rekstur
stöðvarinnar eigi eftir að
batna á næstu misserum.
Aðstæður til eldis hafa
stórbatnað með bættum
varmabúskap, eftir að heitt'
vatn var lagt frá borholu á
Lambanesreykjum í mat-
fiskeldið við Hraunakrók. Þá
hefur varnraskiptum verið
kornið fyrir við kerin og
nýtist heita vatnið enn betur
við það. Vaxtarhraði fisksins
hefur aukist um allt að 65%
og framleiðslukostnaður minnk-
að stórum. Markaðsverð
fyrir Iax í dag er innan við 200
krónur á hvert kíló og er það
enn talsvert undir fram-
leiðslukostnaði.
Vorfundur héraðsnefndar Skaga-
fjarðar verður haldinn á
föstudaginn kemur, 19. júní.
Héraðsnefnd fundar að þessu
sinni í Skagaseli, en nefndin
hefur bryddað upp á þessari
nýbreytni undanfarið að funda
út um héraðið. Aður voru
fundir héraðsnefndar, og þar
áður sýslunefndar, ætíð haldnir
á Sauðárkróki.
Tveir síðustu fundir nefndar-
innar voru í Miðgarði í
Varmahlíð og Argarði í
Lýtingsstaðahreppi.
„Okkur finnst það ofur
eðlilegt að fundirnir séu
Þau voru hcppin hjónin á
Sauðárkróki sem hrepptu nú
um helgina 1. vinning Lottós-
ins, sem var þrefaldur að
þessu sinni, alls 12,757
milljónir. Þetta var þriðji
hæsti vinningur, sem dreginn
hefur verið út síðan Lottóið
hóf göngu sína.
Það er skemmtileg tilviljun
að þrír stærstu vinningarnir í
Lottóinu hafa allir komið
hingað í kjördæmið, og þar af
haldnir sem víðast um
héraðið, og héraðsnefndar-
menn heimsæki þannig sveit-
ir hvors annars. Það er t.d.
kominn tími til að þeir
héraðsnefndarmenn sem ekki
hafa komið á Skagann, fái að
sjá hvernig hann lítur út”,
sagði Magnús Sigurjónsson
framkvæmdastjóri héraðs-
nefndar. Ekki er reiknað með
að nefndin fari í „sætsýn” um
Skagann, þar sem gert er ráð
fyrir að ekki veiti af tímanunr
til fundar. Héraðsnefndar-
fundir taka oft æðilangan
tíma.
tveir þeirra á Krókinn. Sá
hæsti rúmlega 15 milljónir
fór til einstæðrar móður á
Siglufirði sl. vetur, en
veturinn á undan komu 13,6
milljónir í hlut hjóna á
Sauðárkróki.
Sauðkrækingar og Skag-
firðingar hafa verið mjög
sigursælir í Lottóinu gegnum
tíðina. Ekki alls fyrir löngu
kom t.d. rúmlega sex
milljónavinningur í Blönduhlíð.
Einn brefaldur á Krókinn
Peningamenn sækjast ekki eftir
kvótalausum jörðum:
Sama jörðin seld
þrisvar á árinu
Ekki virðist heiglum hent að
selja kvótalitlar jarðir í dag,
eða kannski öllu hcldur fá
ábyrgan kaupenda að slíkum
eignum. Það heyrir sjálfsagt
til einsdæma að jörð í
Skagafirði hefur verið seld
þrisvar sinnum á síðustu 12
mánuðum. Tvisvar hafa kaup-
in gengið til baka, jarðar-
eigandanum hefur fylgt sú
dæmalausa óheppni að í bæði
skiptin hafa aðilar átt í hlut
sem ekki reyndust borgunar-
menn þegar til átti að taka.
Um er að ræða jörðina
Skálá í Sléttuhlíð, ágætisjörð
en með nánast engan kvóta.
Hana keypti fyrir rúmu ári
ævintýramaður mikill, einn
svokallaðra „Thailandsfar-
anna þriggja”. Voru viðskipti
þessi, sem enduðu með
ósköpum, rakin í fréttagrein
í Feyki á síðasta hausti. Fyrir
nokkrum mánuðum tókst
síðan að selja jörðina aftur.
Sá kaupandi stóð ekki betur
við sínar skuldbindingar en
sá fyrri, og var borin af
jörðinni í síðustu viku. Var
sjálfur reyndar ekki við-
'staddur þegar gjörðin fór
fram.
En nú hefur Skálá verið
seld í þriðja sinn. Ætla mætti
að salan gengi betur eftir nú
en í tvö fyrri skipti.
feykjur
Tóm hilla
Sjómannadagurinn skipar
háan sess í hugum Skag-
strendinga og er eins konar
þjóðhátíðardagur staðarbúa.
Eftirvæntingin er ekki síst í
kringum kappróðurinn. Að
þessu sinni eygðu starfsmenn
vélaverkstæðisins þá von að
eignast bikarinn sem keppt er um
til eignar. Þeir höíðu unnið
hann fjórum sinnum samtals
og vantaði því aðeins einn
sigur upp á. Haft var á orði
að þeir á verkstæðinu væru
sannfærðir um að þeir
myndu sigra í þetta sinn.
Gárungarnir á Ströndinni
héldu því fram að Karl
Berndsen foringi þeirra verk-
stæðismanna væri búinn að
smíða hillu úr rústfríu stáli,
sem ætluð væri bikarnunt.
Öll innréttingin í stofunni
væri miðuð út frá bikarnum.
Þegar síðan ljóst var að
vélaverkstæðismenn yrðu af
sigrinum þetta árið, heyrðist
einhver se&ja: „Jæja þá
verður Kalli að breyta öllu í
stofunni hjá sér”.
Símanum mótmælt
Á ferðalögum rifja góðir
leiðsögumenn oft upp sögur
eða viðburði sem tengjast
þeim stöðum sem fyrir augu
ber. Á ferð um Skagafjörð
fyrir helgina var Haukur
Hafstað frá Vík leiðsögu-
maður. Haukur rifjaði upp
skemmtilega sögu sem tengist
hvamminum ofan við Víði-
mýrarkirkju.
Það mun hafa verið í
byrjun aldarinnar þegar
áform voru uppi um lagningu
síma til Islands. Skagfirðingar
sem fleiri voru margir hverjir
mótfallnir símanum. Efnt
var til undirskriftasöfnunar
um héraðið á móti síma-
lagningunni. Sendimaður sá
sem trúað var fyrir þessum
dýrmætu skjölum, áði við
Víðimýri á leið sinni suður á
þingið.
Þetta kvöld á Víðimýri
hitti sendimaður vin sinn sem
var að koma að sunnan.
Gengu þeir saman upp í
hvamminn og áttu þar
skemmtilega nótt. Um morgun-
inn þegar sendimaður vakn-
aði að nýju og ætlaði að halda
áfram för sinni suður á
hinn dýrmæta farm. Félag-
arnir höfðu ekki gætt að
agarnir höfðu ekki gætt að
gleðinnar dyrum um nóttina
og allar undirskriftir Skag-
firðinga móti símanum glat-
ast þarna í hvamminum.