Feykir - 16.09.1992, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Starfsfólki sláturhúss KS
fækkað um rúmlega 20 manns
Sláturdilkum fækkar víöa um 5%
Vel fer um hestana í gámnum, sem er ekkert annað en
færanlegt hesthús.
Hrossaútt lutningur frá Sauðárkróki:
í færanlegu hest-
húsi til Noregs
Við skil sláturloforða nú í
haust, gera bændur ekki ráð
fyrir þeim 20% flata niður-
skurði sem stjórnvöld hafa
boðað. Slátrun er hafin í
öllum húsum á svæðinu, hefur
verið að byrja síðustu daga.
Eftir sláturloforðum að dæma
virðist sláturdilkum fækka í
haust um 5% víðast. Auðvelt
hefur reynst að fá fólk til
starfa á sláturhúsunum, og
víðst hvar hafa færri komist að
en vilja, t.d. mun færri hjá
KVH á Hvammstanga að
sögn Guðmundar Gíslasonar
sláturhússtjóra.
I sláturhúsi KS á Sauðár-
króki hefur starfsfólki verið
„Það er sjáanlegt að enn eru
til menn sem geta tekið til
hendinni. Það er ekki nema
rétt vika síðan farið var að
heinsa til í rústunum. Þá var
ekkert eftir nema berstrípaðir
veggirnir, en kýrnar voru
mjólkaðar í fjósinu í gærkveldi
og voru á sínum básum i nótt”,
sagði Sigurður Þorsteinsson
bóndi á Skúfsstöðum í samtali
við Feyki í gærmorgun. Aðeins
tók tæpa viku að koma þaki á
30 gripa fjósið sem brann til
kaldra kola í síðustu viku.
Sigurður var fullur þakk-
lætis til byggingarflokksins
og sveitunga sinna sem veitt
hafa lið eftir að óhappið átti
fækkað verulega, eða um
rúmlega 20 manns, þannig að
einungis 70 manns starfa að
slátrun á þessu hausti. Að
sögn Árna Egilssonar slátur-
hússtjóra er þessi fækkun
starfsfólks möguleg með því
að minnka dagsslátrun, og
einnig hefur gærusöltun
verið hætt. Gærurnar eru nú
fluttar beint í sútunarverk-
smiðju þar sem þær eru
saltaðar. Slátrað verður 26.500
dilkum hjá KS í haust, 1500
færri en í fyrra. Áætlað er að
dilkaslátrun ljúki 16. októ-
ber.
Hjá KVH á Hvammstanga
hófst slátrun í gær. Slátur-
sér stað. „Það eru þeir
Knútur Aadnegaard og Gýgjar-
hólsbræður, Magnús og
Sigurður sem hafa stjórnað
framkvæmdum. Eftir er að
einangra og smiða milligerðir,
og síðan er meiningin að fara
í hlöðuna af sama hraða,
strax og hún verður laus af
teikniborðinu. Það þýðir
ekkert annað en vera bjart-
sýnn og búast við þokkalegu
tíðarfari nú í haust. Þú mátt
gjarnan koma á framfæri
kæru þakklæti frá okkur
hjónunum og kúnum”, sagði
Sigurður á Skúfsstöðum, sem
sér nú fram á bjartari daga.
loforð nema tæpum 34.000,
sem er tæplega 2000 dilkum
minna en í fyrra. Þar er
einnig gert ráð fyrir að
dilkaslátrun ljúki 16. október.
Hjá KH á Blönduósi hófst
slátrun líka í gær. Slátur-
loforð námu tæpu 31.000,
sem er um 5% fækkun frá
síðasta ári. Dilkaslátrun á
Blönduósi mun líklega standa
rétt fram yfir 20. október, að
sögn Ragnars Inga Tómas-
sonar hjá KH.
Á svipuðum tíma mun
einnig ljúka slátrun hjá
Slátursamlagi Skagfirðinga.
Þar nema sláturfjárloforð 14
þúsundum, sem er svipað og í
fyrra. „Þetta er samt blendin
gleði, því fækkun hjá bænd-
um er fyrirsjáanleg. Þannig
að það verður minna sem
kemur til slátrunar næsta
haust”, sagði Gísli Halldórs-
son sláturhússtjóri. Slátrun
hófst hjá slátursamlaginu
fyrir rúmri viku.
í fyrrakvöld fóru í skip á
Sauðárkróki 17hrosssemseld
hafa verið til Noregs. Hrossin
voru flutt í sérútbúnum gámi
til hrossaflutninga. Þetta var
þriðja ferð þessa færanlega
hesthúss á þessu sumri, og sú
fyrsta frá Sauðárkóki. Mein-
ingin er að einn farmur í viðbót
að minnsta kosti fari frá
Króknum á þessu hausti.
Hrossin 17 voru frá fjórum
bæjum í Viðvíkursveit: Vatns-
leysu , Ásgeirsbrekku, Hof-
stöðum og Hofstaðaseli og
frá Úlfsstöðum í Blönduhlíð.
I tveim fyrri ferðunum voru
eingöngu hross frá Vatns-
leysu, 30 talsins. Að sögn
Jóns Friðrikssonar á Vatns-
leysu sögðu kaupendur hross-
anna ytra að þeir hefðu aldrei
séð jafn vel búið um hross í
flutningi og í þessu færanlega
hesthúsi, sem er það fyrsta
með þessari útfærslu, smíðað
í samvinnu þeirra Vatnsleysu-
og Hofstaðaselsmanna.
Hrossunum varskipað um
borð í Arnarfell. í Reykjavík
tók Dísarfell við farminum
og flutti hann til Moss í
Noregi. Jón á Vatnsleysu
sagði að sérsmíðaði gámur-
inn auðveldaði útflutninginn,
menn gætu nú fiutt út hross
hvar sem er og hvenær sem
er, auk þess sem ódýrara væri
að koma hrossunum í skip
hér heima en í Reykjavík.
Tvö skip yfirgefa flotann
Tvö skip úr flota Sauðkræk-
inga sigldu úr höfninni í
síðasta sinn á nýliðnum
dögum. Röstin skip rækju-
vinnslunnar Dögunar sigldi
burt á þriðjudeginum fyrir
viku og Skagfirðingur hélt úr
höfn á sunnudag áleiðis til
Noregs.
Það var Grandi í Reykja-
vík sem keypti Röstina ogfer
skipið líklega í úreldingu.
Það var hinsvegar norsk
skipasmíðastöð sem fékk
Skagfirðing í skiptum fyrir
skipið sem verið er að smíða í
stað Vigra. Að sögn Einars
Svanssonar framkvæmda-
stjóra Fiskiðjunnar verður
Skagfirðingur í notkun áfram,
ef ekki sem fiskiskip, þá sem
sjúkra- og björgunarskip
fyrir norsku borpallana. Lög
sem sett voru eftir borpalls-
slysið fyrir nokkrum árum,
kveða á um að eitt sjúkraskip
skuli staðsett við hvern pall.
Lest Skagfirðings yrði þá
hólfuð niður fyrirsjúkrarúm.
Skúfsstaðir í Hjaltadal:
Fjósið reist upp úr
brunarústum á viku
HCTch?íii uft—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SlMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
SítfMbílaverkstæói 1999
ÆXXSlM. sími: 95-35141
Sæmundargata 1 b 550 Sauðórkrókur Fax: 36140
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN