Feykir - 10.03.1993, Side 8
Einkareikningur,
framtíðarávísun
á góða ávöxtun, ódýran yfirdrátt
og víðtæka viðskiptaþjónustu!
10. mars 1993, 9. tölublað 13. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Sími 35353
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Löndunarkrani settur
upp á Hvammstanga
Hækkanir á gjaldskrám og komið á
gjaldi fyrir félagslega þjónustu
Nýverið var keyptur löndunar-
krani og settur upp við bryggju
á Hvammstanga. Að sögn Stef-
áns Þórhallssonar hafnarstjóra
er þetta mikið framfaraspor
hvað varðar aðstöðu til lönd-
unar fyrir smærri báta sem
hingað til hafa átt í erfið-
leikum ef Iágt er í, og eins getur
þetta sparað kranabíl ef taka
þarf upp troll eöa önnur veið-
arfæri.
Ekki þarf að orðlengja það
hvað tilkoma kranans hefur mikið
að segja fyrir bátaeigendur, sem
til þessa hafa ckki liaft tæki um
borð til löndunar. Kostnaður við
kranann og uppsetningu er um
1,259 milljónir, en ennþá er
eftir að tcngja rafmagnið. Segja
má aó með þcssu hafi Hvamms-
tangahöfn komist í hóp alvöru-
hafna á landsbyggðinni, og
geta Hvammstangabúar verið
stoltir af sinni höfn hvað varðar
aðbúnað og mögulcika, en hún
var dýpkuð sumarið 1991 og
gengið var frá smábátahöfn
með flotbryggju fyrir nokkrum
árum. EA.
Bæjarstjóm Sauðárkróks hefur
undanfarið samþykkt hækk-
anir á ýmsum gjaidskrám. Mest
varð hækkunin á tímum í
íþróttasal, um 50%, hækkun
leikskólagjalda nam 10% og
heita vatnið hækkaði um 8%.
Þá hefur verið ákveðiö að taka
upp gjald fyrir heimaþjónstu
við aldraða og fatlaða. Hins-
vegar var aukavatnsskattur
Iækkaður um 20% og hefur
hann þá lækkað um 40% á
tveimárum. I>aðkemur veliðn-
aði í bænum scm þarf á miklu
vatni að halda, svo sem vinnslu
á rækju, fiski, kjöti og mjólk.
Talsvert cr síðan að hitaveitu-
og leikskólagjöld vom hækkuð,
eða frá því haustið 1991. Bæjar-
fúlltrúar minnihlutans grciddu at-
kvæði á móti hækkunum. Gunnar
Bragi Sveinsson og Hcrdís Sæ-
mundardóttir bæjarhilltrúar Iiam-
sóknarflokksins lögðu fram bók-
anir vegna hækkunar leikskóla-
gjalda og vcgna tillögu um gjald-
skrá vegna fclagslegrar hcima-
þjónustu. Þau segja í bókun sinni
að ekki sé við hæfi að auka gjald-
töku fyrir vistun bama á lcikskól-
um bæjarins meðan cngar tillögur
liggja fyrir um lausn á dagvistunar-
vanda, en í dag em langir biðlistar
á leikskólum bæjarins, 66 böm
bíða effir plássi.
Frani kom í umræðum í bæjar-
stjóm aó góðar vonir hati verið
taldar á því að aðstaða fengist til
dagvistumar í húsnæði Sjúkrahúss
Skagfirðinga. Það hafi síðan valdið
fclagsmálaráði miklum von-
brigðum þcgar Ijóst varð að ekkcrt
yrði úr jxnm liugmyndum.
Að mati Snorra Bjöms Sigurðs-
sonar bæjarstjóra er gjaldskrá lcik-
skólanna cftir hækkun svipuð og
hún var hjá bæjarfélögum á Norð-
urlandi um mitt síðasta ár, að
Húsavík undanskildri. Þá á
Snorri Bjöm von á því að stærsti
hluti þeirra sem njóta félagslegrar
þjónustu í bænum þurt'i ckki að
grciða þjónustugjaldið, cn það cr
tekjutcngt. Þannig sé gcrt ráð fyrir
að einstaklingar sem hafi í tekjur
56.801-71.(XX) grciði 160krónur
fyrir klukkustundar þjónustu, og
sama gjald greiði lijón sem hafi í
tckjur 73.841-92.300.
Níræður ökumaður á götum Sauðárkróksbæjar:
Blindur á vinstra og með hálfa sjón á hægra
Haraldur á Fergusoninum við Matvörubúðina í hríðarmuggunni í síðustu viku.
„Nei ég get nú ekki hælt sjóninni, fékk
gaddavír upp í vinstra augað fyrir
nokkrum árum og er staurblindur á því
og síðan hef ég ekki nema hálfa sjón á því
hægra“, segir Ilaraldur Jóhannesson
ffá Bakka í Viövíkursveit, en hann er trú-
lega elsti ökumaður á götum Sauðár-
króksbæjar. Haraldur, sem verður ní-
ræður á þessu ári, lætur sig ekki muna
um það að koma á Fergusoninum annað
slagið í bæinn, í hvaða veðri sem er og
þó að leiðin sé býsna strembin, upp
bratta brekkuna við Tröllaskarðið í
Hegranesi og síöan um þröngar beygjur
og erfiða brú við Vesturós Héraðsvatna.
„Ég var að bjarga stóðhesti sem var fastur
í girðingu fyrir rúmum fimmtán árum, þegar
strengurinn slitnaði og ég fékk enda í hægra
augað og síðan hef ég ckkert séð með því.
Ég mátti nú varla við þessu, því mörgum
árum áður missti ég hálfa sjón á því vinstra.
Ég hcf samt aldrci fengið neinar bætur.
Það var á þeim áruni sem ég var ráðs-
maður hjá Magnúsi á Frostastöðum. Ég
var að rýja fjögurra vetra sauð, var búinn að
setja á hann sauðaband, náði að binda þrjá
fætur, var síðan að bogra yfir honum til að
rýj’ann á kviðnum þegar hrútdjöfullinn
náði að sparka þeim fæti sem laus var upp
í augað á mér. Mig verkjaði óskaplega í
augað og úr varð mikill blóðköggull svo
ég sá ekki skímu með því í tvær til þrjár
vikur. Síðan fór að rofa til cn ég cr sannfærður
um að ég fékk aldrci ncma hálfa sjón á aug-
anu. Ekki þar fyrir að ég sé vel um allan fjörð'".
En er lögreglan ekkert að finna að því
að þú sért að keyra í bænum?
„Einu sinni minntist jú yfirlögrcglu-
þjónninn á þaó við mig að ég þyrfti cndi-
lcga að fá mér veltigrind á vélina. Ég hélt aó
það væri nú bara verra að keyra hana þannig,
en síðan hcf ég reynt aó sneiða hjá Suður-
götunni þar sem lögreglustöðin var lcngi
til húsa. Ég skildi þá vélina eftir suður í
bænuni og upp á síðkastið hcf ég fariö hérna
upp í hvcrfið þar sem sonardóttir mín býr.
Það var ciginlega brandari jrcgar ég var að
segja hcnni frá því að ég sniðgcngi Suður-
götuna út af lögrcglunni. „Nú það búa nú einir
fjórir lögregluþjónar í götunni", sagði hún
þá. Annars hef ég náttúrlcga aldrci tckið próf'.
En Haraldur cr ekki cini aldraói dráttar-
vélaökumaóurinn sem setur svip sinn á
götur Sauðárkróksbæjar. Sigurður Berg-
mann Magnússon er þar oftar cn ckki og
hcldur þá gjaman vcl niðri umfcrðarhrað-
anum á aðalgötum bæjarins, óþolinmóðum
vcgfarcndum til mikillar grcmju.
Gæðaframköllun
CÆÐA FRA MKOL L UN
BÓKABýÐ
BRXTTcIARS