Feykir


Feykir - 16.12.1992, Blaðsíða 13

Feykir - 16.12.1992, Blaðsíða 13
44/1992 FEYKIR 13 "Þótti mér dýrindis jólagjöf" segir Daníel Pétursson á Hvammstanga skildir það aldrei hvað ég clskaði þig mikið“. Þetta var skcmmtilegur strákur, en hann hefur verið þetta mikið þroskaðri en ég. Kveðja í dalinn Nú er komið að þáttaskilum í lífi mínu. Ég gifti mig og var þar með farin úr Vatnsdalnum mínum eins og ég man hann. Við þessi kaflaskil verð ég cndilega að senda dalnum mínum kveðju. Mér fannst það líkast því að missa góðan vin sem ég get aldrei aftur talað við, þegar Marðarnúpur var seldur. Svona vænt getur manni þótt um stað sem þó er í rauninni ekki annað en ein bújörð. Ég á þcnnan stað í minningunni eins og hann var og mér þykir innilega vænt um hvem blett. En þegar jörðin er allt í einu seld einhverjum vandalausum þá er eins og maður standi yfir moldum vinar. Núna á ég ekkert þarna lengur. En eftir að bróðir minn, Jón Auðunn, seldi jörðina fyrir aðeins fáeinum árum síðan, dreymdi mig aftur og aftur að Þórhildur liðlega tvítug heimasæta á Marðarnúpi. ég gengi um allt og snerti á öllu, bæði utan dyra og innan. I draumnum fór ég einnig upp í gilið þangað sem ég hafði oft farið þegar aðrir lögðu sig á daginn í heyskapnum, og sat þar. Þangað höfóum við líka oft farið með gesti. Svona var ég mikið útispjót. Það var eins og ég væri að kveója og vissi þá að ég myndi aldrei aftur sjá Marðamúp og þannig mun það verða. „Þegar ég var að alast upp á Bergsstöðum á Vatnsnesi, var nú ekki mikið um jóla- gjafir, en aliir voru samt ánægðir á jólum. Þar eins og víðar þótti harla gott að fá kerti eða spil í jólagjöf. Einu sinni man ég þó eftir að ég var ánægðari en venjulega og hissa þegar upp úr jólapakkanum kom trébyssa með gúmmíteygju á, sem maður gat skotið lítilli ör úr á skotmark sem var tvo- þrjá metra í burtu. Þetta þótti mér alveg dýr- indis leikfang”, sagði Daníel Pétursson sjómaður sem kenndur er við Eyri á Hvammstanga. Daníel sagði að sér væri líka mjög minnisstætt þegar hann komst einhverra hluta vegna ekki á jólaballið í sveit- inni einu sinni. Hann fékk samt sendingu heim af jóla- ballinu, epli, og var það í fyrsta skiptió sem hann bragð- aói þennan jólaávöxt. „Ég kunni ekki að meta eplið þegar til kom, fannst það ekki gott á bragðið, og skirpti því út úr mér“. Finnst þá ekki fólki er ólst upp við svona aðstæður, óskaplegt bruðl í jólahaldinu í dag? „Mér finnst þetta gcngið út í svoleiðis öfgar að það nær engri átt. Það er svo mikið bruðl á öllum sviðum, allan ársins hring, ekki bara fyrir jólin. Mér finnst hálfskrýtið að stöðugt sé verið að safna erlendum skuldum til að lofa fólki að fara í frí crlendis eins og því sýnist'*. Sjómenn á Hvammstanga hafa tekið jólafríið með fyrra móti að þessu sinni og eru hættir rækjuveiðum í bili, þar sem veiði á Húnaflóanum hefur verið mjög dræm síð- ustu vikurnar. „Það kom fiskihlaup héma inn á fjöróinn um miðjan nóvember, alveg inn að Heggsstaðanesi. Okkur er ekki vel við fiskinn svona innarlega á firðinum, þó við viljum hafa hann hérna rétt fyrir utan, enda hvarf rækjan við þetta og hefur lítið sést af henni síðan“. Annars sagði Daníel að undanfarin ár hefói rækjan vcrið þétt á Flóanum og gengið vel að veiða hana. Gleðileg jól Gleðileg jól og farscelt komandi ár. Farsœlt komandi ár Þakka viðskiptin á árinu sem er að líða. Þökkum viðskiptin á liðnu ári Pedersen Ijósmyndaþjónusta Húsgagnaverslunin Hátún Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár —ICTch^íII ftp— Óskum öllum gleöilegra jóla ogfarsœls komandi árs. Þökkum viöskiptin á liönu ári. BRA UÐGERÐIN KRÚTT BLÖNDUÓSI Cjleðileffjót ojj farscett kpmandi dr Þökfum viðskiptin á liðnu ári jjjf ‘Kjötvaí Öleðileg jól FarsaeJf Lcoma^di ói^ ■pöUkum viðskipfin yffr' /?f) q liðnu Qt*i Við óskum viðskiptavinum okkar gledilegra jóla og gcefu á nýju ári með þökk fyrir viðtökurnar á liðnu hausti Hólmfríður og Þuríður Gallerí Villa Nova Óskum viðsláptavinum okkar gleðilegra jóla ogfarsœls komandi árs Þakka viðskiptin á árinu sem er að líða Hótel Varmahlið

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.