Feykir - 06.12.1995, Side 2
2FEYKIR 43/95
Hólalax sendir bleikju á
Evrópumarkað í viku hverri
Hjá Hólalaxi er í viku hverri
slátrað 1-2 tonnum af bleikju
til sölu á Evrópumarkaði.
MMC Pajero, langur, 4 cyl.
2600 bensín, árg. '87. Ekinn 136
þúsund km. Verð 990.000.
MMC L 300 bensín 4x4 árgerð
1988, ekinn 110 þús. km. Verð
950.000. Sæti fyrir 8.
Bleikjueldið hefiir gengið vel í
Hólalaxi og markaðssetningin
er í þokkalegu horfi. Pétur
Brynjólfsson framkvæmda-
stjóri segir að það hafi reynst
þeim vel að koma þessu
ákveðna magni inn á markað-
inn í viku hverri.
„Við erum með alla þætti í
okkar höndum, og því er engum
millilið til að dreifa. Markaðs-
og gæðamálum bemm við alfar-
ið ábyrgð á og það held ég að sé
mjög mikilsvert. Ég held líka að
það sé skynsamlegt að jafna
lfamleiðslunni út á árið. Það er
mun betra að selja þetta svona
jafn óðum, en að slátra öllu á
einu bretti og þurfa að standa
klár á sölu svo mikils magns í
einu“, segir Pétur.
Pétur segir að verðið sem
fengist hafi fyrir bleikjuna sé
heldur hærra en fyrir laxinn, en á
móti komi að þetta sé dýrari af-
urð í framleiðslu, er felist aðal-
lega í því aö um minni físk sé að
ræða. Bleikjan er aðallega flutt á
markað slægð, en í vaxandi
mæli er hún flökuð og send kæld
eða frosin. Varðandi fiystinguna
hefúr Fiskiðjan reynst Hólalaxi
vel. A Hólum er löggilt aðstaða
til slátrunar, lítið sláturhús.
Hólalax er með stöð Fljótalax
á leigu og þar eru startfóðmð
400 þúsund bleikjuseiði og svo-
lítið magn er einnig í startfóðrun
á Hólum. Hólalax framleiðir ár-
lega 50 þúsund laxagönguseiði
sem sleppt er í laxveiðiámar á
Norðurlandi vestra, og einnig
200 þúsund sumaralin seiði sem
sleppt er í ámar. Varðandi af-
komu stöðvarinnar segir Pétur
Brynjólfsson að Hólalax haldi
vel sjó. Fyrirtækið var stofnað
fyrir um 15 árum, með 40%
stofhffamlagi ríkissjóðs og aðild
veiðifélaga í kjördæminu og ein-
staklinga tengdum þeim. Hjá
Hólalaxi starfa að jafnaði 5-6
manns.
MMC Pajero V6 3000, langur
4x4, ekinn 103 þús. km. Veró
2.100.000. Fallegur bíll.
Mazda 323 LX 1300 ár. '89,
ekinn 109 þús. km. Verð
490.000. Fallegurbíll.
MMC Pajero disel, stuttur, árg.
'83, ekinn 187 þús. km., nýupp-
tekinvél.Veið 480.000.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SE
Löggild bílasala
Borgarflöt 5, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
Heimasími sölumanns 453 5410.
Ný Ijóðabók frá
Sigurlaugi
Harmónikuljóð frá blýósen
heitir nýútkomin ljóðabók eftir
Sigurlaug Elíasson. Bókin skipt-
ist í fjóra kafla þar sem atvikum
er fylgt í eitt ár, ffá hausti ffam á
næsta haust.
Þetta er fimmta bók höfundar,
næsta bók á undan, Jaspís, kom
út 1990.
Sigurlaugur Elíasson er fædd-
ur á Borgarfirði eystra árið 1957
og uppalinn þar, en hefur verið
búsettur á Sauðárkróki í áratug
og viðflæktur staðinn öllu leng-
ur. I fyrri bókum bregður líka
víða fyrir stöóum og stemmning-
um sem hæglega má ættbókar-
færa i Skagafirði. Svo er einnig í
þessari bók, „Bronsfaxi", Bólu-
Hjálmar, Drangey og Heljardals-
heiði, öll á sínum stað. En ferðin
hefst þó á sænskum þjóóvegi og
leiðin hlykkjast um norska skóg-
arslóða, um spítalastíga og tæpar
götur á stundum, að vegarenda í
norðlenskum afdal, við bókar-
lok.
Bókin er saumuð kilja, 64 síður.
Prentuð í Sást hf. NORÐAN NIÐUR
gefur út. Vetð er 1580 kr.
Flutnings- og sendiþjónusta!
Er með flutningabíl og tek að mér alls kyns
flutninga, fyrir hvern sem er.
Vöruflutningar Björns Bjönssonar
í síma 853 5857 og 453 5971.
Þorvaldur Þorvaldsson fyrrum kaupm. í Vísi og Hlynur
Guðmundsson í Píramídanum með gamla jólasveininn.
Talið niður í Vísi
Hér í eina tíð var það vinsælt
hjá krökkunum á Króknum, þeg-
ar nálgaðist jólin, að gá í glugg-
ann í versluninni Vísi. Allt ffá því
aó Þorvaldur Þorvaldsson byrjaði
að versla þar 1945 var hann með
jólasvein til skrauts í glugganum
og á honum var rammi sem taldi
niður dagana til jólanna. Þegar
Þorvaldur hætti að vcrsla 1982
hvarf sveinninn út glugganum og
þar meó var krakkagerið við
gluggann í jólamánuóinum úr
sögunni. En nú er sveinninn kom-
inn í gluggann aó nýju, skraut
sem einu sinni þótti flott, en nú til
dags þykir kannski ekkert sérstakt
í samanburði við „glimmer" tíð-
arandans.
„Hlynur héma á hárgreiðslu-
stofunni haföi einhvem veginn
ffétt af sveininum og vildi endi-
lega fá hann hjá mér. Ég sá nátt-
úrlega ekkert því til fyrirstöðu",
sagði Þorvaldur þegar Feykir leit
við á hársnyrtistofunni Píramíd-
anum, sem er nú til húsa á Aðal-
götu 6 þar sem Vísir var áður. 50
ár em nú liðin frá því sveinninn
kom fyrst upp í Vísi.
Leikið í Ijósunum í kvöld
Fyrir helgina var lokið við að
koma upp lýsingu við malar-
völlinn á Sauðárkróki. I kvöld
kl. 19,30 verða ljósin vígð
formlega með fyrsta kapp-
leiknum við raffnagnslýsingu á
Sauðárkróki. Þá leiða saman
hesta sína lið Tindastóls og
Þórs frá Akureyri.
Knattspymumenn prófuðu
ljósin á æfingu sl. föstudags-
kvöld og létu þeir vel af lýsing-
unni. Ljóst er að tilkoma
ljósanna mun skapa byltingu í
knattspymuiðkun á Sauðárkrók,
og ekki ólíklegt að lið af Norður-
landi muni einnig njóta góós af.
Á Sauðárkróki verður knatt-
spyma nú heilsárs íþrótt í stað
hálfsárs íþróttar áður.
Við knattspymuvöllinn em
átta staurar og jafhvel stendur til
að bæta einum eða tveimur
staumm við. Á hveijum staur em
tveir kastarar, 400 watta. Það er
Rafveita Sauðáikróks sem gefur
þessa lýsingu við völlinn í tilefhi
70 ára afmælis síns á árinu, en
fyrirtækið gaf fyrr í haust af
þessu sama tilefni lýsingu upp
við sjúkrahúsið.
Atvinna
RKS Skynjaratækni óskar eftir að ráða starfsmann
til sölu- og framleiðslustarfa á rafeindabúnaði.
Umsækjandi skal hafa faglega þekkingu og
reynslu á markaðs- og sölumálum.
Krafist er kunnáttu í ensku og einu
norðurlandamáli.
Upplýsingar um starfið veitir Rögnvaldur
Guðmundsson í síma 455 4552.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Öm Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur Hennannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 137 krónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 150 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.