Feykir - 25.11.1992, Qupperneq 4
4 FEYKIR 41/1992
„Þrifalegur bær og vingjarnlegt fólk"
Útsendarar Feykis heilsa upp á skipverja rússneska togarans
í ekki fjölmennara byggó-
arlagi en Sauóárkróki
vekur það jafnan athygli
þegar hópur fólks kemur í
bæinn. Munar þá um
minna en áhöfn rússneska
togarans sem stödd var
hér í síóustu viku og taldi
73. Skipverjarnir voru
líka mikió á ferðinni um
bæinn og skáru sig nokk-
uó úr. Þaó fór ekki á milli
mála aó aóalumtalsefni
Króksara í síóustu viku
voru bílaviðskipti áhafn-
anneólima og fregnir af
kjörum þeirra og lífsvið-
urværi sem í óstaófestum
fréttum bárust um bæinn.
Það var líka greinilegt aó
þessir gestir nutu meó-
aumkunar margra bæjar-
búa, enda ekki hægt ann-
aö en kenna í brjósti um
þessa menn, sem meó
stjömur í augum grand-
skoóuóu bílabeyglur sem
safnaó hafói verió saman
á hafnarbakkanum, og
sumar hverjar höföu legió
í bílabingum um héraóiö
til fjölda ára.
En forvitnilegt væri að vita
með hvaða augum gestimir litu
Krókinn og íbúana. Með það í
huga ákvað blaðamaður Feyk-
is að líta um borð í rússneska
skipið. Og þar sem rússnesku
kunnáttan er ekki fyrir hendi
var ekki um annað að ræða cn
útvega túlk. Nafn Geirlaugs
Magnússonar kennara í Fjöl-
brautaskólanum kom þar fljót-
lega upp, en Geirlaugur dvaldi
í Moskvu um sex mánaða
skeið fyrir 25 árum, eða
skömmu eftir að ballaðan
„Nótt í Moskvu” hafði farið
sigurför á vinsældalistum um
allan heim. Geirlaugur tók
hinsvegar dræmt í að gerast
túlkur, var hræddur um að hafa
glataó rússneskukunnáttunni.
Lét hann þó tilleiðast við
eftirgangssemi blaðamanns, og
vitaskuld kom það í ljós strax
og Geirlaugur hitti áhafnar-
meðlimi á bryggjunni, að fátt
var gleymt. Það var rétt eins og
hann hefði komið af Rauða
torginu fyrir fáum dögum eftir
að hafa staðið í dægurþrasi þar
um nokkurt skeið.
Boðið til káetu
Við landganginn sagði Geir-
laugur skipverjum erindi okkar.
„Bíðið andartak, skipstjórinn
er á bílasölunni” sögðu þeir.
Þetta kom túlknum ekki á
óvart. „Það er lenska hjá þcim
að yfirmennirnir eigi algjör-
lega að ráða ferðinni”, sagði
hann, en ekki leið á löngu þar
til okkur var boðið um borð og
einn af þessum vingjarnlegu
náungum bauð til káetu. Þetta
reyndist vera vélstjóri um
borð, Vladimir Vdovichenko
að nafni. Valdimar bauð strax
upp á kaffi og fágaða sígarettu-
tegund og Geirlaugur bauð á
móti franska eðal-vindlinga.
Sá rússneski, sem greinilega
þótti mikið til tóbaks koma,
þáði og náði síðan í pakka af
ekta rússneskum vindlingum
sem hann sýndi okkur hlæj-
andi. Eftir umbúðunum að
dæma voru þær ekkert sér-
stakar, enda sagði túlkurinn
þær að hálfu lcyti pappa og
góðan eldsmat.
Þrifalegt var um að litast í
káetunni, sem og á göngum
skipsins. A skápshurð í káet-
unni gaf að líta svart/hvíta
mynd af stúlku, fáklæddri, eins
og algengt er í vistarverum
Túlkurinn Geirlaugur Magnússon í káetunni ásamt þeim Vladimir Vdovichenko vélstjóra
og Ivan Popof stýrimanni.
sjómanna. Valdimar tók gler-
krukku af borðinu sem hann
fyllti með vatni. Dífði síðan
ofan í krukkuna rafelimenti, er
sá um að hita vatnið í kaffið.
Daglaunin
120 krónur
I fyrstu var rætt drjúga
stund um ástandið í Rússlandi
núna, sem Valdimar sagði
ckki gott og mun verra eftir
fall Sovétríkjanna að því leyti,
að þjóðarbrotin, sem áður
bjuggu í sátt deildu nú hart.
Efnahagslega hefði staðan
versnað einnig, mikil vcrð-
bólga geysaði og verðlag hefði
þrefaldast á hálfu ári. Launa-
kjör væru bág. Til að mynda
hefði hann í föst daglaun tvo
dollara, eða 120 krónur íslensk-
ar, en bónus væri grciddur
þegar vel gengi. Þessar launa-
tölur segja reyndar ekki alla
söguna, þar sem ljóst er að um
allt annaó verðlagssvæði er að
ræða en viðgengst í Vestur-
Evrópu. Valdimar borgar t.d. í
húsaleigu 30 krónur á mánuði,
en húsnæðið sem hans fjögurra
manna fjölskylda þarf að gera
sér að góðu, er aðeins eitt
hcrbergi og eldhús.
Undrast
verðlagið
I hópinn bættist fljótlega
sessunautur Valdimars, Ivan
Popof stýrimaður. Þeir eru
báðir Ukraínumenn og hafa
búið í Murmansk í Rússlandi
um skeið, en þaðan er skipið
gert út. Skipverjarnir eru hins-
vegar frá ýmsum löndum fyrr-
um Sovétríkja.
Nú var komió að hinni
langþráðu spurningu, hvernig
Krókurinn og bæjarbúar kæmu
gestunum fyrir sjónir. Þeir
félagar virtust hugsa fyrst og
fremst um verðlagið hér og
fannst það hátt, t.d. ávextir
margfalt dýrari en heima og
einnig skór og fatnaður í háum
verðflokki. Þetta var það sem
virtist koma þeim mcst á óvart
vió staðinn í samanburði við
Borgundarhólm í Danmörku,
en skipið hefur ekki lagt upp
afla í öðrum löndurn utan
heimalandsins.
„Bærinn er hreinlegur og
fólkið mjög vingjarnlegt”,
sögðu þeir og voru ekki í
neinum vafa urn að viðmót það
sem þeir mættu hér væri allt
annað en það sem þeirn var
sýnt á Borgundarhólmi. Geir-
laugur var fljótur að finna
skýringu á því af hverju dansk-
inum hafði ekki verið um hina
rússnesku gesti gefið. Rússar
hefðu nefnilega hertekið Borg-
undarhólm í lok seinni heirns-
styrjaldar og því hcfðu Danir
ekki gleymt.
Ekki komið heim
í fimm mánuði
Sjómennirnir voru grcini-
lega orðnir svolítió þreyttir á
útiverunni og var farið að
langa heini. Þeir höfðu ekki
komið heim til sín síöustu
fimm mánuði og voru ekki
vissir um að þeir yrðu heirna á
jólum og um áramót, en von-
uðust til þess. Aðspurðir sögðu
þeir að veiðarnar í Barents-
hafinu hcfóu gengið vcl fram-
an af en væru heldur dræmari
núna upp á síðkastið. Hvort
þeir hefðu áhuga fyrir að koma
hingað aftur, gáfu þeir lítið út
á. „Nei þeir vilja auðvitað
landa heima eins og sjómenn-
irnir hérna”, sagði Geirlaugur
og cftir að hafa rennt niður
ágætis kaffi, bjuggumst við til
brottfarar og á bryggjunni
kvöddu þeir Valdimar og Ivan
lm'KTTTT} KT ÆT? TTTÆT?
ÍVL/IY UJX iYvxÍxv ULr JoJjObJX.
Munið jólaföndurkvöldid í
Gallerí Villa Nova
f'óstudagskvöldid 27'. nóv. kl. 20
Verið velkomnar
Bílaflotinn sem safnað var saman við bílasöluna á hafnarbakkanum var í „skrautlegra"
lagi. Gárungarnir höfðu orð á því að stórlega hefði séð á bílabingunum í héraðinu
undanfarið. Rússnesku sjómennirnir keyptu á fjórða tug bíla, sem þeir síöan selja þegar
heim kemur og styrkja þannig efnahag sinn.
Þátttaka ókeypis
Hólmfríður og Þuríður