Feykir - 14.12.1994, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
„Ekki marktæk
gagnvart okkur"
Segir vöruhússtjóri Skagfirðingabúðar
um niðurstöðu verðkönnunar þar sem
verslunin kom ákaflega illa út
„Þessi könnun er alls ekki
marktæk hvað okkur varðar,
þar sem flest þeirra vöru-
merkja sem teknar eru í könn-
uninni eru í lítilli sölu hjá okkur
og því leggjum við litla áherslu
á verðlag þeirra. Vegna beins
innflutnings erum við með aðal-
söluna í öðrum vörumerkjum
sem hinar verslanirnar í könn-
uninni eru ekki með. Það eru
Súpermerkið og önnur merki.
T.d. er nánast öll kafflsala hjá
okkur í Súperkaffl, súkkulaði-
drykkurinn Nesquick er iítið
seldur hjá okkur, aðalsalan er í
sambærilegum drykk sem heit-
ir Mix fix, þannig mætti áfram
telja, og ég fullyrði að Skagfirð-
ingabúð er með fyllilega sam-
bærilegt vöruverð við stærstu
verslanirnar á Norðurlandi, og
í mörgum tilfellum lægra verð.
Þá er vöruframboð hjá okkur
með því mesta sem gerist“, seg-
ir Ómar Bragi Stefánsson vöru-
hússstjóri í Skagfirðingabúð.
„Okkur finnst þessi könnun
ákaflega ósanngjöm, þar sem að
greinilegt er að vöruflokkamir voru
valdir í verslunum KEA á Akur-
eyri. Síðan er það „presenterað“
að vömúrvalið sé minnst hjá okk-
ur, þar sem fæst vörumerkin fund-
ust af þeim 108 sem valdin vom í
könnuninni. Það skýrist náttúrlega
af því að við emm með svo mörg
vömmerki sem koma í stað þeirra
sem vom í könnuninni. Svona
könnun gefur eiginlega tilefni til
að ætla að það eigi að stefha fólki
til Akureyrar til að versla fyrir jól-
in“, sagði Ómar Bragi.
Skagfirðingar urðu felmtri
slegnir þegar niðurstöður könnun-
arinnar birtust, og mörgum kom í
hug hvort samkeppnin milli mat-
vömverslana á Sauðárkróki væri
nú ekki meiri en þetta.
Niðurstaðan í verðkönnuninni
sem Neytendasamtökin gerðu í
matvöruverslunum á Norðurlandi
nýlega er þessi. Lægst var verðið í
KEA-Netto,16% dýrari í KEA
Hrísalundi, 18% dýrari í Hag-
kaup, 19% dýrari í Þingey á Húsa-
vík, verðlag var 23% hærra í Mat-
bæ á Akureyri en í Nettó, 29%
hærra í Svarfdælabúð og Valberg
á Ólafsfirði, 31 % hærra verð var í
Kjörbúðinni Kaupvangi, 32%
hærra hjá útibúi KEA Ölafsfirði
og verðið var 34% hærra í Skag-
firðingabúið en hjá Netto sam-
kvæmt könnuninni.
Vilhjálmur Ingi Amason for-
maður Neytendafélags Akureyrar
og nágrennis segir Húsvíkinga
standa sig vel í verðsamkeppn-
inni, enda hafi Húsvíkingar áttað
sig á því að ef þeir stæðust ekki
samkeppnina myndi hluti verslun-
arinnar flytjast til Akureyrar. „I
ljósi þessa er undarlegt hversu hátt
verðið er á Sauðárkróki. Það virð-
ist sem Skagfirðingar njóti ekki
góðs af þeirri miklu samkeppni
sem ríkir á matvömmarkaði á
Norðurlandi", segir Vilhjálmur
Ingi í samtali við Mbl. sl. laugar-
dag. Hann spáir því að ef verðlag
lækki ekki á Króknum muni
verslun Skagfiróinga flytjast í
auknum mæli til Akureyrar. „Mér
er nú kunnugt um að Skagfirð-
ingabúð hefur nú þegar lækkað
verð á hluta þeirra vömflokka sem
könnunin náði yfir og ætlar sér að
gera enn betur, þannig að þessi
könnun er nú þegar farin að skila
kjarabót til Sauðkrækinga og ná-
granna", sagði Vilhjálmur Ingi.
Þrátt fyrir gengdarlausar veiðar skagfírskra togara í Smugunni á þessu ári, í óþökk frænda
okkar Norðmanna, brást það ekki frekar en vanalega að vinabær Sauðárkróks, Kongsberg,
sendi jólatré að gjöf til bæjarins og að þessu sinni stærra og myndarlegra en nokkru sinni áður.
Það er 11 metra hátt og nær vel yfir fánastöngina á torginu. Kveikt var á trénu við hátíðlega
athöfn á torginu sl. laugardag. Krakkarnir í skólakórnum drógu hvergi af sér við söng jóla-
laganna, blásarasveit lék, Jónas Snæbjörsson forseti bæjarstjórnar flutti ávarp og tendraði
ljósin. I þann mun kom jólasveinamir arkandi ofan úr Gönguskörðum og blönduðu geði við þá
fjölmörgu sem mættir voru á torgið, og að sjálfsögðu voru þeir með glaðning í pokanum sínum.
Átta togarar að
veiðum yfir jólin
Helmingurinn togarar Skagfirðings
Allir fjórir togarar Skagfirðings
selja í crlcndum höfiium í byrjun
næsta árs og verða því að veiðum
yfir hátíðarnar. Fjögur önnur
skip, frá sitthvorri útgerð, ;'.;rða
einnig að veiðum yfir jólin og
áramótin, og tvö til viðbótar fara
út milli jóla og nýárs. Þá gæti
Rauðinúpur frá Raufarhöfn
bæst við þcnnan hóp en skipið á
söludag í Hull í Bretlandi 11. jan-
úar.
Skagfirðingur og Hegranes selja
í Bremerhafen í Þýskalandi. Skag-
firðingur á söludag 9. janúar og
Hegranes þann 11. Skafti og
Drangeyjan selja í Hull í Bretlandi.
Skafti á söludag 3. janúar og
Drangey 9. janúar.
Það verður Grandatogarinn
Engey sem selur fyrstur skipa á
nýja árinu, 2. janúar, þá Sveinn
Jónsson frá Miðnesi í Sandgerði 4.
janúar, Breki Vinnslustöóvarinnar í
Vestmannaeyjum selur 5. janúar,
Haukur frá Valbimi í Sandgerði á
söludag 12. janúar, Viðey frá
Granda þann 16. og Vestmannaey-
ingurinn Dalarafn selur 19. janúar.
Öll selja þessi skip í Bremerhafen í
Þýskalandi.
Svínavatnshreppur:
Tvö riðu-
tilfelli í
haust
Nýleg.' var staðfest riða í kind
að Stóra-Búrfelli í Svínavatns-
hreppi. Þetta er annað riðutil-
fellið sem upp kemur í Svína-
vatnshreppi í haust. Nýlega
var fargað hjörðinni á Ytri-
Löngumýri.
Stór fjáruú hafa verið á báð-
um þessum bæjum. Þrír hreppar
hafa einkanlega orðið fyrir barð-
inu á þessum illvíga sjúkdóm
sem riðan er og virðist lítiö lát á
þrátt fyrir að ýmsum aðgerðum
hafi verið beitt á seinni árum.
Þetta em Svínavatnshreppur,
Engihlíðarhreppur og Ashrepp-
ur.
—KTcn^ill —
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
jm
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata Ib 550 Sauðórkrókur Fax: 36140
Bílaviögeröir • Hjólbaröaverkstæöi
RÉTTINGAR • SPRAUTUN