Feykir - 23.03.1994, Blaðsíða 2
2FEYKIR 12/1994
Kemur út á mióvikudögum vikulega. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa: Aðalgata 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Símar:
95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703.
Ritstjóri: Þórhallur Asmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Olafsson Austur - Húnavatnssýslu og
Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu.
Blaóstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, SæmundurHermannsson, Sigurður
Agústsson og Stefán Árnason. Áskriftarveró
137 krónur hvert tölublaó með viróisaukask..
Lausasöluverð: 150 krónur meó viróisaukask.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.
Magnús Sigurjónsson hjá héraðsnefnd:
Full þörf á öflugu
starfi í ferðamálum
„Við teljum fulla þörf á því að
halda áfram öflugu starfi varð-
andi ferðamál. I>að iítur vel út
með bókanir til landsins í sum-
ar og útlit fyrir að mikill fjöldi
ferðamanna muni koma til
landsins. Við vonumst til að ná
í hluta af því fólki og einnig að
heppnist vel það átak sem gert
verður í því að fá landsmenn til
að heimsækja hverja aðra í til-
efiii árs fjölskyldunnar og 50
ára afmælis lýðveldisins“, segir
Magnús Sigurjónsson fram-
kvæmdastjóri Héraðsnefhdar
Skagfirðinga.
Héraðsnefnd hefur nýlega
auglýst laust til umsóknar starf
ferðamálafulltrúa. Um fullt starf
er aó ræóa eins og verið hefúr síð-
ustu misseri. Vigfús Vigfússon
sem gegnt hefur starfinu undan-
farin ár mun láta af því í apríllok
og taka þá við starfi hótelstjóra
Áningar.
Skrifstofa ferðamálafulltrúa
verður í stjómsýsluhúsinu á Sauð-
árkróki og þangað geta aóilar í
ferðaþjónustu sótt þá leiðbein-
ingaþjónustu sem ferðamálafull-
trúi veitir. Stefnt er að sókn í upp-
byggingu lerðaþjónustunnar á
næstu misserum og ljóst að þessi
atvinnugrein hefúr verið í nokk-
urri aukningu í Skagafirði undan-
farin ár.
Skagfirðingahátíð
á Hótel íslandi
Skagfirskir skcmmtikraftar
verða ejngöngu í sviðsljósinu á
Hótel Islandi nk. föstudags-
kvöld, en þar verður haldið
skagfirskt söng- og skemmti-
kvöld. Skagfirsku kórarnir,
Karlakórinn Heimir og Skag-
firska söngsveitin syngja,
nokkrir valinkunnir hagyrð-
ingar leiða saman hesta sína og
aðlokum mun hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar halda uppi
stuðinu á dansleik.
Söngkvöld sem þetta ætti að
vera kærkomió tækifæri fyrir
söngunnendur og reikna má með
að Skagfirðingar og aðrir Norð-
lendingar á þeirri línu, sem búsettir
em á höfuóborgarsvæðinu og þcir
sem gestkomandi verða í borginni
um næstu helgi, hugsi sér gott til
glóóarinnar.
Sem fyrr stjómar Stefán Gísla-
son Karlakómum Heimi, undir-
leik annast Tómas Higgerson og
einsöngvarar með kómum verða
Bjöm Sveinsson, Einar Halldórs-
son, Pétur Pétursson og Sigfús
Pétursson.
Björgvin Þ. Valdimarsson
stjómar Skagfirsku söngsveitinni,
undirleikari er Sigurður Marteins-
son, og með sveiúnni syngja fjórir
ungir skagfirskir einsöngvarar
Ásgeir Eiríksson, Helga Rós Ind-
riðadóttir, Margrét Stefánsdóttir
og Sigurjón Jóhannesson.
Það er Eiríkur Jónsson erftir-
herma frá Dýrfinnustöðum sem
stjómar hagyrðingaþættinum. Á
matseðlinum á Islandi þetta kvöld
má meðal annars finna koníaks-
legið grísafille og portvínsbætta
austurlenska sjávarréttarsúpu.
ískappreiðar Þyts á Vesturhópsvatni
Laugardaginn 12. mars sl. hélt
hestamannafélagið Þytur ís-
kappreiðar á Vesturhópsvatni.
Allgóð mæting var á svæðið og
var veður sæmilegt. Veitingar
voru seldar úr snjóhúsi (íshöll),
sem reist hafði verið á svellinu í
tilefiii mótsins, og setti það svip
sinn á mótshaldið.
Keppt var í tölti fullorðinna,
tölti eldrí unglinga og yngri ung-
linga, brokki og skeiði. Einnig var
bæjarkeppni þar sem keppt var
fyrir bæi á svæðinu.
I bæjarkeppninni í flokki full-
orðinna sigraði Herdís Einarsdótt-
ir fyrir Tjöm I á Neista, annar
varð Kristján Sigurðsson f. Ytri-
Reyki á Mánadís og þriðji Indriði
Karlsson f. Vatnshól á Nátthrafni.
I bæjarkeppni eldri unglinga sigr-
aði Kolbrún Stella Indriðadóttir f.
Grafarkot á Sölva, Einar Páll Egg-
ertsson f. Ámes varð annar á Stúfi
og þriðji Sigurður Þór Guð-
mundsson f. Sauðá á Sykri. I bæj-
arkeppni yngri unglinga sigraði
Þómnn Eggertsdóttir f. Hrísakot á
Fresti, Eydís Osk Indriðadóttir f.
Osa varð önnur á Móses og þriðji
Svavar Guðni Guðnason f. Vest-
urhópshóla á Blesa.
I tölti fulloröinna sigraði Her-
dís Einarsdóttir á Ótta, Hrafnhild-
ur Jónsdóttir varð önnur á Orku
og Hermann Ingason þriðji á
Heljari. I tölti eldri flokki ung-
linga sigraði Kolbrún Stella Ind-
riðadóttir á Sölva og í yngri
flokknum Þórunn Eggertsdóttir á
Fresti. Þar varð Eydís Ósk Ind-
riðadóttir í ööm sæti á Móses og
Eyþór Elmar Berg þriðji á Djassi.
I 250 metra brokki sigraði
Eggert Pálsson á Snotri, Herdís
Brynjólfsdóttir varð önnur á
Kengálu og Kristján Sigurðsson
þriðji á Dalagrána. Kristján sigr-
aði síðan í 150 metra skeiði á
Stjama, Guðröður Ágústsson varó
annar á Riddararós og þriðji Hjalti
Júlíusson á Nasa.
Tryggvi Guðlaugsson Lónkoti
f. 20. nóv. 1903 dáinn 6. mars 1994
Ekki man ég nákvæmlega
hvenær það var sem fundum okk-
ar Tryggva frá Lónkoti bar fyrst
saman. Líklega var það á héraðs-
fundi Skagafjarðarprófastsdæmis,
en þar átti Tryggvi sæti um árabil
fyrir hönd sóknar sinnar, Fells-
sóknar í Sléttuhlíð. Þessi kempu-
legi aldraði maður vakti athygli
mína og ekki síður málfar hans,
sem var kjamgott og bar merki
einlægrar umhyggju fyrir kirkju
og kristnidómi.
Okkur varð fijótlega vel til
vina, sú vinátta hefur varað síðan.
Þegar við kynntumst, var Tiyggvi
orðinn vistmaður á öldmnardeild
Sjúkrahúss Skagfirðinga á Sauð-
árkróki, sestur í helgan stein að
mestu eftir farsælt ævistarf, en
tengslin við sóknarkirkjuna að
Felli enn sterk og mannlíf allt í
Fellshreppi. Þar á slóðum spek-
ingsins, Sölva Helgasonar, vom
hans heimahagar.
Ekki kann ég að rekja ævi
Tryggva Guólaugssonar í einstök-
um atriðum, enda er það ekki ætl-
unin með þessum línum. Veit þó,
að hann var Eyfirðingur að ætt, en
fluttistbamungur til Skagafjarðar,
stundaði sjósókn á yngri ámm, en
gerðist síðar bóndi að Lónkoti í
Sléttuhlíð, þar sem hann bjó þaö-
an í ffá, og við þann bæ var hann
ætíð kenndur. Þar stundaði
Tryggvi jöfnum höndum búskap
og sjósókn.
Tryggvi kvæntist Olöfu Odds-
dóttur frá Siglunesi, cn hún lést
fyrir allmörgum ámm. Þau eign-
uðust einn son, Odd Steingrím,
sem lést aðeins 24 ára af völdum
voðaskots og varð föður sínum
harmdauði.
Tryggvi varmikill félagsmála-
maður, sem lét sig varóa flest það,
sem til heilla horfði sveit og sam-
félagi. Hann sat lengi í hrepps-
nefnd Fellshrepps, í stjóm ung-
mennafélags og lestrarfélags, svo
að nokkuð sé nefnt, átti sæti í
sóknamefnd Fellskirkju og var
meðhjálpari þar um árabil. Hygg
ég að vart hafi verið til staðar sá
félagsskapur í Fellshreppi, þar
sem Tryggvi kom ekki eitthvað
við sögu. Það var ríkt í fari hans
að vilja verða að liði í hverju því
sem hann tók sér fyrir hendur. Þar
mun hann sjaldnast hafa innheimt
daglaun að kvöldi.
Af kynnum mínum af
Tryggva frá Lónkoti varð mér
ljóst að þar fór óvenjulegur mað-
ur um marga hluti. Áhugamál
hans vom mörg og margvísleg,
hann lét sér fátt mannlegt óvið-
komandi. Hann var áhugamaður
um allt er laut að þjóðlegum fróð-
leik var sjálfúr hafsjór af fróðleik
frá fyrri tíð, stálminnugur og hafói
góða frásagnargáfu. Oft undraðist
ég, er við tókum tal saman, hve
þessum óskólagcngna alþýóu-
manni lá frásögn létt á tungu. Þaó
var bókstaflega unun að hlýða á
Tryggva segja frá horfnum at-
vinnuháttum eða ræóa um menn
og málefúi, sem hann hafði haft
kynni af á langri ævi. Sem betur
fer mun nokkuð af frásögnum
Tryggva vera varðveitt. Hann las
ýmislegt efni inn á segulband,
m.a. fyrir atbeina Hjalta Pálsson-
ar safúvarðar.
Eina segulbandsupptöku á
undirritaður meó frásögn Tryggva
þar sem hann segir frá Fellskirkju
og kynnum sínum af sr. Pálma
Þóroddssyni sóknarpresti að Felli
og síðar Hofsósi, sem hann mat
mikils.
Engu að síður mun mikill
fróðleikur um atvinnusögu og
mannlíf í Skagafirði hverfa með
Tryggva frá Lónkoti, það sama
gildir um fleiri af aldamótakyn-
slóðinni svokölluðu, þar er nú
hver að verða síóastur að bjarga
mörgum ffóðleik frá gleymsku.
En Tryggvi sat ekki bara fast-
ur í því liðna. Hann fylgdist ótrú-
lega vel með hræringum samtím
Framhald á 7. síðu.