Feykir


Feykir - 03.03.1993, Blaðsíða 6

Feykir - 03.03.1993, Blaðsíða 6
6FEYKIR 8/1993 hagyrðingaþáttur 136 Heilir og sælir lesendur góöir. Sá er skorað var á í síðasta þætti, Gísli Rúnar Konráðsson, hefur brugðist vel við því. I fyrstu vísu hans fáum við nokkra framtíðarsýn úr hans umhverfi. Skagfirðinga leiðir liggja lífgleðinnar götum á og meðan sveitir bœndur byggja breytast nwn ei háttur sá. Eins og víða annars staðar hefur nokkuð verið rætt í Skagafirði nú að undanförnu um sameiningu sveitar- félaga. Heyrst hefur að ein af þeim hugmyndum sem fram hafa komið þar sé sameining Akra- Seylu- og Lýtngs- staðahrepps. Þegar Gísli velti fyrir sér því innleggi sem hver og einn mundi koma með við væntanlega samein- ingu, varð til eftirfarandi vísa. Úr Lýdó fengist landasull sem létta mundi stritið, í Seyluhreppi basl og bull hjá Blöndhlíðingum vitið. Af eftirfarandi vísu Gísla leyfi ég mér að draga þá ályktun að ánægja sé með þessa nýbreytni og nokkuð tryggt mcð skemmtilegt framhald á því. Með þakkarhug við þáttinn skil og þessu vísubroti, nœstan vil ég nefna til, nafna í Brekkukoti. Þá er næst vísa sem ég hef heyrt að sé eftir Jón Pétursson frá Eyhildarholti. Eru tildrög hennar þau að kona mun hafa beðið hann að gera um sig vísu. Ég hef kveðið fátt um fljóð fannst mig nœmleik bresta, en mér á tungu lag og Ijóð ná til góðra hesta. Þá minnir mig að ég hafi einhvern tíma séð að Kristján Olason á Húsavík sé höfundur eftirfarandi vísu. Aðdáun og undrun hafa aukið hjá mér jafnt og þétt þeir sem aldrei eru í vafa og alltaf vita hvað er rétt. Annar snjall hagyróingur á Húsa- vík, Karl Sigtryggsson, mun vera höf- undur að næstu vísu. Kannski hefur hún verið ort á Sæluviku. A Sauðárkróki söngur bestur sálum veitiryl þar er enginn minni en mestur minnstur er ekki til. Þá held ég að þcssi sé einnig eftir Karl. Drottinn lœtur skin og skúr skiptast á að vonum. Mér hefur lítið orðið úr öllu er kom frá honum. Halla Eyjólfsdóttir á Laugarbóli við ísafjarðardjúp er höfundur þcssarar vetrarvísu. Húmar að og hélurós hylur sérhvern glugga. O ég þrái yl og Ijós ekki kaldan skugga. Fallega er orðunum raðað saman í næstu vísu sem ég hcld aó sé cftir bróðir Höllu, Hreiðar Geirdal. Tíðin grána fremurfer frostið ána spennir hríðin gljána bitur ber birtu mána grennir. Það erkælan, sagði maðurinn scm kom kófsettur til kirkju á heitum sól- skynsdegi. Ekki veit ég hvort þar hefur farið fram hjónavígsla en við slíkan atburð mun Knútur Þorsteinsson hafa ort eftirfarandi vísu. Omœldféll í ýmsra skaut angan kossa þinna, en eginmaðurinn aðeins hlaut útþynningu hinna. Næstu vísu orti Knútur einnig við svipað tilefni og mun þar hafa verið nærri honum sjálfum höggvið. Oft mér Dísa yndi jók armlög heit ég þáði. Drottinn gaf og drottinn tók, í Dísu annar náði. Ein vísa kemur hér enn eftir Knút og rnun hún vera vera eftirmæli um samferóamann. Góða aldrei geymdi sál glóði lítt úr svaði, liróðugur hvern æviál óð á hundavaði. Oftast cru skiptar skoðanir um ágæti þcirrar ríkisstjómar er situr hverju sinni. Sú hlýtur að hafa verið af bctri sortinni sem fær eftirfarandi skeyti frá Gunnlaugi Péturssyni. Skeiðar til ég hef og hnífs en hvergi má við fórninni, að öllu hjarta eylífs lífs óska ég ríkisstjórninni. Eitt sinn að vetri til er mjög frost- hart var og svo mikill gaddur í jörðu að enginn lagði í að brjóta hann nema brýna nauðsyn bæri til orti Gunnlaugur svo. Þess ég eigi engan kost yls og krafta snaður, að komast niður fyrir frost fyrr én ég er daitður. Þá er góður endir á meðan svo kalt blæs að leita huggunar í þeirri hugsun scm Bjarni frá Gröf tileinkar eftirfar- andi vísu. Er vorið kemur verður gaman það veitir lífi nýjan þrótt. Og dagar halda höndum saman í hringdansi um miðja nótt. Veriói þar mcð sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Biönduósi s:(95)27154. Abending til forsætisráðherra og athugasemdir af gefnu tilefni Davíö Oddsson forsætisráðherra gcrir athugasemd í fréttablaðinu Feyki miövikudaginn 24. febrúar sl. viö tölu mína á fundi þeim er hann boðaði til í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 14. sama mánaðar svo og við grcinarkorn mitt er birtist í fréttablaðinu Feyki í framhaldi af fundinum. Vegna þessa vil ég taka fram eftirfarandi: Það er rétt að ég kom mcó mál mitt skrifaó á blað og hclði líklega farið betur að það hcfðu fleiri gert. Sökum takmarkaðs ræðutíma náði ég ekki að ljúka máli mínu, en mun þó hafa sagt nægilega mikið, og meira en mér var ætlað. Virðist ég hafa komið við við- kvæma málaflokka, þaö er skulda- stöðu þjóðarbúsins og atvinnu- leysið, utan þess að lýsa því hvcmig núverandi forsætisráðhcrra kemur mér æói oft fyrir sjónir. I framsöguræðu sinni taldi forsætisráðherra að uppeldi hans heföi tekist nokkuð vel og að hans mati ekki mistekist. Því miður hallast ég að því að eitt- hvað hafi farið úrskeiðis í upp- eldinu. Ég var að minnsta kosti alinn upp viö það að mcnn skyldu temja sér að fara með rétt mál og yrðu þeim á mistök hvort sem það væri i orði eða verki þá skyldu þeir vera þeir mcnn að vióurkenna mistökin. Þessi lífsnegla má ætla að sé forsætisráðherra mjög fjarstæð. Hann vióurkcnndi þó að hafa sagt að atvinnuleysi væri samkvæmt áætlun. Opinberar tölur sýna að atvinnuleysió í des- embermánuði 1992 var aö mcóal- tali 4,8% eða 6100 manns á land- inu öllu. A Norðurlandi vestra var það 5,8% á sama tíma. 1 yllrliti um atvinnuástandió, blað nr. 12/92 má lesa eftirfar- andi. „Síðasta virkan dag desem- bcrmánaðar voru 7000 manns á atvinnuleysisskrá á landinu öllu og hafa aldrci verið llciri síðan skráning atvinnuleysis hófst hér á landi með reglubundnum hætti“. Ennfremun „A árinu 1992 voru í heild skráðir rúmlega ein milljón atvinnuleysisdagar á landinu öllu. En hafa flestir orðið áður 586 þús- und árið 1990. Þctta jafngildir því að 3850 manns hafi aó meðaltali verið á atvinnuleysisskrá á árinu 1992 sem svarar til 3.0% af áætl- uðum mannafla á vinnumarkaði". Ennfrcmur má lcsa í blaói nr. 1/93 um atvinnuleysið nú í janúar: „Þannig má segja að atvinnu- leysið í heild hafii ekki fylgt eftir þeim reglubundnu breytingum sem venjulega má búast við frá desembcr til janúar. Hins vegar hcfur atvinnuleysisdögum fjölgað um 56% frá janúttr 1992, sem skýr- ist af öðru en árstíðasveifium". Gerir forsætisráðherra sér grein fyrir því böli cr fylgir atvinnu- lcysi, bæði fyrir viðkomandi ein- stakling svo og samfélagið í heild? Erlendar skuldir þjóðarinnar frá 1989 eru nákvæmlega í prós- cntutölu af landsframleiðslu eins og ég hélt fram á fundinum, og birti þærsíðan í Feyki. Um skulda- stöðu fyrri ára ræddi ég ckki. Skuldastöóuna í milljarða- krónum lékk ég uppgefna hjá Seólabankanum. Forsætisráðherra virðist hafa aðrar tölur handbærar um skuldastöóu þjóóarinnar. Hann ætti því að vera sá maður að birta þær og koma lciðréttingu þar um til réttra aðila, en ekki hrópa bara rangfærslur og vitleysa. Eitt get ég frætt núverandi for- sætisráóherra um, sem hann viróist eiga erlltt með aö skilja: Erlcndar skuldir hafa hækkað að krónu- tölu til nokkuð í hans ráðherra- tíð. 31. mars 1991 voru erlcndar skuldir þjóðitrinnar 179,5 milljarðar, þar af voru skuldir ríkissjóðs 60,7 milljarðar (gengi krónunnæ 50,59 mióað við dollar). 1 aprílmánuði 1991 er talió að skuldirnar hafi aukist unt 1,6 milljarð, þar af skuld ríksissjóðs um 0.6 milljarða. Núvcrandi ríkisstjóm undir forsæti Davíðs Oddssonar tók við völdum 1. maí þctta ár. Erlcndar skuldir þjóðarinnar í árslok 1992 voru 228,1 milljarður, og hafa því hækkað um 46 milljarða. Hækkun erlendra skulda er því umtalsvcrð í mill- jörðum á 18 mánuðum. Það skiptir ckki máli hvort þær hækkuóu vegna nýrrar lántöku cóa vcgna gengisbreytinga, því þaó þarf að grciða skuldirnar. I próscntutölu af vergri landsframlciðslu hafa crlcndæ skuldir hækkað vcmlega. Talið aö þær vcrði 56,1% í ár. Hver er ástæðan? Ætli mcgi ckki rekja hana til núverandi atvinnu- leysis og samdráttar í þjóðarbú- skapnum sem tilkomið er að of stórum hluta vegna óstjórnar og ráðaleysis núverandi ríkisstjómar undir forystuleysi og frjálshyggju- brölti Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra. Ég cr forsætisráðhcmi sammála um að glapræði sér að hlaða upp erlendum skuldum, reyndar inn- lendunr líka. I því skiptir cngu hvort um er að ræða cinstakling cða þjóðarbúið í heild. Tími er til kominn aö spoma við. Þessi mál verða þó ckki leyst með því að ráóast aó þcim scm minnst mcga sín í þjóófélaginu með margs- konar skattpíningum og hækkaðri félagslegri þjónustu. Heldurekki með lyrirhyggjulausri frjálshyggju og óraunhæfri einkavæóingu. Þaö mun sannast hið fornkvcðna aó hollur sé heimafenginn baggi. Ég stcnd viö þau orð sem ég viðhafði á fundinum er forsætis- ráðherra hélt í Safnahúsinu. Einnig þaö cr á prcnti hefur frá mér farið í framhaldi af fund- inum. Hins vegar get ég alveg skilið sárindi forsætisráðherra og hans stuöningsmanna. Forsætisráö- hcrra hcl'ur undanfarið kallað það yfir sig mcð framkomu sinni og málflutningi að honum yrói svaraó. Líklega var þaö tilviljun háð að það skyldi koma í ntinn hlut. Æðstu embættismenn íslenskrar þjóöar hafa margir hverjir alist upp á norðlenskri grund, skag- firskt blóð runnið í æðum nokkurra þeirra. Þeir hal'a oftar en ekki reynst hvað heilladrýgstir á örlagastundu. Núverandi forsætisráðherra mætti gjarnan taka sér þcssa menn til fyrirmyndar þar scm hann cr. því miður, að mínu mati, ekki með tæmiu' þar scm þeir höfðu hælana. Að lokum: Ég cr ckki y llr gagn- rýni hafinn frckar cn hvcr annar. Vilji forsætisráðherra meiri unt- fjöllun um Sauóárkróksfund sinn þá cr það hans. Með kveðju. Guömundur Oli Pálsson.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.