Feykir - 16.12.1992, Blaðsíða 4
4FEYKIR 44/1992
„Eins og fólki finnist engin
jól nema fara í skóginn"
Um 150 jólatré seld frá Skógræktinni í Varmahlíð
Þaó er orðið jólalegt um að
litast í gróðurhúsi skógræktar
ríkisins í Gróðrarstöðinni
Laugarbrekku í Varmahlíð.
Marta Svavarsdóttir starfs-
maður skógræktarinnar er búin
að taka í hús jólatrcin sem seld
verða frá skógræktinni á þessu
ári, en árlega eru seld um 150
tré frá Laugarbrekkustöðinni,
um 100 í jólatréssölunni í
stöðinni og síðan fær Skag-
firðingabúð um 50 tré. Skóg-
ræktin í Varmahlíð heyrir
undir skógræktina á Vöglum
og er miðlað tegundum á milli
þessara stöðva.
Marta velur jólatrén jafnan í lok
nóvember og tekur þau á hús, og
síðan fer í hönd snyrting og
frágangur þeirra fyrir söluna, cn
á hverju jólatré er t.d. fallegur
borði í fánalitunum, svo ekki
fari milli mála að hér sé ís-
lcnskt jólatré á markaðnum.
„Jú, jólin eru farin að nálgast
ansi mikið þegar ég byrja að
stússast í jólatrjánum. Ég þori
ekki annað en taka trén þetta
snemma, því við erurn nú svo
háð tíðarfarinu héma. Síðan er
hér heilmikið að gera síðustu
dagana fyrir jólin í jólatrés-
sölunni. Þetta er sama fólkið
sem kemur ár eftir ár og það er
alltaf að bætast við. Það er
eins og fólki finnist ekki nein
jól nema að koma hingað og
skreppa í skóginn”, sagði Marta,
en hún hefur verið fastur
starfsmaður skógræktarinnar
síðan Sigurður Jónasson fyrr-
verandi skógarvörður í Varma-
lilíð lést 1978, og Marta hafði
starfað í skógræktinni í mörg
ár áður.
Þegar blaðamaður Feykis leit við
í skógræktinni sl. fimmtudag
fékk hann að taka þátt í því
verkefni að velja jólatré fyrir
Skagfiröingabúð, tré úr rauð-
greni 3,5 metra á hæð. Á rölt-
inu með Mörtu um skóginn
komst hann að raun um hversu
gífurlegt verkefni það er að sjá
um skógrækt, grisja og hlúa að
ræktuninni svo tréin fái að
vaxa og dafna óhindrað. „Þetta
er óþrjótandi verkefni, og í
rauninni er ógjörningur að
komast yfir allt sem þyrfti að
gera, þó er ég með mjög dug-
legar aðstoðarstúlkur með mér
yfir sumarið”, sagði Marta.
Jólatrén eru merkt með borðum í íslensku fánalitunum svo að ekki fari milli mála að hér
sé íslenskt tré á markaðnum.
IBUARA NORÐURLANDIVESTRA!
EJþigvantarfallegajólagjöfþá líttu inn.
Ot7iÁlega mikið úrval afgjafavöm.
Hjá okkuifœi'ðþú pei'sónulega þjónustu.
Nj seneling afsatin náttkjólum ognáttfötwn.
Opið miðvikud. til kl. 22 oglaugairl. til kl. 22.
Leitið ekki langt yfír skammt,
...verslið þarsem úrvalið er.
Sauðárkróks Apótek
Aðalgötu 19 • Sími 35336 og 36784
Þarna er Marta búin að mynda bogasögina og brátt feilur
fallegt jólatré.
„Farin að finna fyrir
nálægð jólanna"
Segir Jóna Björk á Hveravöllum
„Ég er að baka smá-
kökurnar núna og maður er
svona rétt að byrja að finna
fyrir nálægð jólanna. Síðan
eigum við von á „Hveravalla-
skreppnum” Hafþóri Ferdinands-
syni með jólavarninginn til
okkar um miðja næstu viku.
Vió erum búin að panta allar
þær nauðsynjar sem við teljum
okkur þurfa yfir hátíðamar, og
það er náttúrlega óvcnjulegt
fyrir okkur að þurfa að hugsa
svona fyrir hlutunum í tíma, og
þar af leiðandi höfum við
hugsað meira út í jólahaldið cn
áður”, segirJónaBjörk Jónsdóttir
í vcðurathugunarstöðinni á Hvera-
völlum.
Jóna Björk er frá Kirkju-
bæjarklaustri og sambýlismaður
hennar Kristinn Gunnarsson er
Reykvíkingur. Þau tóku við á
síðasta sumri af þeini Grínii
Sigurjónssyni og Hörpu Guð-
brandsdóttur. „Við höfúm kunnað
nijög vcl við okkur það sem af
er, og þetta er alls ekki orðin nein
einangrun héma upp frá, sjálfsagt
er gestagangur meiri hér en á
mörg sveitabýli niðri í byggð.
Hingað hefur fólk komið um
hverja helgi, ncnia þær tvær
síðustu, og það vcrður ábyggi-
lega töluvcrður gcstagangur
hér í ferðamannaskálunum yfir
hátíðarnar. Það hcfur verið
snjólétt í haust og vélsleðafæri
kom ciginlcga ekki fyrr cn
fyrir hálfum mánuði. Snjóalög
eru svona um hálfan mcter
núna”, sagði Jóna Börk þcgar
Feykir sló á þráðinn til hcnnar
á föstudag. Þá var hún að ljúka
vió fjóróu smákökutegundina
og þá síðustu í jólabakstrinum.
SÍÐASTA BLAÐ FYRIR JÓL!
Síðasta blað Feykis fyrir jól og
jafnframt það síðasta á þessu ári,
kemur út þriðjudaginn 22.
desember.
Auglýsingar sem birtast eiga í
blaðinu þurfa að berast
fyrir helgina!