Feykir - 25.11.1992, Síða 8
25. nóvember 1992, 41. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLÝSINGAMIÐILL!
Einkareikningur
-framtíðarávísun
á góöa ávöxtun, ódýran yfirdrátt
og víötæka viðskiptaþjónustu!
CiímS OCOCO JT Landsbanki
5imi tfwwdw £ islands
ÆKEELÆB Banki allra landsmanna
Einar Esrason önnum kafínn á gullsmíðaverkstæði sínu.
Gullsmíðaverkstæði á
Hvammstanga
Brimvarnargarður á Blönduósi:
Kann að vera að fram-
kvæmdir hefjist í vetur
Einar Esrason, sem undan-
farin þrjú ár hefur gegnt
matseld í Vesturhópsskóla
auk hálfrar kennarastöðu
hjá konu sinni skóla-
stjóranum, Kristínu Árna-
dóttur, er þessa dagana að
opna guilsmíðaverkstæði í
Búlandi 3 á Hvammstanga.
Einar hyggst veita alhliða
gullsmíðaþjónustu auk þess
að forvinna ýmsan varning
fyrir aðra gullsmíði.
Einar hefur til þessa verið
með lítið verkstæði í kjallara
Vesturhópsskóla en flytur sig
nú um set í þéttbýlið. I haust
festi hann kaup á notaðri sam-
stæðu til steypu á góðmálm-
um, sem gerir kleift að fjölda-
framleiða nánast alla muni til
skartgripageróar og gullsmíói.
„Auk þess að hálfvinna muni
fyrir aðra gullsmíði, sem mér
sýnist að sé grundvöllur fyrir,
„Þetta er stór og holdmikill
þorskur. Eg hef ekki séð
svona vænan fisk í langan
tíma. Það er greinilegt að
fiskurinn hefur haft nægt
æti í Barentshafinu”, segir
Einar Svansson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar
um hráefnið sem Fiskiðjan
fékk af rússneska skipinu.
Skafti þurfti að hverfa af
veióum vegna óveðursins og
landaði á mánudag 40
tonnum eftir stutta veiðiferð.
hef ég hugsað mér að frant-
leiða ýmsa minjagripi og smá-
vöru til markaðssetningar yfir
ferðamannatímann. Sá varn-
ingur yrði ekki endilega úr
gulli eöa silfri, heldur alveg eins
úr ódýrari málmtegundum“.
Einar er gullsmiður að
mennt og hefur í 15 ár kennt
iðnina við Iðnskólann í Reykja-
vík, síðustu árin á vor- og
sumarönn í verklegri kennslu.
Eins og áður segir er kona hans
skólastjóri við Vesturhópsskóla
og hefur verið þaó síðustu þrjú
árin. „Eg er að vonast til að
geta skapað mér vinnu með
þessu og ætli þetta bjargist
ekki eins og þegar ég tók að
mér matscldina á sínum tíma.
Körlunum í skólanefndinni
leist ekkert á það til að byrja
með þegar ég sagðist ætla að
elda. En það lagaðist”, sagði
Einar að endingu.
Hegranes er að veiða karfa í
Rósagarðinum fyrir söludag
sem skipið á 3. desember.
Veiðar ganga þokkalega. Þá
er Skagfirðingur einnig á
veiðum fyrir vestan, en gert
verður hlé á veiðum skipsins
í vikutíma á næstunni, þar
sem ákveðið hefur verið að
lagfæra mótttökurýmið í
skipinu, klæða það með stáli
og þannig ná fram meiri halla
til að fiskurinn renni betur
inn á dekkið.
Óðum styttist í að opnuð
verði tilboð í gerð brim-
varnargarðs á Blönduósi, en
það verður gert 10. desem-
ber nk. Átta aðilar tóku út-
boðsgögn, þar af tveir úr
Ilúnaþingi, Viggó Brynjólfs-
son verktaki á Skagaströnd
og Steypustöð Blönduóss
ásamt nokkrum vörubif-
reiðastjórum í samvinnu við
Borgarverk í Borgarnesi.
Jafnvel er búist við að verkið
geti hafist í vetur, bjóði tíð-
arfar og aðstæður upp á það.
Efni í brimvarnargarðinn
verður væntanlega tekið úr
tveim námum. I landi bæjanna
Uppsala og Hurðarbaks í
„Ef eitthvað verður hróflað
við skipan sveitarfélaga í
sýslunni, held ég að réttast sé
að stíga skrefið til fulls og
gera alla sýsluna að einu
sveitarfélagi“, segir Jón Guð-
mundsson sveitarstjóri á
Hofsósi, en á fundi sveitar-
félaganefndar með sveitar-
stjórnarmönnum um fyrri
helgi var Jón sá eini sem lýsti
yfir eindregnum stuðningi
við þau stefnumið nefndar-
innar að hver sýsla í kjör-
dæminu verði eitt sveitar-
félag.
„Eg tek fram að þetta er
aðeins mín persónulega skoð-
un. Ég er mótfallinn hálfkáki
eins og því að skipta sýslunni í
þrjú sveitarfélög, sem þýddi að
við þyrftum áfram að vera með
eitthvert sameiginlegt kerfi
eins og héraðsnefndin er núna.
Ég held að annaðhvort sé að
vera með svona stórar sam-
einingar eða koma á fót þriðja
stjómsýslustiginu".
Jón segir greinilega hafa
komið í ljós á seinni árum að
litlu sveitarfélögin séu látin
gjalda smæðar sinnar. „Þetta
Sveinsstaðahreppi og Ennis í
Engihlíðariireppi. Ofeigur Gests-
son bæjarstjóri segir að menn
séu að vonast eftir að hagstætt
tilboð fáist í vcrkið en áætlað
er að það kosti 130-150 millj.
Á fjárlögum til brimvamar-
garðsins á þessu ári er varið 20
milljónum af hafnafé og 4
milljónum úr hafnarbótasjóði.
Blönduósingar vonast til að fá
ríflega fjárveitingu til fram-
kvæmda á næsta ári.
Fiskiónaðaríýrirtæki á Blöndu-
ósi em farin að búa sig undir að
stærri skip geti landað þar afla
allan ársins hring. Særún hefur
sótt um lóð fyrir vinnsluhús í
nágrenni hafnarinnar.
kemur fram í tekjuskipting-
unni í gegnum jöfnunarsjóð-
inn, að þau stærri fá hlut-
fallslega meira en litlu sveitar-
félögin. Síðan er ríkisvaldið æ
meira að hrifsa til sín völd frá
sveitarfélögunum. Slík til-
Um næstu helgi verður
haldið á Blönduósi óform-
Iegt Norðurlandsmót skóla-
lúðrasveita. Þar koma saman
um 250 börn og unglingar af
öllu Norðurlandi, og að auki
gestir frá Isafirði, nokkrir
krakkar úr lúðrasveitinni
þar. Mótinu lýkur með tón-
leikum í íþróttahúsinu eftir
hádegi á sunndag, þar sem
þrjár blandaðar stórsveitir
leika og einnig lúðrasveitir
einstakra skóla. Aðgangur
er öllum heimill og ókeypis.
Aó sögn Skarphéðins Einars-
sonar lúðrasveitarstjóra á
Hvammstangi:
Ný matvöru-
verslun opnuð
á næstunni
Fjölskyldur Guðbjörns
Breiðfjörðs og Ragnars
Stefánssonar hafa keypt
lager og innréttingar þrota-
bús Vöruhúss Hvamms-
tanga. Verður verslun opn-
uð að nýju um næstu
mánaðamót í gamla versl-
unarhúsi Sigurðar Pálma.
Guðbjörn Breiðfjörð
reiknar með að verslunin
muni bjóða nær eingöngu
upp á matvöru og hrein-
lætisvöru, að minnsta kosti
fyrst um sinn. „Við verðum
alla vega ekki með fatnað
eða neitt slíkt á boð-
stólum”, sagði Guðbjörn.
hneiging var í miklu minna
mæli þegar ég byrjaði í
sveitarstjórnarmálum fyrir 20
árum. Það er líklegra að stærri
sveitarfélög gætu betur staðið
þetta af sér en þau minni”,
sagði Jón Guðmundsson.
Blönduósi er Norðurlands-
mótið, sem einnig hefur verið
kallað „æfingabúóir” betur
sótt en oft áður, og væntan-
lega mun færast líf í bæinn
um helgina, þcgar rúmlega
200 krakkar bætast við.
Blásaramir ungu koma ásamt
kennurum sínum og farar-
stjómm til Blönduóss á föstu-
dagskvöldió. Síðan verður æft
á laugardeginum og fram að
hádegi á sunnudag og tón-
leikamir hefjast síðan kl. 13.30 í
íþróttahúsinu. Krakkarnir gista
í grunnskólanum og borða í
félagsheimilinu.
GÆÐAFRAMKÖLLUN
CÆOAFRAMKOLLUN
BÓKABTJÐ
BRYIÆJARS
Feitur fiskur úr Barentshafi
„Fylgjandi því að sýslan verði
gerð að einu sveitarfélagi"
segir Jón Guðmundsson sveitarstjóri á Hofsósi
Mót skólalúðrasveita á Blönduósi:
Bærinn að fyllast af
ungum blásurum