Feykir - 10.03.1993, Blaðsíða 2
2FEYKIR 8/1993
Kemur út á miðvikudögum vikulega. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa: Aðalgata 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauóárkróki. Símar:
95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Ólafsson Austur - Húnavatnssýslu og
Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar
Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarverð
110 krónur hvert tölublaó. Lausasöluveró: 120
krónur. Setning og umbrot: Feykir. Prentun:
Sást sf. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.
Aðalfundur Iþróttafélagsins Grósku
Veróur haldinn laugardaginn 20. mars kl. 14.
Dagskrá fundarins svo og fundarstaóur
veróa auglýst síóar. Stjórnin.
Toyotu V6 jeppi til sölu!
Árgerð 1990, keyrður 45 þúsund mílur, 31" dekk (1991),
jeppinn er bensínbíll og með plasthúsi. Verð 145 þúsund
staðgreitt. Upplýsingar í síma 92-27335 heima og 92-16600 á
vinnustað.
Einbýlishús til leigu!
Upplýsingar í síma 38208
„Smekklaus yfirlýsing frá
bæjarstjórn Sauðárkróks"
segir bæjarstjórinn á Blönduósi
„Mér finnst þetta smekklaus
yfirlýsing frá bæjarstjórn
Sauðárkróks og hún sé frekar
til þess fallin að auka tor-
tryggni milli staða en minnka.
Þetta er fáránleg röksemd-
arfærsla að velja einn lands-
hiutakjarna í kjördæminu til
þess eins að þá verði síður
rifist um það hvar þjónusta
frá hinu opinbera verði valin
staður“, segir Ofeigur Gests-
son bæjarstjóri á Blönduósi
vegna ályktunar bæjar-
stjórnar Sauðárkróks í
síðustu viku, vegna draga
sem Byggðastofnun lét gera
að Byggðaáætlun.
Ófeigur segir að þaó að
Sauðárkrókur sc fjölmennara
bæjarfélag en Blönduós þýöi
það ekki að hann sé betur til
þess fallinn að vcra landshluta-
kjarni. „Ég niundi segja að
Blönduós væri betur staðsettur
en Sauðárkrókur að þcssu
leyti. Við eruni niiðja vegu
milli Akureyrar og
Reykjavíkur og Blönduós er
nær niiðju kjördæmisins cn
Sauðárkrókur. Einnig cr cg
mjög ósáttur við þau orðs
Björns Sigurbjörnssonar
formanns Samtaka sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra sent hann
létfalla í útvarpsviðtali nýlega.
Þar sagði hann að
þéttbýlisstaðirnir á svæðinu
yrðu að konia sér santan um
þcssi mál, það er þau sem
varðar byggðaáætlunina. Mér
finnst svona orö móógun við
minni svcitarhrcppana og þaö
er ckkcrt bægt að undanskilja
þá þegar svo mikilsverð mál ber
á góma, cnda eru þeir fullgildir
aðilar að samstarfinu innan
SSNV', sagði Ófeigur.
Skagafjarðarljóð ranglega eignað
Halla Hjálmars frá Kambi
Fleiri hafa ort til Skaga-
fjarðar en Matthías Jockums-
son, en upp á síðkastið hefur
mönnum ekki borið saman
um eftir hvert eitt þessara
Skagafjarðarljóða sé. í bók-
inni Ljóð og lausavísur sem
Björn Dúason tók sanian um
kveðskap Haraldar Hjálmars-
sonar frá Kambi er honum
eignað þetta ljóð, en Siglu-
fjarðarblaðið Hellan hafði
áður eignað siglfirskum hag-
yrðingi Uni Sigríði Ámadóttur
kveóskapinn.
Björn Dúason sagði í sam-
tali við Helluna að þama hefðu
orðið mistök. Una Sigríóur ætti
sannarlcga þetta ljóð. Það fannst
í kistli Haraldar að honum
látnum ásamt öðmm kveðskap
skrifuðum með hans hendi.
Birni bárust svo þessar vísur
og ljóð frá ættingjum Halla
suður á landi og þeir sem fóru
yfir efni bókarinnar fyrir
prentun vissu ekki betur en þar
væri allt eftir einn og sama
höfund.
Nú er vitað að Haraldur
skrifaði umrætt ljóð upp eftir
Unu Sigríði en hún cr cigin-
kona Páls Jónssonar frænda
Haralds. Bjöm Dúason segist
hafa reynt að koma á framfæri
leiðréttingu þar sem hann hafi
getaó eftir að hafa fengiö að vita
hið rétta í rnálinu. Hann sagói
ennfremur að bókinni um
hagyrðinginn af Höfðaströnd
hefði verið tekið vcl af Skag-
firðingum og raunar öllum
sem þekktu Halla frá Kambi.
Skagafjörður
Skagafjörður fagra sveit,
frá þér sindrar lífog kraftur.
Frá efsta tind að ysta reit,
þig allir þrá að líta aftur.
Frá innsta dal á ystu nafir
þú öllum veitir dýrðargjafr.
Þú áttforna frœgðarstaði,
Flugumýri, Gröf og Hóla.
Frá Héraðsvatna víða vaði
við oss blasir Hjálmars Bóla
Arnarstapi og Víðimýri
og víst er Glaumbœr enn við líði.
Þú hefitr fóstrað fyrr og nú
fagrar meyjar, vœnu syni.
Fólk sem dáir tryggð og trú,
traustan stqfn afgóðu kyni.
Allirþínir nyðjar njóti
náðarguðs og blessun hljoti.
Frábær fatnaður!
Fyrsta sending af Skiny
og Kiddy er komin á
börn og fullorðna.
Bolir, leggingsbuxur, nærföt,
hjólabuxur og fleira.
Verstunin
Bílasala Baldurs er flutt í glæsilega aðstöðu að Borgarröst 5.
Bílasala Baldurs flytur
Bílasala Baldurs er flutt úr
brimlöðrinu á hafnarbakk-
anum í glæsilegt húsnæði og
aðstöðu í iðnaðarhverfinu,
að Borgarflöt 5. Um þessar
mundir eru 10 ár liðin frá
því Baldur byrjaði að starf-
rækja bílasölu sína og hefur
hann trúlega fengist lengst
allra við þessa þjónustu á
Króknum.
I samtali við Feyki sagði
bílasalinn að þónokkur hreyf-
ing væri komin á bílasöluna á
nýjan leik eftir daufar vikur
undanfarið, eða allt frá því að
rússneski togarinn var hér á
ferð fyrir áramótin. Nú vant-
aði bara flciri bíla á sölusvæðið,
en nýja húsnæðið leyfir að
hægt sé að taka allt að 15 bíla
inn í rúmgóðan sýningarsal.
Þá mun Bílasala Baldurs einnig
bjóða upp á þrif á bílum og
bónun.