Feykir - 25.11.1992, Side 6
6 FEYKIR 41/1992
GRETTISSAGA
Teikningar: Halldór Pétursson
Texti: Kristján J. Gunnarsson
21. Tveir bræður eru nefndir
til, en þeir voru hinir verstu
illvirkjar. Hét annar Þórir þömb,
en annar Ogmundur illi. Þeir
voru meiri og sterkari en aðrir
menn. Þeir gengu berserksgang
og eirðu engu, þegar þeir
reiddust. - Eiríkur jarl gerði þá
útlæga fyrir endilangan Noreg.
Gekkst Þorfinnur mest manna
fyrir sekt þeirra.
í móti jólum fór Þorfinnur
heiman til annars bús síns.
Húsfreyja mátti eigi fara með
bónda, því að dóttir þeirra frum-
vaxta lá sjúk. Grettir var og
heima og átta húskarlar.
22. Nú kemur aðfangadagur
jóla. Bóndadóttur var þá batnað,
svo að hún gekk með móður
sinni. Leið nú á daginn.
Þá sá Grettir, að skip réri að
eyjunni og stefndi að naustum
Þorfinns. Og er skipið kenndi
niður, hlupu þeir fyrir borð, sem
á voru. - Grettir hafði tölu á
mönnum og voru þeir tólf saman.
Ekki þótti honum þeir friðlega
láta. Þeir hlupu að naustinu og
rykktu karfa Þorfinns fram á
fjörugrjótið. Síðan tóku þeir upp
sitt skip og báru inn í naustið.
23. Þá þóttist Grettir sjá, að
þeir myndu ætla að bjóða sér
sjálfir beina. Hann fagnaói þeim
vel og spyr foringja þeirra að
heiti. Sá kvaðst Þórir heita og
kallaður þömb og bróðir hans
Ogmundur og aðrir kunningjar
þeirra.
Grettir svarar: „Gæfumenn
miklir munuð þið vera, því að þér
hafið hér góða aðkomu. Bóndi er
heiman farinn með alla heima-
menn. Húsfreyja er heima og
bóndadóttir og er hér hvaðeina
þaö, er hafa þarf bæði öl og annar
fagnaður. Skal ég nú veita yöur
sem eg má og gangið heim með
mér.
24. Þeir báðu hann hafa þökk
fyrir. Grettir tók í hönd Þóri og
leiddi hann til stofu. Húsfreyja
var í stofunni og spurði hverjum
Grettir fagnaði svo vel.
Hann svarar: „Það er ráð hús-
freyja að taka vel við gestum.
Hér er kominn Þórir bóndi þömb
og þeir tólf sarnan".
Hún svarar: „Ekki tei eg pá
með bændum, því þeir eru verstu
ránsmenn og illvirkjar. Launar þú
nú illa Þorfinni það er hann tók
þig af skipbroti félausan". Grettir
svarar: Betra er nú fyrst að taka
vosklæói af gestunum en að
ámæla mér.
1. deild kvenna í körfubolta:
Tindastóll kominn í 2.-4. sæti
Ungt og efnilegt sundfólk í Tindastóli.
Mikill áhugi í sundinu
Mikið líf hefur færst í iðkun
sundíþróttarinnar á Sauðár-
króki að undanförnu. Ahug-
inn er niikill og stunda
æfingar af kappi um 30
krakkar á aldrinum 8-15
ára. Þau eldri æfa fimm
sinnum í viku og fóru níu
þeirra í æfingabúðir að
Laugarvatni um helgina þar
sem þau nutu leiðsagnar fær-
ustu sundþjálfara landsins.
Þjálfarar krakkanna eru þau
Sigurjón Þórðarson og Kristín
Kristjánsdóttir. Að sögn Sigur-
jóns er áhuginn og metnaður-
inn það niikill, að fimm æfing-
arnar í vikunni duga ekki fyrir
þau. Á héraðsmóti í sundi scm
haldið var nýlega sigruðu
Tindastólskrakkarnir í flestum
greinum og náðu ágætis árang-
ri. Til að mynda setti Olafur
Harðarson fjögur héraósmet,
en Olafur er einstaklega efni-
legur sundmaður.
Tindastóll ákveður
útgáfu Sportkorts
Sportkortið, nýtt greiðslu-
kort var kynnt á fundi hjá
Ungmennafélaginu Tinda-
stóli í síðustu viku. Stjórn
Sætur sigur á ÍR-ingum
ina, 56:53
um helg
Stúlkurnar í kvennaliði Tinda-
stóls í körfubolta gerðu það
gott um helgina þegar þær
báru sigurorð af IR í 1. deild-
inni. Þrátt fyrir slæma byrj-
un í leiknum sýndu stelpurnar
ódrepandi baráttuvilja, neit-
uðu að gefast upp og upp-
skáru samkvæmt því. Nýliðar
Tindastóls eru komnir með
átta stig og eru í öðru til
fjórða sæti, sem er mun betri
árangur en flestir bjuggust
við fyrir mótið.
Gestirnir mættu mjög
ákveðnir til lciks í Síkinu og
Tindastólsstúlkurnar virtust
hálf feimnar. Um miðjan
hálfleikinn hafði ÍR náð 13
stiga forskoti og hélst sá munur
til hálfleiks. Fram að þeim
tíma hafði ekkert gengið upp
hjá Tindastóli, en í síðari hálf-
lciknum snérist dæmið vió.
Bæði liðin léku maður á mann
vörn, og nú gengu leikkerfin
upp hjá Tindastóli, sem saxaði
á forskotið jafnt og þétt. Þegar
sex mínútur voru til leiksloka
náðu svo Tindastólsstúlkurnar
yfirhöndinni sem þær héldu
allt til leiksloka. Lokatölur
urðu 56:53.
Kristín Magnúsdóttir var
atkvæóamest hjá Tindastóli,
skoraði 19 stig. Bima Valgarðs-
dóttir kom næst með 13, Inga
Dóra Magnúsdóttir gerði 12 og
þær Kristjana Jónasdóttir og
Ásta Margrét Benediktsdóttir
skoruðu 6 stig hvor. Linda
Stefánsdóttir var lang stiga-
hæst hjá ÍR-stúlkunum með 23
stig.
USVH og Þrymur efstir
USVH og Þrymur komust best
frá fyrsta fjölliðamóti 2. deildar
Islandsmótsins í körfuknatt-
leik sem fram fór á Sauðár-
króki um helgina. Sjö lið að
norðan taka þátt í mótinu og
voru lciknar fimm umferðir að
þessu sinni. USVH og Þrymur
unnu alla sína leiki, USVH
með stærri mun og hafa því
Vestur-Húnvetningar forystu í
riðlinum sem stendur.
Urslit einstakra leikja á
mótinu urðu þessi:
USVH-USAH 60:43
USVH-Laugar 80:45
USVH-ÍFV 88:34
USVH-Dalvík 82:35
Þrymur-Laugar 103:41
Þrymur-UMFS 69:61
Þrymur-Glóðarfeykir 100:40
Þrymur- USAH 53:47
USAH-ÍFV 63:42
USAH-Dalvík 45:50
Glóðarfeykir-Laugar 22:45
Glóðarfeykir.-ÍFV 35:79
Glóðarfeykir-Dalvík 35:71.
Neisti stóð sig vel á
Laugamóti
Neisti á Hofsósi náði sínum
besta árangri til þessa á
Laugamóti í innanhússknatt-
spymu sem fram fór um helgina.
Neistamenn unnu aila sína leiki í
undanriðli. Töpuðu síðan ein-
ungis einum leik í milliriðli,
gegn sigurvegurunum HSÞ b, og
báru m.a. sigurorð af liði KS.
Neisti varð í fjórða sæti á mótinu
næst á eftir liði frá Laugum, sem
Hofsósingar töpuðu fyrir í
keppni um þriðja sætið.
Hvatarmenn komust ekki í
milliriðil að þessu sinni. Engin
lið frá Sauðárkróki,
Hvammstanga né Akureyri tóku
þátt í mótinu.
félagsins hefur ákveðið að
gangast fyrir útgáfu kortsins
og vonast til að sem flestir
stuðningsmenn félagsins nýti
sér það, og sem flest
fyrirtæki sjái sér hag í því að
gera samninga við félagið
vegna útgáfu Sportkortsins.
Undirtektir fundarmanna
voru góðar við Sportkortinu og
var ákvcðið að kynna það frek-
ar á meðal félagsmanna og
fyrirtækja í bænum. Það er
fyrirtækið Krcditkort hf sem
hefur gert samning við íþrótta-
hreyfinguna um útgáfu Sport-
kortsins. Forráðamenn í íþrótta-
hreyfingunni vona að þarna sé
komin ný og öflug fjáröflunar-
leið, sem gcrir stuðningsmönn-
um félaganna klcift að styðja
sitt félag á beinan hátt án
mikils kostnaðar og um leið
vcrði notkun kortsins til auk-
innar vcltu fyrirtækjanna. Þá
má geta þess að sama er hvar
handhafi kortsins gerir sín
viðskipti ef viðkomandi
vcrslun eða fyrirtæki er aðili að
santningi um Sportkort.