Feykir


Feykir - 22.06.1994, Page 3

Feykir - 22.06.1994, Page 3
24/1994 FEYKIR3 Skagfirðingar! Föstudaginn 1. júlí n.k. höldum við upp á 30 ára afmæli útibús Búnaðarbankans á Sauðárkróki. í tilefni dagsins bjóðum við upp á kaffi og meðlæti. Ókeypis myndataka í debetkort allan daginn. Allir hjartanlega velkomnir. BÚNAÐARBANKIÍSLANDS Útibúið á Sauðárkróki Dregið í Bikarnum I>au voru misjaíulega heppin liðin af Norðvesturlandi sem komust í 32-liða úrslit Bikar- keppni KSI, en þau fara fram í næstu viku, 29. og 30. júní. Sigl- firðingar urðu heppnastir, fengu 1. deildarlið ÍBV, Tinda- stóll og Hvöt mæta hinsvegar liðum úr annarri deild. Tinda- stóll leikur gegn I>rótti frá Reykjavík og Hvöt gegn KA. Allir þessi leikir fara fram á heimavöllum liðanna héðan úr kjördæminu. I undanúrslitunum gjörsigraði KS Þrym 11:0 og má meðal íinn- ars nefna að Midsa gerði þrennu í leiknum. Tindastóll sigraði Neista 2:0 í hörkuleik á Hofsósi, með mörkurn þeirra Marteins Jónsson- ar og Bjöms Sigtryggssonar. Hvöt sigraði Magna í maraþonleik á Blönduósi sem endaði í víta- spymukeppni. Lokatölur urðu 6:5, en staðan eftir venjulcgan leiktíma var 2:2. Sveinbjöm As- gnmsson og Asgeir Valgarðsson skoruðu mörkin í vcnjulegum lciktíma. Sólonbjórinn vígður í tilefui Sumarsæluvikunnar tóku veitingahúsaeigendur á Sauðárkróki sig saman um að láta brugga sérstakan bjór í tilefni vikunnar. Víkingbrugg á Akureyri tók að sér framleiðslu bjórsins og hlaut hann nafnið Sólon bjór í höfúðið á snill- ingnum Sölva Helgasyni. Miðinn á flöskunum er einmmitt með teikningu eftir Sölva og er ákaflega fallegur. Mjöðurinn, scm er 5% að styrkleika, vcrður aðcins til sölu á veitingahúsum bæjarins, cnda var framleitt t;ikmarkað magn. Til stóð að veiringahúsin rækju sam- eiginlega krá meóan á Sumar- sæluvikunni stcndur, í gömlu húsi bak við Hegra, scm brátt verður rifiö. I þessu húsi, sem er í eigu KS, var um síðustu aldamót selt brcnnivín. Til stóð að kalla krána Alsælukrá, en ekki fékkst leyfi fyrir starfrækslu hennar hjá vínveiringayfirvöldum landsins. Skálað í Sólonbjórnum fyrir framan gamla brennivínshúsið á Króknum: Elías Guðmundsson Hótel Mælifelli, Vigfús Vigfús- son Aningu, María Björk Ingvadóttir KafB Krók, Örn Ingi fram- kvæmdastjóri Sumarsæluvikunnar og Guðmundur Jónbjörns- son Pollanum pidsahúsi. Davíð og Ragnar Már hafa ærinn starfa við að hreinsa rusl meðfram vegunum, ásamt ýmsu öðru sem taka sér fyrir hendur hjá vegagerðinni. „Þarf að gera ýmislegt fleira hjá Vegagerðinni en leggja vegi" , Já, það þarf að gera ýmislegt fleira hjá vegagerðinni en að leggja vegi. I>að er t.d. þónokk- uð að gera í þessu hjá okkur, talsvert af rusli meðfram veg- unum í héraðinu“, sögðu þeir Davíð Harðarson og Ragnar Már Magnússon starfsmenn Vegagerðarinnar þar sem þeir voru að tína upp spýtnasprek og annað rusl meðfram veginu við Borgarsand skammt neðan Alexandersflugvallar í blíðunni daginn fyrir þjóðhátíðina. Segja má að þeir Davíð og Ragnar Már hafi verið komnir í þjóðhátíðarskap, að minnsta kosti lctu þeir vcl y fir hlutskipti sínu hjá vegagerðinni, sögðu þctta mjög fjölbreytt, skemmtilegt og lær- dómsríkt. Þetta er annað sumar Ragnare hjá VR en Davíð byrjaði í vor. A mcðan blaðamaður Feyk- is átti orð við þá félaga, rcnndi að Reynir Stefánsson verkstjóri og var hann að setja piltunum fyrir verkcfni. I ljós kom að þcgar þeir væru búnir að hreinsa ruslið inn í Krók beið þeirra verkefni handan Vatna. Það þurfti að liuga að klæöningunni við Grafarána, sem smitaði eitthvað. Til að laga það áttu þeir Davíð og Ragnar Már að taka í kerruna möl úr haug við Sleitustaði og sáldra ofan í „blæð- andi" malbikiö eins og Reynir kallaði það. ,Já. það vill svo til að það er sá dagurmánaðarins sem malbikinu blæðir við Grafarána", sagði Dav- íð og grípur til fyndninnar, og við- stöddum er einnig skemmt. Það hefur verið í nógu að snú- ast fyrir vegageröarmenn í vor. Davíð sagðist hafa verið mestan tíma vorsins frammi í Norðurár- dal þar sem viðgerð hefur staðið yfir á veginum eftir vatna- skemmdimar um Hvítasunnu- hclgina. Ragnar lenti t.d. í að að- stoða við moksturinn yfir Lág- heiðina og hefur þá væntanlega séð muninn á vetrarríkinu við Tröllaskagann og undir Tinda- stólnum. Annars sagði Ragnar að þeir félagar væru búnir að vera talsvert saman í formerkingum, þ.e. að setja hvítu punktana á mið- línu vegarins, og merkja þannig fyrir gulu línunni. Þannig væru þcir búnir að merkja veginn alveg frá Fljótum og upp á Vatnsskarð. „Þetta er bónusinn okkar", segja þeir og benda á pallinn á pickupnum þ;ir sem er smábingur af glerjum og öldósum. „Þetta er nú lítið núna miðað við hvað er mikið komið af rusli í kerruna", sagöi Davíð og kvað alveg af og frá að þetta rynni til einhverra góðgerðarfélaga, heldur færi það bcint í þeirra eigin vasa. ,Já það er nóg að gera hjá okkur. Allt frá því að svara í síma og legga ræsi eða girða", sögðu strákamir að end- ingu.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.