Feykir - 22.06.1994, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Mál undibúið gegn
norsku gæslunni
Sjóprófa krafist í Svalbarðamálinu
Hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn 17. júní voru með minna móti á flestum stöðum, vegna afmælis-
hátíðar lýðveldisins á Þingvöllum og héraðshátíða sem víða fara í hönd eða standa yfir þessa dagana.
Fjallakonan lét sig þó ekki vanta og á Sauðárkróki var það Aðalheiður Arnórsdóttir sjúkraliði og
fyrrverandi bæjarfulltrúi sem flutti ávarp fjallkonu. Þá sýndu skátar meðferð íslenska fánans.
Félagsmálaráðuneytið vegna kæru inn á kjörskrá á Blönduósi:
Átelur vinnubrögð bæjarstjórnar
í dag og kvöld er von á skag-
firsku togurunum Drangey og
Hegranesi til heimahafnar á
Sauðárkróki eftir að sjómenn á
báðum þessum skip hafa staðið
í ströngu á Svalbarðasvæðinu
við að verjast aðgerðum
norsku strandgæslunnar. Það
þótti t.d. mesta mildi að skip-
verjar á Drangeynni skyldu
sleppa lifandi undan Senja
stærsta skipi strandgæslunnar,
sem er margfalt stærra skip en
Drangey, er það sigldi á fullri
ferð í átt að skipinu. Með snar-
ræði skipstjórnenda á Drang-
eynni tókst að bakka skipinu á
öskotsstundu, þannig að Senja
fór 2-3 metra framhjá stefninu.
Ekki hefði þurft að spyrja að
leikslokum ef norska skipið
hefði siglt á framhluta Drang-
eyjar eins og í stefndi, en hluti
áhafnar var sofandi í lúkarn-
um.
Islenskum skipum stóð mikil
ógn af aðgerðum strandgæslunn-
ar aðfaranótt sunnudagsins þegar
atburðir þessir gerðust, og í ffam-
haldi af því ákváður útgerðarað-
ilar skipanna að draga skip sín
burtu af svæðinu í bili og bíða
ákvarðana stjómvalda. Ríkisstjóm-
arfundur í gær fordæmdi aðgerðir
norsku Strangæslunnar og sam-
þykkti að fenginn yröi viður-
kenndur erlendur sárfræðingur í
þjóðarrétti til að rannsaka málið.
Einar Svansson framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar/Skagfirðings
segir að í undirbúningi sé máls-
höfðun á hendur norsku strand-
gæslunni vegna atburðarins að-
faranótt sunnudags
„Okkur fínnst þessi ákvörðun
ríkisstjómarinnar óþarfa málaleng-
ingar og hefðum frekar kosið aö
málinu yrði skotið strax til
Alþjóðadómstólsins í Haag, eins
og báðar þjóðimar skrifuöu undir
í Svalbarðasamkomulaginu. Við
ætlum aó láta sjópróf í málum
Hegraness og Drangeyar fara fram
á Akureyri og munum sækja það
fast að sjópróf verði einnig tekin
af skipstjóra norska strandgæslu-
skipsins Senja“, sagði Gísli Svan
Einarsson útgerðarstjóri Skag-
firðings í gær.
Bjöm Jónasson skipstjóri á
Drangey segist ekki hefði trúað
því að svona atburður gæti átt sér
stað, ef hann hefði ekki orðið
vitni að honum sjálfúr. Hann seg-
ir mestu mildi að vél skipsins hafi
tekið svona fljótt við sér, en sett
var á mestu möguiegu ferð áft-
urábak þótt hætta væri á að vél-
in dræpi á sér vegna snöggra á-
taka, sem vissulega var lífsnauð-
synlegt í þessu tilviki. Atburðir
þessir vom teknir upp á mynd-
band, sem verður notað sent
sönnunargögn í málinu, en Noró-
menn hafa neitað því að hafa sett
líf og limi íslenskra sjómanna í
hættu á svæðinu.
Norska strandgæslan klippti
aftan úr Hegranesi ásamt Blika
frá Eyjafirði fyrir helgina, en
skipverjum á báðum þessum
skipum tókst að ná trollinu aftur.
Mjög góð veiði var á Svalbarða-
svæðinu meðan skipin gátu at-
hafnað sig. Annað skagfírsku
skipanna fékk 30 tonn fyrsta hálfa
sólarhringinn.
Félagsmálaráðuneytíðtelur það
ámælisverð vinnubrögð af
hálfú bæjarstjórnar Blönduóss
að hafa tekið Sigurjón Inga
Sigurðsson inn á kjörskrá fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar
28. maí sl. Sigurjón Ingi er ungi
maðurinn sem var á kjörskrá
bæði á Blönduósi og Sauðár-
króki og kaus á báðum þessum
stöðum, að hans sögn vegna
þess vafa er ríkti í málinu og
vegna þrýstings, en það hefúr
nú komið í ljós, sem vísir menn
þóttust reyndar vita fyrir, að
Sigurjón Ingi var ólöglega sett-
ur á kjörskrá á Blönduósi.
Félagsmálaráðuneytið vitnar í
kosningalögin sem kveða ótví-
rætt á um að viðkomandi einstak-
lingur tilheyri kjörskrá á þeim
stað sem hann hafði lögheimili
fimm vikum fyrir kjördag, í
þessu tilfelli 23. apríl. Lögheimili
Sigurjóns Inga var hinsvegar ekki
flutt frá Sauðárkróki til Blöndu-
óss fyrr en 11. maí. Bæjarstjórinn
á Blönduósi kveðst hafa gert að-
ilum grein fyrir þessum ákvæð-
um laga og reikna mætti með því
að viðkomandi einstaklingur yrði
kærður til baka á kjörskrá á Sauð-
árkróki, sem og var gcrt. Það má
því segja að togast hafi verið á
um atkvæði þessa unga manns
milli Blönduóss og Sauðárkróks.
Ekki bætti úr skák fyrir Sigur-
jón Inga, sem fékk það raunveru-
lega aldrei upp hvar hann væri
réttilega á kjörskrá, að hann hafði
skrifað á áróðursplagg þar sem
hann lýsti yfir stuóningi við
Framsóknarflokkinn á Sauðár-
króki. Kom því einnig til þrýst-
ingur á hann að kjósa á Króknum
og lét hann undan þeim þrýstingi.
En það hefur sem sagt komiö í
Ijós að atkvæði hans á Sauðár-
króki var löglegt, en hinsvegar
kosning hans á Blönduósi ólög-
leg. Kjörstjóm á Sauðárkróki var
alltaf í vissu um að Sigurjón Ingi
væri löglegur á kjörskránni, sam-
kvæmt upplýsingum formanns
yfirkjörstjómar á Sauóárkróki
Jóns Halls Ingólfssonar.
Samkvæmt heimildum Feyk-
is verður kosningin ekki kæró á
Blönduósi, enda skipti atkvæðið
engu máli varóandi úrslit kosn-
inganna.
Gjaldþrotum fjölgar stórlega
Fjöldi gjaldþrotabeiðna hjá Hér-
aðsdómi Norðurlands vestra hef-
ur aukist gífiirlega fhi síðasta ári
Þegar hafa borist 11 fleiri beiðn-
ir en allt árið í fyrra, eða 35 að
tölu. Samþykktar hafa verið 24
gjaldþrotabeiðnir, eða sami íjöldi
beiðna og barst allt síðasta ár.
Sex beiðnir hafa verið afturkall-
aðar eða felldar niður. Nokkrar
bíða afgreiðslu.
Samkvæmt upplýsingum Hall-
dórs Halldórssonar héraðsdómara
er bæði um fyrirtæki og einstak-
linga að ræða, nokkuð jöfnum
höndum. Gjaldþrotabeiðnimar
koma flestar úr Húnavatnssýslun-
um, 23 að tölu, 8 ffá Siglufirði og 4
úr Skagaíjarðarsýslu.
—KTen?lll Np—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Æ
bílaverkstæði
simi: 95-35141
Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæöi
RÉTTINGAR • SPRAUTUN