Feykir - 10.03.1993, Side 6
6FEYKIR 9/1993
TT TTlr|^r I^TC C A \ ^ext‘: Kristján J- Gunnarss.
\JTIVlu X X 15 |5 VJr\ Teikningar: Halldór Péturss.
45. Hljóp jarl þá upp og vildi ekki á líta um
sættirnar þeirra Þorfinns og gengu þeir þá heim í
garð Þorsteins og bjuggust þar um. En er jarl sá
þetta lét hann vopnast alla hirð sína, gengu síðan
með fylktu liði þangað. Og áður liðið kom að,
skipuðust þeir til varnar fyrir garóshliðinu. Stóðu
þeir fremstir Þorfinnur og Þorsteinn og Grettir og
þá Bessi.
Jarl bað þá selja fram Gretti og hafa sig eigi í
ófæru. Þeir buðu hin sömu boð og fyrr, en sögðu
47. Þórhallur hct maður, er bjó á Þórhallsstöðum í
Forsæludal. Þar var reimt mjög og lekk hann
varla sauðamann, svo að honum þætti duga.
Það var eitt sumar á Alþingi, að Þórhallur gekk
til búðar Skafta lögmanns Þóroddssonar. Hann
fagnaði vel Þórhalli og spurði, hvað að tíðindum
væri.
Þórhallur mælti: „Heilræði vildi ég af yður þiggja.
Það er svo háttað að mér helst lítt á sauða-
mönnum. Vill nú engi til taka sá, er kunnugt er til,
hvað fyrir býr“.
að ella skyldi eitt yfir þá ganga.
46. Jarl kvaðst engan þeirra spara skyldi. Margir
góðgjarnir menn báðu jarl, að hann héldi eigi til
svo mikils vandræðis, sögðu, að þeir myndu mikið
afhroð gjalda, áður en þeir væru drepnir.
Jarl sagði þá, aó Grettir skyldi fara í friði fyrir
honum út til Islands. Luku þeir jarl fé, svo að honum
gast að, og skildu með engum kærleikum. Varó
Þorfinnur frægur af fylgd þeirri, er hann hafði veitt
Gretti.
48. Skafti svarar: „Fá skal ég þér sauðamann
þann er Glámur heitir, ættaður úr Svíþjóð. Hann
er mikill og sterkurog ekki mjög við alþýðuskap.
Þórhallur kvaðst ekki um það gefa, ef hann
geymdi vel fjárins.
Að áðumefndum tíma kom sauðamaóur á Þór-
hallsstaði. Tekur bóndi við honum vcl, en öllum
öðrum gast ekki að honum. Hann var ósöngvinn
og trúlaus, stirfinn og viðskotaillur. Öllum var
hann hvimleiður.
Staða Tindastóls orðin tæp
við botninn eftir tap gegn Keflavík á sunnudagskvöldið
Staða Tindastólsliðsins er orðin
tæp við botn Japisdeildarinnar
eftir tap gegn Keflavík í Síkinu
á sunnudagskvöldið. Flest bendir
til að það komi í hlut liðsins að
lcika um sæti í dcildinni við
næstcfsta lið 1. deildar, líklcga
Skagamenn eða Reyni í Sand-
gerði. Tindastólsmcnn léku vel
gcgn Kcflvíkingum á sunnudags-
kvöldið, en söknuðu Bandaríkja-
mannsins Ray Fosters sem var
í lcikbanni. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um hversu
erfitt er að eiga við Keflvíkinga
án þess liðstyrks sem Fostcr er,
en gestirnir máttu þrátt fyrir
það þakka fyrir að fara með
sigur í fartcskinu frá Króknum.
Tindastólsmcnn byrjuðu reyndar
ekki vel í leiknum. Hittnin var slök
til að byrja með og varnarleik-
urinn ekki nægjanlega góður. Nýttu
skyttur Keflavíkurliðsins sér það
vel. Mestur varð munurinn 14 stig í
fýrri hálfleiknum, en síðustu mínút-
umar fyrir leikhléið fóru hlutirnir
að ganga hjá Tindastóli. Þeim tókst
meö stórgóðum leik að breyta
stöðunni 22:36 í 42:42 og síðan
44:44, en gestirnir skoruðu tvær
síðustu körfurnar í fyrri hálflcik
og voru yfir í leikhléi, 48:44.
Tindastólsmcnn skoruðu fimm
fyrstu stigin í seinni hálfieik og
komust yfir. Jafnfræði var síðan
með liðunum fram undir miöjan
hálfieikinn að Kefivíkrngar náðu
góðum leikkafla og komust í 10
stiga mun, sem Tindastóli tókst
aldrei að minnka verulega þrátt
fyrir góða viðleitni, hittnin brást
Tindastólsmönnum á lokakafia-
num og Kefivíkningar stóðu því
uppi sem sigurvegarar, lokatölur
urðu 76:66.
Valur Ingimundarson átti sinn
besta leik í langan tíma og fór fyrir
Tindastólsmönnum í lciknum. Páll
Kolbeinsson átti einnig mjög góðan
leik og hélt t.d. Jóni Kr. svo vel
niðri að þessi mikla skytta skoraði
ekki eitt einasta stig í leiknum,
og hefur það kannski ekki gerst
áður á hans farsæla ferli í meist-
araflokki. Ingvar Ormarsson átti
einnig mjög góðan leik, og þeir
Hinrik, Karl, Ingi Þór, og Björgvin
komust ágætlega frá leiknum. Valur
skoraði 31 stig, Ingvar 16, Páll 8,
Karl 4, Hinrik 3 og þeir Björgvin
og Ingi Þór 2 hvor. Jónatan Bow
var langatkvæðamcstur Kellvíkinga,
skoraði 29 stig, og Albcrt Óskars-
son átti einnig mjög góðan lcik,
skoraöi 19 stig.
Tindastóll og KR eru nú jöfn
að stigum í næstneðsta sæti Japis-
deildarinnar, en KR-ingar standa
betur að vígi. Þeir sigruðu Tinda-
stólsmenn oftar í innbyrðisviður-
eignum liðanna í vetur og eiga að
auki cftir tvo lciki, gegn Snæfelli
hcima og Skallagrími í Borgamcsi,
cn Tindastóll á aðeins eftir að lcika
gcgn Breiðabliki í Kópavogi. Sá
leikur verður annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld.
Feykir stendur fyrir
vormóti í knattspyrnu
Nú þegar vorið er á næsta leyti
hafa knattspymumenn þegar
hafið undirbúning fyrir kom-
andi keppnistímabil. Sum hver
liðanna eru þegar byrjuð að
leika æfingaleiki og brátt fer
boltinn að rúlla á fullu þegar
aðstæður utanhúss leyfa hér
Norðanlands. I þeim tilgangi
að lífga upp á knattspyrnu-
lífið hefur Fréttablaðið
Feykir ákveðið að gangast
fyrir vormóti í knattspyrnu í
meistaraflokki karla og
kvenna, svonefndum Feykis-
bikar.
Knattspymufélögum á Norð-
urlandi vestra hefur verið boðið
til kcppninnar og hafa þcgar
borist jákvæð viðbrögó frá
fjóram félögum varðandi þátt-
töku í keppni karlaflokks, sem
reiknað er með að hefjist unt
aóra helgi. Þessi félög eru
Hvöt, KS, Neisti og Þryntur.
Einnig er vænst þátttöku Tinda-
stóls og Kormáks.
Leikin vcrðureinföld umferð
og standa vonir til að þetta
mót verði í framtíðinni fastur
liður í undirbúningi liða á
Norðvesturlandi fyrir átökin í
Islandsmóti og Bikarkeppni
KSÍ. Þcss má geta að dregið
hefur vcrið til fyrstu umfcrðar
í Bikarkeppni KSI, cn þeir
leikir fara fram 25. maí. Þar
fær Hvöt Magna i heimsókn og
KS Lciftur. Tindastóll þarf aó
sækja Dalvíkinga heint og
Þrymur Völsung á Húsavík.
Ncsti situr yfir í íyrstu umferð.
Reiknað er með að kvenna-
keppni Feykisbikarsins hefjist
í lok aprílmánaðar.
Eining á ársþingi USVH
Héraðsþing Ungmennasam-
bands Vestur - Húnavatnssýslu
var haldiö laugardaginn 6.
niars í Félagsheimilinu á Hvantms-
tanga. Gestir þingsins voru
Stefán Konráðsson frant-
kvænidastjóri ISI, Pálnii Gísla-
son forntaður UMFÍ, Sæ-
niundur Runólfsson frant-
kvæmdastjóri UMFI og Sigur-
laug Hermannsdóttir stjórnar-
rnaður í UMFÍ.
Þingið var vel sótt og mjög
góð samstaða um nánast alla
hluti að sögn forntanns sant-
bandsins Eyjólfs Gunnarssonar.
Nýtt aðildarfélag var tekið inn
í sambandið á þinginu, Skot-
íþróttafélag Hvammsttinga. Sam-
þykkt var að skipa starfshóp til
athugunar á uppbyggingu íþrótta-
svæðis í héraðinu. Þá var sam-
þykkt að afhcnda Hcraðsncfnd
til cignar og varðveislu útsýn-
isskífu þá scnt reist var fyrir
forgöngu USVH í Borgarvirki.
Einnig var því bcint til stjórnar
að hún hefði forgöngu um gcrð
annarrar útsýnisskífu í héraðinu.
Kjöri íþróttamanns ársins sern
frant fór í janúar vttr lýst. Iþrótta-
ntaður ársins var kjörinn Elvar
Daníelsson, í öðru sæti varð
Isólfur L. Þórisson og í þriðja
sæti varó Jóhannes Guðjóns-
son. Alreksunglingar vora kjömir
Guómundur H. Jónsson, Guð-
mundur V. Guðmundsson, Hann-
es J. Jónsson, Isólfur L. Þórisson,
Jóhannes Guðjónsson, Sigur-
jón Þorsteinsson, Ellen D. Bjöms-
dóttir, Harpa Þorvaldsdóttir,
Hrafnhildur Víglundsdóttir,
Laufey Skúladóttir, Erla O.
Kjartansdóttir og Sonja Mar:
inósdóttir. Starfsmerki UMFI
fékk Oddur Sigurðsson í viður-
kenningarskyni fyrir vel unnin
störf í þágu ungmennahreyf-
ingarinnar.
Stjórn og varastjórn var öll
cndurkjörin og hana skipa:
Eyjólt'ur Valur Gunnarsson for-
maður, Ragnheiður Eyjólfsdóttir
varaformaður, Ingi Hjörtur
Bjarnason ritari, Friðrik Böðv-
arsson gjaldkeri, Sigrún Olafs-
dóttir meðstjórnandi og vara-
mcnn Kristján Isfcld, Axel
Guðni Benediktsson og Ingvar
Jón Jóhannsson.
EA.
Frá félagi eldri borgara
Almennur fundur veróur haldinn í félagi eldri
borgara laugardaginn 13. mars kl. 16,00 í sal
Dvalardeildar Sjúkrahúss Skagfirðinga. I upphafi
fundar flytur síra Bolli Gústafsson vígslubiskup
hugleióingu. Formenn nefnda greina frá
nefndarstöfum. Kaffiveitingar. Þeir sem vilja fá
akstur á fundarstaó hringi í síma 36129 eftir kl.
15,00. Tekió á móti nýjum félögum.
Stjórn félags eldri borgara.