Feykir


Feykir - 11.05.1994, Blaðsíða 3

Feykir - 11.05.1994, Blaðsíða 3
18/1994 FEYKIR3 íþróttir og útilíf Líkamsrækt og íþróttaiðkun er mikilvægur þáttur í uppeldi og þroska bama og unglinga. Jafnaó- armenn á Sauðárkróki vilja öfl- uga uppbyggingu íþrótta- og fé- lagsaóstöðu. Jafnaðarmenn gera sér grein fyrir miklvægi íþrótta- starfs. Það aðhald og sú ástundun sem krafist er af þeim bömum skilar þessum einstaklingum heil- brigðari, hæfari og metnaðarfyllri til náms og starfa. Jafnaðarmenn telja að nauösynlegt sé að skoða rækilega hugmyndir sem uppi eru um stækkun íþróttahússins. Það ætti að skipa nefnd valinkunnma manna til að gera tillögur til bæj- arstjómar um lausn á byggingu íþróttahússins. Einnig er nauðsyn- legt að skoða og gera kostnaðará- ætlun um gagngerar endurbætur á Sundlaug Sauðárkróks. Mikil vinna hefúr verið unnin á sl. ámm varðandi aðalskipulag íþrótta- svæðis bæjarins og er ástæða til að hafa þar í huga að tengja íþróttasvæðið við útivistarsvæói bæjarins, t.d. Sauðárgil og gera gönguleiðir upp á Nöfunum. Atvinnumál Atvinnumál eru og verða helstu mál sem sveitarstjómar- menn þurfa að glíma við í náinni Björn Björnsson. Við bæjarstjómarkosningar vorió 1990 settu frambjóöendur Sjálfstæðisflokksins fram vand- aða stcfnuskrá, þar scm fram kom að hverju unnið yrði, ef flokkur- inn kæmist til áhrifa í stjóm bæj- arins eftir kosningar. Þegar síðan var myndaður meirihluti með fulltrúum, Al- þýðuflokks og Lista óháðra und- ir forystu Sjálfstæðisflokksins, var gerður málefnasamningur, þar sem allir aðilar lögðu fram sín stefhumál og áhersluatriði, og um þau var gert samkomulag. Hér mun ekki farið yfir loforð frá þessum kosningum og efndir, það verður gert á öðmm vett- vangi, hinsvegar bcnt á að vel flestum stefnumálum hefur verið komið í höfn, en öðmm þokaó vel á veg. Nú þegar kemur að þeim tíma- mótum að Sauðárkróksbúar velja sér aftur fulltrúa í bæjarstjóm, er fróðlegt að sjá hvemig andstæó- ingar okkar sjálfstæðismanna taka á málum til þess aö reyna að fá bæjarbúa til þess að trúa því, að síðastliðin ár hafi verið ár stöðn- unar og úrræðaleysis, meirihlut- Áfram Krókur! framtíð. Jafnaðarmenn á Sauðár- króki telja að nú þegar eigi að stofna „framkvæmdasjóð“, sem hefur það hlutverk að efla og styrkja atvinnulífið í bænum. Framkvæmdasjóðurinn á að fá fjármagn úr bæjarsjóði á hverju ári, t.d. ákveðinn hundraðshluta af útsvari og einnig ffamlag frá veit- um bæjarins. 011 núverandi hluta- bréf og ábyrgðir vegna atvinnu- lífsins verður eign framkvæmda- stjóðsins og með þessum hætti er hægt að sundurgreina bæjarsjóð og þátttöku bæjarins í uppbygg- ingu atvinnulífsins. Vel kemur til greina að skoða þann möguleika að ráða til bæjar- ins atvinnufúlltrúa, sem hefði það hlutverk að leita aó og skoða ný atvinnutækifæri. Einnig mætti vel skoða frekar og láta veróa að veruleika þá hugmynd, að mynda starfshópa um tiltekna mála- flokka, Ld. ferðamál (Sauðáikrók- ur sem íþróttabær), framhalds- skólamálefni (vinna að því að fá fjármagn til stækkunar heimavist- ar FNV) og samgöngumál (flug- völlur). Það er nauðsynlegt að vera vel á verði varðandi ný atvinnutæki- færi og má t.d. nefna þátttöku bæjarins í að koma á fót hlýsjáv- areldi og vatnsútflutningi. A því kjörtímabili sem nú er að Ijúka hefúr verið mikið unnið í atvinnu- málum. Til viðbótar við það sem þegar er talið má nefna þátt bæj- aryfirvalda í málefnum Loð- skinns hf og prjónastofunnar Vöku. Bæjaiyfirvöld tóku þátt í stofnun Isex hf og bæjarstjóm hefúr lýst yfir að hún er tilbúin til að taka þátt í frekari hlutafjár- aukningu í Skagfirðingi hf til að tryggja útgerð á Sauðárkróki. Eg er sannfærður um að sveit- arstjómarmenn hefðu fremurkos- ið sér það hlutskipti að taka frek- ar þátt í nýjum sóknarfærum í stað vamarbaráttu. Sóknarfærin hafa verið vandfundin, enda allir sveitarstjómarmenn um allt land að leita að tækifærum fyrir sitt byggðarlag. Mikilli vinnu og háum fjár- hæðum hefur verið varið til hafn- arframkvæmda á þessu kjörtíma- bili og ekkert lát er þar á. I sumar er gert ráó fyrir að steypa þekju á Suðurgarðinn. Bæjaryfirvöld hafa kappkostað að byggja íbúðir í fé- lagslega krefinu og hefur það stuðlað aó vinnu fyrir bygginga- verkamenn. I samvinnu við Hér- Björn Sigurbjörnsson. aðsnefnd Skagfirðinga hefur ver- ið unniö að byggingu bóknáms- húss FNV og sér nú fyrir að lang- þráóur draumur muni þar rætast. Næst þarf að leggja áherslu á stækkun heimavistarinnar og efla verkmenntun við skólann með því að gera kennsluaðstöðu í þeim greinum fyrsta flokks. Einnig hafa bæjaryfirvöld í samvinnu við Héraðsnefnd og Byggðastofúun byggt stjómsýslu- hús. Það hús er stórglæsilegt og sómir sér vel við Faxatorg. Afram mætti telja og tíunda það sem gert hefúr verió á Sauðárkróki síðustu fjögur árin. Þessi upptalning af- sannar þá fullyrðingu að ekkert hafi verið gert á yfirstandandi kjörtímabili. Lokaorð Núverandi meirihluti setti af stað sérdeild við Gagnfræöaskól- ann og með mikilli vinnu og sam- eiginlegu átaki bæjarráðsmanna var sett á stofn vistheimili fyrir sérdeildamemendur hér á Sauðár- króki. Vistheimilið er rekið af Svæðisstjóm fatlaðra á Norður- landi vestra í samvinnu við fé- lagsmálaráðuneytið. Þessi starf- semi, sérdeildin og vistheimilið veitir yfir 10 störf í bæjarfélaginu. Jafnaðarmenn hafa stutt dyggilega hugmynd þá sem stjóm íþróttafélagsins Grósku kom á framfæri um byggingu sundlaug- ar við Sjúkrahús Skagfirðinga sem varð til þess að skriður komst á málið. Bæjaryfirvöld, héraðs- ncfnd og stjóm sjúkrahússins hafa unnið að málinu en ekki einn flokkur. Jafnaðarmenn munu leit- ast við að leggja sitt lóð á vogar- skálina til þess að framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Með því að setja x-ið við A þann 28. maí nk. tryggir þú áffam- hald sóknarleiksins til sigurs fyrir Sauðárkrók. Afram Sauðárkrók- ur, XA. (Bjöm Sigurbjömsson er nú- verandi formaður bæjarráðs og skipar efsta sæti A-listans í kom- andi bæjarstjómarkosningum.) Hvað tekur við að kosningum loknum? inn í bæjarstjóm sé þrotinn kröft- um og þar fram eftir götunum. En ef leitað er eftir því hvað það er sem framsóknar- og al- þýðubandalagsmenn hafa til mála að leggja, hvað það er sem þessir frambjóðendur hafa hugsað sér að gera til þess að koma öllu í rétt horf, þá finnst lítið af lausnum. Úrræði G-listans I blaði Alþýðubandalagsins „nv Skagfirðingur“ 2. tölublað 1994, segir í ávarpi frambjóðenda G-listans. „Sauðárkrókur er eitt af þeim bæjarfélögum í landinu, sem átt hefur að fagna vexti og framfömm um langt skeið“. Og síðar í sama ávarpi: „A Sauðár- króki hefúr margt verið vel gert í bæjarmálum á liðnum ámm". Þetta em einmitt sömu árin (átta síðastliðin ár) og sjálfstæðis- menn hafa haft forystu í meiri- hlutasamstarfi í bæjarstjóm Sauð- árkróks. Það er því ekki lítil málefnafá- tækt, að frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins hefji baráttuna und- irkjörorðunum, ábyrg stjóm - öfi- ugt atvinnulíf. Metnaðarfullt fram- boð f ramsóknar- manna? I blaði framsóknarmanna, Framsókn til forystu, útgefnu 22. apríl sl. segir Stefán Logi Har- aldsson sem skipar 1. sæti listans, undir fyrirsögninni: Besti kostur- inn. „Við framsóknarmenn höf- um stillt upp framboðslista, skip- uðu metnaðarfullu, samstilltu og þróttmiklu fólki sem sannarlega er tilbúið að taka við forystu í stjómun bæjarins“. Og undir íyr- irsögninni: okkar sjónarmið, í sama blaði kemur fram að eina markmið framsóknarmanna, er aö vinna fjóra menn í bæjarstjóm, og ná þannig hreinum meirihluta. Þetta er svo sem ekki lítið mark- mið í sjálfú sér, en ekki er ólíklegt aó kjósendum á Sauðárkróki finn- ist þrír fúlltrúar framsóknarmanna fúll nóg. Kjósendur á Sauðárkróki eiga rétt á því að vita meira um fram- bjóðendur Framsóknarflokksins en það, að á ferðinni sé metnaðar- fullur, þróttmikill og samstilltur hópur sem tilbúinn sé til þess að takast á við erfiðleikana, án þess þó að skilgreint sé, í hverju erfió- leikamir felast. Víst komast menn býsna langt á góðum vilja og metnaði, en hér virðist þurfa örlítið meira til. Töfralausnin Vió skoðun á stefnuskrá B- listans virðist hinum þróttmiklu og meúiaðarfullu frambjóðendum fátt nýtt hafa komið í hug, en þó luma þeir á einu leynivopni sem nú er beitt og snertir alla mála- fiokka. Þaó eina sem frambjóðendur Framsóknarfiokksins virðast sjá, sem töfralausn á öllum vanda samfélagsins er gerð þriggja ára áætlunar, svo sem sveitastjómar- lög kveða á um. Vissulega skal það ekki dreg- ið í efa að gerð slíkrar áætlunar er þörf og hið besta mál, en hinu má heldur ekki gleyma, þrátt fyrir að þessir frambjóðendur kjósi nú að gleyma því, þá hafa verið gerðar slíkar áætlanir, og það sem best er, aó allar rekstraráætlanir hafa fyllilega staðist, en hins vegar, og það vita minnihlutafulltrúamir líka, þá hefur orðið að taka allar fjárfestingaáætlanir til endurskoð- unar og gagngerðra bieytinga. Það hefur gerst vegna þess að bæjarsjóður hefúr, nánast á hverju ári orðið að koma til aðstoðar fyr- irtækjum, sem hafa barist í bökk- um, og á þann hátt stuðlað að því að forða fyrirtækjum frá gjald- þrotum og því að fjöldi fólks yrði atvinnuleysinu að bráð. Þetta vita fulltrúar minnihlut- ans, enda hafa þeir hver og einn einasti, samþykkt einróma allar aðgeróir bæjarins í þessum efn- um. Hinsvegar er þægilegt núna, rétt fyrir kosningar að bretta upp ermamar og segja að auðvitað þurfi að gera þriggja ára áætlun svo komist verði hjá skipulags- lausum og tilviljakennndum björgunaraðgerðum“ sem komi að takmörkuðu gagni. Ég býst vió að starfsfólk þess- ara fyrirtækja sem nú sér fram á nokkuð trygga atvinnu sé lítið þakklátt frambjóðendum Fram- sóknarflokksins þau ummæli sem þeir láta falla um atvinnumál þeirra og afkomuöryggi. Hverju hefði mátt sleppa? Kjósendum á Sauðárkróki er því ljóst, að frambjóðendur B- lista, sem verið hafa í minnihluta í bæjarstjóm síðasta kjörtímabil, em núna að brydda upp á ágrein- ingsefnum, og láta í veðri vaka að það sem gert hefur verið til dæm- is í atvinnumálu hafi verið handa- hófskenndar skyndilausnir. Því er hér með skorað á fram- bjóðendur B-listans að svara því, hverju þeir hefðu viljað sleppa, af því sem gert hefur verið á þessum vetvangi. En þá kemur aö því að menn vilji eigna sér það sem vel hefur til tekist, en ljóst er að það sem gert hcfur verið, hvort sem lokið er eða komið vel á veg, er í stefnuskrá sjálfstæðismanna frá síðustu kosningum. Hvort sem minnihlutaflokkun- um líkar það betur eða verr, geta þeir hvorki þakkað sér útbætur í málum leikskóla, (nær væri að segja, þrátt fyrir afskipti fulltrúa Framsóknarflokksins), né upp- byggingu og endurskipulag íþnótta- svæða, stofúun félagsmiðstöðvar, stofnun sérdeildar og ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu, ráðningu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, ný atvinnutækifæri í bænum og minna atvinnuleysi cn á sambæri- legum stöðum. Vel má vera að andstæðingar okkar sjálfstæðismanna muni nú fyrir kosningamar, eins og við þær síðustu, koma þeirri sögu á kreik, að verði sjálfstæðismenn áfram við stjómvölinn verði ung- lingavinna felld niður eða almenn þjónusta skert, og reyna þannig að skapa einhverskonar hræðslu- ástand, til þess að blekkja kjós- Framhald á 2. síðu.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.