Feykir - 01.11.1995, Síða 3
38/1994 FEYKIR 3
flf
■JS
Aftaka október-
veður á 60 ára fresti
Svörtu sauðirnir
Eins og myndin hér að ofan sýnir er illa leikið grænt svæði milli
Sæmundargötu og Strandvegar, sem vinnuskóli Sauðárkróksbæjar
gerði á síðasta sumri. Þama hefur einhver jeppaeigandi stytt sér leið
og ekki þarf að fjölyrða um afleiðingar þess. En þetta er ekki eina
tilfellið þar sem slæmir jeppakarlar gera óskunda. Blaðamaður
Feykis varð vitni að því sl. miðvikudag að jeppaeigandi einn í
Túnahverfinu gerði sér lítið íyrir og ók þvert yfir túnið hjá sjúkra-
húsinu. Hellirignt hafði þennan dag og marga daga á undan þannig
að þaö var hreint óráð að fara þama um, fyrir utan þaó að ekki á að
þekkjast þegar þessi tími er kominn að ekið sé yfir græn svæði.
Það er þetta með svörtu sauðina.
Roar Kvam ráðinn
starfsmaður Menor
Roar Kvam, tónmenntakenn-
ari á Akureyri, hefur verið
ráðinn starfsmaður Menning-
arsamtaka Norðlendinga
(Menor) í hlutastarfi. Roar hóf
störf 1. október sl. og gildir
ráðningin í sex mánuði. Hann
verður með aðstöðu í Hrísa-
lundi 1 a á Akureyri, þar sem
Tónmenntaskólinn er til húsa.
Símatímar hans verða alla
virka daga nema íöstudaga kl.
13-14. Símanúmer Menors er
4626205.
Fyrsta verkefni Roars Kvam
verður að taka saman skrá um
allt listafólk og listliópa á Norð-
urlandi, sem hugsanlega em til
meö að fara með list sína milli
staða á félagssvæði Menor eða
til annarra landshluta. Skráin
verður sundurliðuð eftir list-
greinum, tónlist, leiklist o.s.frv.
einnig verður hún sundurliðuð
eftir sýslum og kaupstöðum á
Norðurlandi.
Skrá þessari veróur síðan
komið á framfæri við menning-
armálanefhdir sveitarfélaga, fé-
lagsheimili og ferðaþjónustuað-
ila á Norðurlandi o.fl. Þá mun
Roar veita listafólki upplýsingar
og aðstoð við skipulagningu list-
viðburða, auk þess sem hann
veitir fjölmiðlum upplýsingar
verði eftir því leitað.
Með ráðningu starfsmanns
tímabundið er merkum áfanga
náð í starfsemi Menor, en það
mál hefur lengi verið á dagskrá
hjá samtökunum. Hér er um til-
raun að ræða og takist vel til
gæti orðið framhald á. Stjóm
Menor væntir þess að með ráðn-
ingu starfsmanns verði samtökin
sýnilegri en verið hefur og fær-
ari um að sinna hlutverki sínu,
sem er að efla og örva menning-
ar- og listalíf á Norðurlandi.
Stjórnin hvetur 1 istafólk í
fjórðungnum til aó hafa sam-
band við Roar Kvam eða koma
vió á skrifstofunni á Akureyri og
afla upplýsinga. Síminn er sem
fyrr segir 462 6205.
Ólafur.
í fréttum af illviðrinu í síðustu
viku hafa veðurfræðingar
haldið því fram að svo slæmt
veður haíi ekki komið á þessum
árstíma síðan 1934. Til er góð
lýsing af því veðri í annál sem
Stefán Vagnsson þáverandi
bóndi á Hjaltastöðum í
Blönduhlíð skrifaði. Þar
kemur fram að þetta veður
var talið það versta sem komið
hafði á þessum tíma í yfir 60
ár. Þannig að svo virðist sem
svona veður komi á um 60 ára
tímabili.
Um árabil skrifaði Stefán ítar-
leg fréttabréf úr Skagafirði vest-
ur um haf til Kanada. Þessi bréf
voru send Jóhannesi Hannessyni
frá Grund, a.m.k. framan af, en
hann kom þeim síðan til blaðsins
Heimskringlu í Winnipeg, þar
sem þau voru birt. Bréf þessi
þykja hin merkasta heimild og
vom árið 1980 birt í Skagfirð-
ingabók.
Og það gekk ýmislegt á í tíð-
arfarinu þetta ár 1934. Þaó vor-
aði seint og gróóurleysi var mik-
ið, það svo að í júníbyrjun sást
alls ekki gróðurlitur á jöró. Og
þó góður sprettukafli kæmi í júlí
svo að tún spmttu með eindæm-
um, bjargaði það ekki málum
nema að litlu leyti, því á eftir
fylgdu óþurrkar. Hér á eftir kem-
ur síðan kafli úr þessum annál
Stefáns á Hialtastöóum um árið
1934.
„Er þetta líklegast alversta
óþurrkasumar, sem komið hefúr
í háa herrans tíð, eftir því sem
elstu menn segja, því þó þurrk-
flæsa væri dag og dag, þá notað-
ist það ekki að neinu ráói, vegna
þess hve bleytan var mikil í hey-
inu, og svo var strax komið
sama úrfellið aftur.
I vikunni fyrir göngurnar
komu fjórir þerridagar, og náðu
þá menn upp miklu af heyjum.
En sunnudaginn 16. var aftur
komin úrhellisrigning, svo eng-
inn gat náð heyinu heim, og á
þriðjudagskvöldið þann 18. s.m.
gerði þaö óskapa vatnsveður af
noróri að ekkert sem á undan var
gengið var sambærilegt við það.
Upp úr þessu veðri gekk svo í
frosthríð og fannkomu. Kom
það sér heldur illa, því þá voru
menn um allar sveitir í fjallgöng-
um. Er talið víst, að þá hafl fé
fennt í stórhópum, og maður
varð úti í þessum byl í Húna-
vatnssýslunni, og var mildi að
ekki varð meira manntjón, því
margir leitarmenn villtust og
vom mjög hraktir er þeir náóu til
mannabyggða.
Þetta áfelli lagði smióshöggið
á heyskapinn. Það má vera aö
hann hefði þó ekki oróið jafn-
hörmulegur ef hægt hefði verið
að ná því heim sem úti var um
göngur, með þeirri verkun sem
það hafði þá fengið. En nú var
loku fyrir það skotið. Allt það
hey sem þá var úti, og það skipti
fleiri þúsundum hesta í héraðinu,
mátti heita að yrði hálf- og sumt
alónýtt. Voru menn að koma
þessu heim allt haustið og dæmi
til að því var ekki lokið fyrr en
kom fram á vetur sums staðar.
Margir álitu að nú mundi
stilla til eftir þessi ósköp, en ekki
var því að heilsa, því enn var það
versta eftir. 26. október, föstu-
daginn seinastan í sumri, gekk
hann í það ofsafárveður af norð-
austri með frosti og snjókomu,
að talið er að þvílíkt veður hafi
ekki komió yfir Norðurland sl.
60 ár að minnsta kosti. Stóð það
fram á sunnudag. Var þá ljótt
um að litast er upp stytti. Stór-
fennið var óskaplegt og fullt
Stefan Vagnsson bóndi og hag-
yrðingur á Hjaltastöðum skrif-
aði ítarlegan annál þar sem
segir ffá októberveðrinu 1934.
hvert gil og skomingur. Þar sem
ekki var farið að hýsa fé, fennti
það og hraktist illilega. Eins
fennti hross og sum drap veðrið
hreint og beint.
En þó var tjónið af þessu of-
vióri langsamlega skaðlegast við
sjóinn, því brimið var með þeim
ódæmum, að slíkt höfðu menn
tæplega séð áður. T.d. á Hrauni á
Skaga stórskemmdist túnið af
möl og sandi, sem brimið bar
þangað; sömuleiðis á Þangskála.
Þar skemmdist túnið, og þar
braut það hús og hlöðu. En til-
fmnanlegustu tjóni urðu þeir fyr-
ir Jón Konráðsson hreppstjóri í
Bæ og Bjöm sonur hans. Þar tók
brimið burtu fiskhús, er þcir áttu
með 160 fiskpökkum tilbúnum
til útflutnings. Mun þaó tjón
tæplega innan við 4 þúsund
krónur. í Haganesvík stór-
skemmdust hús og vörur kaupfé-
lagsins þar. Einnig var sagt aö
brimið hefði sópað burtu 70 salt-
kjötstunnum, en eitthvað mun þó
hafa náðst af þeim aftur.
Skemmdir urðu talsveróar á
Sauðárkróki en þó ekki eins
miklar og búast mátti við, eftir
því sem þær uróu annars staðar
norðanlands. Kringum Eyjafjörð
uröu alls staðar stórskemmdir,
sérstaklega á Siglufirði".
□
Opnum Bílasölu og
Bílaleigu Borgarflöt 5
Sauðárkróki!
Góóur vinnustaóur og gott malbikaó útisvæöi.
Vantar bíla á skrá og til aó standa inni eóa úti. Góö aóstaóa.
Auglýsum bílinn þinn meó mynd þér aó kostnaðarlausu.
Tökum aó okkur þrif á bílum.
Bílaleigubílar á staónum.
Kíkiö á aóstöóuna. Heitt á könnuninni.
Bílasala / Bílaleiga Skagafjarðar sf.
Löggild bílasala, Borgarflöt 5,550 Sauðárkróki, sími 453 6050,453 6399, fax 453 6035.
Heimasími sölumanns 453 5410 (Gylfi).