Feykir


Feykir - 16.09.1992, Blaðsíða 6

Feykir - 16.09.1992, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 31/1992 G E (T ISSAGA '■»: Feykir fyrir 10 árum 1) Ásmundur hærulangur setti bú að Bjargi mikið og reisulegt. Son áttu þau Ásdís, er Grettir var kallaður. Grettir óx upp að Bjargi, þar til hann var tíu vetra gamall. Ásmundur bað hann starfa nokkuð. Grettir sagði sér það eigi mundu vera vel hent og spurði þó, hvað hann skyldi gera. Ásmundur svarar: „Þú skalt gæta heimagása minna”. Grettir svarar og mælti: „Lítið verk og löðurmannlegt”. 2) Síðan tók Grettir við heimagásunum. Þær voru fimm tugir og með kjúklingar margir. Eigi leið langt, áður honum þóttu þær heldur bágrækar. Nokkru síðar fundu förumenn kjúklinga dauða úti og heima- gæsir vængbrotnar. - „Fást mun þér verk annað”, sagði Ásmundur. Fleira veit sá fleira reynir”, sagði Grettir, „eða hvað skal ég nú gera?” Asmundur svarar: „Þú skalt strjúka bak mitt við eld, sem ég læt jafnan gera”. Grettir heldur þessum starfa. Það var eitt kveld, að Grettir skyldi hrífa bak Ásmundar, að karl mælti: „Nú muntu verða af þér að draga slenið, mann- skræfan”. Grettir segir: „Illt er að eggja óbilgjarnan”. Ásmundur mælti: „Aldrei er dugur í þér”. Grettir sér nú, hvar stóðu kambinn og lætur ganga ofan eftir baki Ásmundar. Hann hljóp upp og varð óður við og vildi ljósta Gretti. 4) Nokkurri stundu síðar talaði, Asmundur til, að Grettir skyldi geyma hrossa hans. Grettir kvað sér það betur þykja en „Þá skaltu svo að fara”, sagði Ásmundur, „sem ég býð þér. Hryssu á ég bleikálótta, er ég kalla Kengálu. Hún er svo vís um veðráttu og vatnagang, að það mun aldrei bresta, að þá mun hríð eftir koma, ef hún vill ei á jörð ganga. Grettir svarar: „Þetta er kalt verk og karlmannlegt”. Þrynur Skagafjarðarmeistari Þrymur tryggði sér í fyrra- kvöld sigur í héraðsmóti UMSS í knattspyrnu. Þrymur sigraði iið Neista frá Hofsósi í úrslitaleik með tveimur mörkum gegn engu. Neisti varð í öðru sæti á mótinu og b-lið Tindastóls í því þriðja. Árni Friðriksson kom Þrym yfir gegn Neista, með marki í fyrri hálfleik. Seint í síðari hálfleik bætti Ægir Arnarsson öðru marki við. Urslit annarra leikja í mótinu urðu þau að Neisti vann Tindastól b, sem skipað var öldungaliði félagsins, 6:2. í fyrsta leik mótsins gerðu Þrymur og Tindastóll b jafntefli, 2:2. Tindastóll dró a-lið sitt úr keppni á síðustu stundu. Uppskera sumars Þegar uppskera sumarsins er skoðuð, kemur i ljós að okkar nýja bæjarstjórn þarf að fá frið (Hólahátíð) svo hún geti tamið hinn ólma fák til kosta (Landsmót) takist það er hægt að setjast virðulega meðal öldunga á rökstóla (Fjórðungsþing) og bíða óhræddur eftir gor- mánuði (sláturtíð). Þá er lagður góður grundvöllur að glæstri framtíð (skólarnir) því fræði bíður vorsins (dans og dimmar nætur). Eg þakka gott sumar. Hilmir Undir Nöfum. Rakari á Tangann Stöðugt eykst þjónustan á Hvammstanga. Nýlega kom hingað tannlæknir og er svo mikið að gera hjá honum, að hann segir að það sé meira en nóg. Hann sér um tannvið- gerðir á öllum íbúum Vestur- Húnavatnssýslu og íbúum Bæjarhrepps í Strandasýslu að auki. í síðasta Feyki var sagt frá opnun nýrrar sundlaugar og gufubaðstofu. Aðsókn hefur verið með eindæmum góð og fólk á öllum aldri synt og ósynt, hefur drifið sig í laugina sér til heilsubótar. Og það allra nýjasta! Rakari er kominn á staðinn og ætlar að opna rakarastofu á næstunni við Höfðabraut- ina. Má búast við að menn verði ekki eins úfnir um kollana og hárvöxtur ekki eins villtur á hökunni og nú er, heldur verði þeir nýrakaðir og nýklipptir alla daga. HK. Undir ffjögur Feykir hefur hlerað að stjórn Steinullarfélagsins hafi ný- verið kynnt sér væntanlegar veiðhækkanir á stunguskóflum í kaupfélaginu, en þær munu enn vera til á gamla verðinu. Vetrarstarf áhugahóps um alhýöulist Áhugahópur um alþýðu- list er farinn að huga að vetrarstarfinu. Eins og í fyrra ætlum við að bjóða upp á ýmiss námskeið. Þar er fyrst að telja að sótt hefur verið til félagsmálaráðuneytis að fá Þuríði Magnúsdóttur með námskeið sem heitir, ,,frá hugmynd til framkvæmdar”. Vonumst við til þess að það nái fram að ganga. Seinni partinn í nóvember verður kennt að steypa biskupskerti og í janúar tólgarkerti. Kennsluna ann- ast listakonan Hadda frá Akureyri. Þá verða Anna, Marta og Sólveig með tóvinnunámskeið, en þau voru vinsæl sl. vetur. Jódís á Veðramóti mun kenna skógerð (sauðskinns- skó). Svo getum við boðið upp á námskeið í körfugerð og þar kennir Karin Svein- björnsdóttir, í 16 tíma sem deilast í fjögur skipti. Svo er meiningin að halda fram- haldsnámskeið í útskurði í janúar. Það má geta þess að þeir sem voru á útskurðar- námskeiðinu í fyrra geta pantað efni til útskurðar hjá ASH keramiki Lundi. Ekki er búið að tímasetja neitt af þessum námskeiðum en það verður gert um leið og við vitum um áhuga fólks. Fólk er hvatt til að hringja og láta skrá sig. Upplýsingar gefa Marta Magnúsdóttir Stóra-Vatnsskarði í síma 38152, Anna Kristjánsdóttir Víðimýri í síma 38167, Anna S. Hróðmarsdóttir Lundi í síma 38031, Elínborg Bessa- dóttir Hofstaðaseli í síma 36555, Margrét Ingvarsdóttir Ytri-Mælifellsá í síma 38054 og Þórey JónsdóttirKeflavík í síma 36548. Ágætis aðstaða er á Laugarbóli í Lýtingsstaða- hreppi og þangað viljum við gjarnan fá fleiri konur. Þarer vefstóll með mottuuppistöðu, band handprjónavél, tveir rokkar, kembivélar og það sem þarf til tóvinnu. Fyrsta mánudagskvöld í hverjum mánuði höfum við vinnukvöld. Hittumst þá með rokkana okkar eða hverja þá handavinnu sem okkur líkar. Verður fyrsta vinnukvöldið á Laugarbóli mánudaginn 5. okt. nk. kl. 21. Það næsta verður í kjallara Hofstaðakirkju 2. nóvember á sama tíma og vonum við að sem flestar konur sýni þessu áhuga, komi og sjái hvað fram fer hjá okkur. Við viljum gjarnan fá fleiri konur í hópinn og húsrýmið er fyrir hendi í Laugarbóli til ýmiskonar starfsemi. Anna S. Hróðmarsdóttir.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.