Feykir - 12.01.1994, Síða 5
2/1994 FEYKIR5
Hagfræði Jóseps
Rúnar telur bestu hagfræðina þá er Jósep beitti fyrir margt
Iöngu, að spara til mögru áranna. Myndin, sem tekin er á mark-
aðstorgi í landi Jóseps, sýnir gnægð matar í körftim.
Oft er það svo þegar menn
leita lausna á vandamálum að
þeim sést yfir að fortíðin getur
veitt mikinn lærdóm í þeim efn-
um. Eitt af því sem veldur ómæld-
um skaða á okkar dögum er sú
tilhneiging manna að gera til-
tölulcga einföld mál að hinum
flóknustu viðfangsefhum. Oftast
verður þetta fyrir tilverknaó
menntaðra manna sem með
þessu leitast við að byggja múra
utan um starfssvið sitt og hags-
muni, svo enginn geti bjargað
sér með eitt eða neitt nema leita
til þeirra sem sérfræðinga.
Þannig hefur lögfræðin búið um
sig svo að í dag þorir helst eng-
inn að skrifa nafn sitt á blaðsnep-
il nema lögffæðingur hafi bless-
að yfir miðann - að sjálfsögðu
fyrir æma þóknun! Hin gömlu,
einföldu handsöl em úr sögunni
og gagnkvæmt traust sömuleið-
is. Af sömu ástæðum hefur svo-
nefnt stofnanamál verið búið til,
en það tryggir kerfisliðinu að-
gang að hinum eina rétta skiln-
ingi á málunum. Þannig geta
þeir sem búa innan múra kerfis-
ins, sýnt öllum almenningi sem
er að sjálfsögðu fyrir utan, mik-
ilvægi sitt enn frekar.
Það er nefnilega svo, að því
hærra sem menn telja sig standa
í þjóðfélagsstiganum, því við-
kvæmari er sjálfsímyndin og því
meira telja menn sig þurfa að
verja. Um þessa hluti mætti
sannarlega margt segja og það
bíður ef til vill betri tíma. En í
þessum pistli ætla ég að fara
nokkrum orðum um hagfræðina,
sem er ein fræðigrein sem menn
hafa verið í önnum við að gera
sem flóknasta og torskildasta í
augum hins almenna borgara.
Auðvitað telja hagfræðingar sig
þurfa að verja sitt sérsvið með
sömu aðferðum og aðrir fræð-
ingar nota. En einhvem veginn
finnst mér hagfræði Ásgeirs á
Þingeyrum og Einars í Nesi og
margra bændahöfðingja fyrr á
tíð, hafi verið miklu betra inn-
legg í hagþróun lands og þjóðar,
heldur en öll sú lærða hagftæði -
vísindaumræðu sem gengur í sí-
bylju nú á dögum. En hvemig
skyldi nú vera best að reka þjóð-
félag á sæmilega heilbrigðum
grundvelli?
Það er vissulega mikil spum-
ing og vafalaust tímabær! Eitt
svarið hlýtur að vera að best sé
að einfalda allan rekstur og opna
kerfið sem mest fyrir hinum al-
menna borgara. En með slíku
væri sennilega komið við kaun-
in hjá mörgum. Þá er náttúrlega
vegið að sérstöðu og sérhags-
munum manna og allt fer upp í
loft. Kerfið verður nefnilega að
vera lokað og óskiljanlegt, svo
hinn venjulegi maður þarfnist
hjálpar hinna lærðu við allt nema
að skeina sig! En þá em mál
raunar komin á þá stöðu, að hag-
fræði hinna lærðu er farin að
vinna andstætt þeirri einföldu
hagfræði sem ætti auðvitað að
vera leiðarmark þjóóarinnar. Eg
kalla þá þjóðlegu og einföldu
hagfræði ósköp látlausu nafni -
ég kalla hana „hagfræði Jóseps"!
Með því er vísað til þess lær-
dóms sem liðin tíð gefur. Þessi
fágæta hagfræði sem er auðvitað
auðskiljanleg og einföld, byggist
á því hvemig Jósef Jakopsson
réð draum Faraós forðum og hélt
á málum, svo velmegun ríkti
áfram í Egyptalandi, þó kreppa
og hallæri væri í nágrannalönd-
unum. Jósef safnaði í foröabúr
og átti varasjóð til að mæta
mögm ámnum. Egyptaland gat
meira að segja verið birgðakista
tyrir önnur lönd, sem vom orðin
bjargarlaus, enda með þá hag-
fræði á oddinum að góðæri yrði
alla tíð og engin þörf á að spara
eða byggja upp varasjóði.
Þannig hagfræði hefur líka
verið í gildi hér á Islandi undan-
farin ár og nú em mögm kýmar
að koma upp úr ánni og heldur
soltnar að sjá! Hvar er forðabúr-
ið, hvar er varasjóður lands og
þjóðar eftir góðærið langa? Ég
held við ættum að senda Fried-
man og Hayek og þeirra líka út á
sextugt djúp, en leggja lag okkar
hér eftir við Jósef Jakopsson!
Við ættum að vísa á bug flókn-
um formúlum reiknimeistaranna
sem hafa svo lengi viöhaft sína
lærðu hagspeki til tjóns fyrir
þjóðfélagið.
Menn hafa verið að reikna
hin og þessi fyrirtæki inn í stór-
veldisaðstöðu á heimsmörkuð-
unum, en dæmin hafa ekki geng-
ið upp og allt endað í rjúkandi
rúst! Lærdómsspeki er auðvitað
góð og gagnleg og gulls ígildi,
en þegar hún er farin að vinna al-
farið gegn heilbrigóu brjóstviti,
Undir borginni
Umsjón Rúnar
Kristjánsson
er hún komin út úr réttum far-
vegi. Þegar hún fjötrar sig í
flóknum formúlum getur svo
sem farið að þær vefjist um hálsa
hinna sprenglærðu meistara og
hengi þá!
Á Islandi er lítið þjóðfélag
sem þarf ekki á frjálshyggju og
hávísinda-hagfræði að halda.
Hér er það mannlega hliðin sem
þarf ávallt að rísa öðru ofar, ef
vel á að fara. Andi samhjálpar og
náungakærleika þarf að ríkja.
Hagfræði mannúðar þarf að búa
áfram í hjörtum okkar Islend-
inga, því hún mun skila arði
blessunar inn í okkar samfélag
öðru fremur. I þeirri hagfræði
sem fer saman við hina einföldu
hagfræði Jósefs felst lykillinn að
heilbrigðu efnahagslífi og al-
mennri velmegun í þessu landi.
Ritað á nýársdag 1994.
Rúnar Kristjánsson.
Undir dalanna sól
Söngur karlakórsins Heimis fékk geysigóðar viðtökur á þrettándagleði kórsins sem
haldin var í Miðgarði sl. laugardagskvöld. Kórinn var margklappaður upp í lokin og
þá voru dregjn upp úr gullkistunni Iög sem ekki voru á söngdagskránni nú, en öðlast
hafa miklar vinsældir meðal landsmanna, eins og td. lagið Undir dalanna sól sem hér
er kyrjað að þeim bræðrum Gísla og Sigfiisi Péturssyni frá Álftagerði ásamt stuðn-
ingi annarra kórfelaga. Lagið minnir einnig á að sól tekur nú að hækka á lofti og senn
sér fyrir enda skammdegis.
Útsala
hefst laugardaginn 15.
janúar í Skagfirðingabúð.
Allt a5 80%
afsláttur
Skagfirðingabúð