Feykir - 06.12.1995, Blaðsíða 3
43/1994 FEYKIR 3
Af götunni
Óskalagið
Einu sinni sem oftar sungu
þeir Álftagerðisbræður, Pétur og
Sigfús Péturssynir, við kirkju-
lega athöfn í guðshúsi þeirra
Sauðkrækinga. Þegar þeir höfðu
lokið við að syngja afskaplega
fallegt og hugljúft lag hvíslar
lítill drengur, Pétur að nafni,
stundarhátt aó móðir sinni:
„Mamma ætla þeir ekki líka að
syngja Hryssan mín blá.
(Þeim varö á í messunni)
Einn andsk......enn
Árið 1974 var kirkjan á Auð-
kúlu endurvígð en þá höfðu farið
fram miklar endurbætur á
guðshúsinu. Séra Pétur var að
skipuleggja messuna og gekk á
ýmsu. Meðhjálparinn, Þórður
Þorsteinsson á Gmnd, var maður
nákvæmur og vildi fá að vita
hver hefði hvaða hlutverk á
hendi í messunni og spurði: „Eg
veit séra Pétur að þú lest guð-
spjallið en lest þú líka pistilinn
eða einhver annar prestur?“
Þá segir séra Pétur hnussandi:
,J4ei, þaó er nú einn andskotinn
enn.“
(Þeim varð á í messunni)
Englahár
Bjarni Haraldsson kaup-
maóur á Sauðárkróki gerðist
hárþunnur með aldrinum og
seinast sköllóttur. Nú er það á
Þorláksmessu að kona kemur
inn í verslun Bjama og spyr um
englahár.
Bjami strýkur sér hægt yfir
skallann. Verður síðan hugsi en
svarar svo: „Englahár, því miður,
þau eru löngu búin“.
(Þeim varð á í messunni)
Vopnfirðingur
Austri segir frá því að nýtt
blað, Vopnfirðingur, hafi byrjað
göngu sína. Komin eru út tvö
tölublöð en fyrirhugað er að
blaðið komi út hálfs mánaðar-
lega. Utgáfustjóri er Hafþór Ró-
bertsson og er blaðið prentað í
hans eigin prentverki, Hafþórs-
prenti. Ritstjóri er Sigrún Odds-
dóttir kennari og segir hún að
blaðió hafi fengió góðar við-
tökur. Aðaláhersla verði lögð á
fréttir og fréttatengt eífti, ýmsar
ffásagnir og viðtöl. Einnig verða
í blaðinu mataruppskriftir,
íþróttaeffti og fleira. Til að byrja
með verður blaðið selt í lausa-
sölu en til greina kemur að bjóða
upp á áskrift að því síðar.
Ársfundur vegagerðarinnar í Árgarði
Ársfundur Vegagerðar ríkis-
ins var haldinn í Árgarði í Lýt-
ingsstaðahreppi sl. fimmtudag
og föstudag. Þetta var sjötti
ársfundur vegagerðarinnar og
eru þeir haldnir til skiptis í
hverjum landshluta, en þetta
er í fyrsta sinn sem hann er
haldinn á Norðurlandi vestra.
Um 90 manns sóttu fundinn,
en meginviðfangsefiii hans var
málaflokkurinn „ferðamál og
samgöngur“.
Fyrirlesarar um þennan mála-
flokk voru Magnús Oddsson
ferðamálastjóri, Trausti Valsson
skipulagsfræðingur, auk Am-
gríms Hermannssonar „of-
urjeppaeiganda“ og Halldórs
Bjamasonar, en hann flutti erindi
um hálendisferðir og hvemig
vegagerðin hugsanlega kæmi að
þeim málum, en eitt að þeim
málum sem vinnuhópar krnfu til
mergjar var það hver ætti að vera
þáttur vegagerðarinnar í því aö lendisvega. gistu í Hótel Varmahlíð og á
efla og auka ferðamennsku í Þátttakendur á ársfúndi vega- Löngumýri.
óbyggðum, t.d. með gerð há- gerðarinnar nutu veitinga og
íbúðarmiklir vegagerðarmenn í Árgarði,
Stórtjón í ofsaveðri „handan Vatna"
Mikið tjón varð í utanverðri
Sléttuhlíð og á Bökkum í
Fljótum í suðaustanveðri
aðfaranótt sunnudagsins. Hluti
þaks á fjárhúsi á kirkjujörðinni
Felli fauk í heilu lagi, einir
sextíu fermetrar, og mikið tjón
varð á húsum hjá Fljótalaxi og
Jóhannesi bónda á Reykjarhóli.
Þá fauk stór amerískur pallbíll
út af veginum við Stafána
þarna rétt norðan við og
cinhentist marga metra. Svo
virðist sem þetta mikla fárviðri
hafi geisað á afinörkuðu svæði
og skapast af miklum
vindstreng niður úr dölunum.
Eggert bóndi á Felli segir að
menn líki þessu veðri við
febrúarveðrið mikla 1992.
Ung hjón sem hafa umsjón
með fiskeldisstöð Fljótalax, sem
Hólalax hefur á leigu, voru ekki
heima aðfaranótt sunnudagsins.
Einhverra hluta vegna fór við-
vörunarkerfið í gang og var
maður sendur ofan úr Hjaltadal til
aö grennslast fýrir hvers kyns var.
Hann komst þó ekki lengra á
bílnum en að Stafánni, þar fauk
hann út af veginum. Maðurinn
gat forðað sér út úr bílnum og
þurfti hann nánast að skríða síðasta
spölinn heim að stöðinni, en
aðkoman þar var ekki fögur.
Gerði maóurinn viðvart og óskaði
eftir aóstoð innan úr Fljótum og
komu fljótlega þrír menn þaðan á
vettvang. Rúður höfóu brotnað í
suðurhlió íbúðarhúss við fisk-
eldisstöðina og allt var á rúi og
stúi í húsinu. Þrýstingurinn inni
hafði losað um gluggaramma á
noróurhlið og lá hann marga
metra frá húsinu. Þá urðu all-
nokkrar skemmdir á steni-klæðn-
ingu utanhúss, og ljóst að tjónið á
íbúðarhúsinu skiptir mörgum
hundruðum þúsunda. Skjólveggir
á sólpalli brotnuöu og sást á eftir
heitum potti, þar sem hann fauk
út í sortann. Fannst hann síðar
ofan í gili við bæinn, ónýtur. Þá
urðu einnig teljandi skemmdir á
aóstöðuhúsi við fiskeldisstöðina.
Af henni fuku margar þakplötur.
Land gullinna stranda
og ævintýra þúsund
og einnar nætur!
Enn á ný ryður Úrval-Útsýn brautina með nýjungar fyrir
íslenskan ferðamarkað, nú með reglulegu leiguflugi i
vetur til Agadir á Atlantshafsströnd Marokkó. Með
dyggilegri aðstoð ferðamálayfirvalda í Agadir getum við
nú boðið islendingum '
einstök kjör á tveggja og þriggja vikna
ferðum til þessa glæsilega áfangastaðar.
Verð á mann í tvær vikur á Residence
Farah með 3.000 kr. ViSA-afslætti.
Innifalið: Beínt leíguflug, gisting,
flugvallarskattar, íslensk fara
stjórn og ferðir til og frá flugvelli.
—w - þangað liggur slraumurinn
Umboðið á Sauðárkróki
Stjómsýsluhúsinu, sími 453 6262