Feykir - 14.06.1995, Side 5
23/1995 FEYKIR5
Jón Amar Magnússon.
bestu tugþrautarmönnum heims,
en að þessu sinni mættu Banda-
ríkjamennimir ekki þar sem aö
stutt var í bandaríska meistara-
mótið. En eigi aó síður var mótið
sterkt og keppendur vom m.a.
Tékklendingurinn Robert
Zmelik, sem varð olympíumeist-
ari 1992 og franski Evrópumeist-
amn frá 1990, Cristinan Plaziat.
Þeir urðu báðir á eftir mér núna.
Sem dæmi má nefna, að 14
keppendur fóru yfir 8000 stig
núna, en í íyrra varð ég 13. með
7895 stig. Sá árangur hefði dug-
aðtil 18. sætisnú".
Enn nokkur ár í kjöraldur
Kjöraldur tugþrautarmanns er
talinn í kringum 30 ára aldurinn
og Jón Amar á nokkur ár í hann
enn. „Breti sem keppti við mig í
Götz var 32ja ára og hann bætti
sig, þannig að ég er bjartsýnn.
Eg hóf líka ekki alvöru æfingar
lyrr svo seint og hef sloppið við
meiriháttar meiðsli þannig að
líkaminn á að vera í góðu standi.
í tugþraut koma hæðir og lægðir
og því verður að sýna þolinmæði
þar eins og annars staðar“, segir
Jón Amar.
Hofsósingar halda
átthagamót
Um næstu mánaðamót verð-
ur haldið á Hofsósi í fyrsta
sinn, Átthagamót Hofeósinga.
frar munu koma saman burt-
fluttir Hofeósingar og núver-
andi íbúar staðarins og blanda
geði eina helgi. Að sögn
Björgvins Guðmundssonar
annars forvígismanns Átt-
hagamótsins er mikill áhugi
fyrir því og útlit fyrir góða
þátttöku.
„Eg setti smáauglýsingu í
DV í vetur og þá strax hringdu
margir. Geiri á Bakkanum var
t.d. einn þeirra sem fyrstir
hringdu og síðan hringdi hann
út um allar trissur og það hafa
fleiri gert, þannig aö þetta virð-
ist líta nokkuð vel út“, sagði
Björgvin.
Komið verður saman á
Hofsósi seinnipart föstudagsins
30. júní og grillað um kvöldið.
Engin eiginleg dagskrá verður á
laugardeginum en reiknað með
góðri fjölskyldu- og tjaldbúðar-
stemmingu. Grillað verður um
kvöldið og síðan fjölskyldu-
dansleikur í Höfðaborg, þar sem
að Gautamir leika fyrir dansi.
„Ég vil beina því til fólks að
taka söngbókina með, gítarinn
og harmonikkuna. Þetta verður
á léttu nótunum hjá okkur“, seg-
ir Björgvin. Fyrir þá sem vilja,
t.d. eldra fólk, er hægt að panta
mat, sem framreiddur verður í
félagsheimilinu Höfðaborg. All-
ar upplýsingar um Átthagamót-
ið fást hjá hinum forvígismann-
inum, Steinunni Ingvadóttur í
síma 453 7341 og 453 7367, og
hjá Björgvin í síma 453 5609.
Hross til sölu!
Til sölu hross á ýmsum aldri. Mörg skjótt hross í
hópnum. Upplýsingar í síma 453 5971.
Jón Arnar Magnússon tugþrautarmaður:
Æfir grimmt fyrir heims-
meistaramót og ólympíuleika
Jón Arnar Magnússon tug-
þrautarkappi heldur áfram að
gera það gott. Um helgina
bætti hann Islandsmetið í 110
metra grindarhlaupi sem hann
setti í Austurríki fyrir
skömmu. Sumarið verður
annríkt hjá Jóni Arnari. Hann
hefúr sett stefnuna á Olympíu-
leikana á næsta ári, en næsta
stórverkefni hans er heims-
meistaramótið í Gautaborg í
ágúst. Þar vonast hann til að
árangur mikilla æfinga skili
sér, þannig að hann verði einnig
gjaldgengur á miklu frjáls-
íþróttamóti í Talance í Frakk-
landi mánuði síðar. Þangað er
16 bestu á heimslistanum boð-
ið, en árangur Jóns á mótinu í
Götz á dögunum, 8237 stig,
skipaði honum í 6. sæti Iistans.
I undirbúningi er að Jón Am-
ar fái styrk frá Olympíuneínd ís-
lands og einnig nýtur hann
stuðnings fleiri aðila. Sjálfúr seg-
ist hann svo að segja vera orðinn
atvinnumaður, hafi verið kippt út
úr kennslu við gmnnskólann en
njóti þó grunnlauna, enda er lítill
tími til vinnu þegar æft er sex-sjö
tíma á dag. Það er Gísli Sigurðs-
son sem er þjálfar Jón og gengur
samstarf þeirra vel.
Það orð fór af Jóni Amari á
árum áður að hann væri einn lat-
asti íþróttamaður sem sögur fara
af, en það slyðruoró hefur hann
svo sannarlega rekið af sér. Sl.
vetur er þó sá fyrsti sem hann
æfði á fullu, fram að þeim tíma
æfói hann bara þegar hann
nennti“, eins og hann sagði í
samtali við blaðamann Mbl. ný-
lega.
Skaust fram úr evrópu-
og heimsmeisturum
„Ég þurfti að æfa mikið inn-
anhúss í vetur, en auk þess hljóp
ég um götur bæjarins og æfði
spretthlaup í sandinum niður í
fjöru, það var mjög gott og hafði
sína kosti. Auk þess lyfti ég í í-
þróttahúsinu í hádeginu á hverj-
um degi og eftir kennslu æfði ég
hlaup og spretti. Þá fékk ég tima
inni í íþróttasalnum á föstudags-
kvöldum og sunnudagsmorgn-
um, og notaði þá vel þrátt fýrir
að þetta væm ekki bestu tímamir
sem til voru“.
Jón Amar komst mjög óvæt
inn á mótið í Götz í Austurríki í
fyrra, sökum þess að einn tug-
þrautarmaður hrökk úr skaptinu
á elleftu stundu. Fyrirvarinn var
því lítill en samt náðist þrettánda
sætinu á þessu sterka móti.
„I kjölfarið var ég boðinn vel-
kominn til leiks nú í ár og mér
hefur líka verið boðið að vera
með næsta ár. Mótiö í Götz er
mjög öflugt. Á það er boðið 36
Skagfirðingar
Einangrunargler \ M j Speglagerð
Heildsala
íjí Rúðugler.
ijí Hamrað gler.
Vírgler, slétt og
hantrað.
❖ Öryggisgler, glært,
grænt og brúnt.
i|{ Litað gler, brúnt og
grænt.
Hringið og leitið tilboða
um verð og greiðslukjör.
❖ Spegilgler.
ijí Rammagler.
íji Öryggisgler í báta, bíla
og vinnuvélar
iji Borðaplötur, sniðnar
eftir máli.
iþ Speglar sniðnir eftir máli.
ijl Speglar í römmum.
iji Speglaflísar.
iji Gler í útihús.
íji Plexígler, margar pykktir.
iji Sendum um allt land.
% Silikon.
ijí Akrýlkítti.
% Úretan
iji Þéttilistar, svartir og hvítir.
iji Þéttifrauð, þéttipulsur.
iji Silikonprimer,
eldvarnarborði.
Öryggisskór.
íjí Vinnuvetlingar.
Eigum töluvert af ósóttum pöntunum af einangrunargleri, sem
henta vel í sumarhús o.fl. Seldar á hálfviröi. Skerum gler í
gróöurhús og útihús eftir óskum. Verö kr. 950/fm meö vsk.
fUl
InJ
Furuvellir 15 600 Akureyri
Sími 96-22333 Fax 96-23294
Auglýsing í Feyki ber arangur...