Feykir - 06.12.1995, Qupperneq 7
43/1995 FEYKIR7
n
Hrönn bregður sér á bak úlfalda, sem eru vinsæl farartæki
í Marokko engu síður en asnarnir.
Eins og detta inn í Bíblíusögurnar
segir Hrönn Pétursdóttir um ferð til Agadir í Marokko
„Það var engu iíkara en þarna
hefði maður ailt í einu dottið
inn í Biblíusögurnar. Menn-
ingin þarna er svo alit öðru
vísi en okkar og sérstaklega er
þetta áberandi í fjallahéruðun-
um. Við fórum þarna í mikla
skoðunarferð upp í fjöllin, sem
tók alls 14 tíma. Þegar ofar
dró fórum við að sjá menn ríð-
andi ösnum og konur ausandi
vatni úr brunnunum, berandi
leirílátin á höfðinu“, segir
Hrönn Pétursdóttir húsmóðir
á Sauðárkróki um ferðalag
sem hún fór í ásamt manni
sínum, Jóhanni Ingólfssyni, til
Marokko á liðnum vetri, en
borgin Agadir í Marokko er
nú orðinn mjög vinsæll án-
ingastaður hjá ferðalöngum og
má rekja vinsældir hennar til
sérstöðu Marokko sem ferða-
mannalands.
„Þetta er svo gjörólíkt því
sem maður hefur kynnst á Spáni
og í Vestur-Evrópu. Menningin
svo allt öðm vísi og ég hef aldrei
upplifað neitt í líkingu við það
sem við kynntumst í þessari
ferð. Fjölbreytileikinn er mikill
þama og við vomm mjög ánægð
með ferðina. Það stóðust allir
hlutir mjög vel“, segir Jóhann
Ingólfsson, en þeim hjónunum
bauðst ásamt mörgum fleiri Is-
lendingum mjög ódýr ferð á veg-
um Urvals/Utsýn til Marokko í
febrúar sl. Ferðin var sérstaklega
ódýr af þeirri ástæðu að það var
verið að mála og yfirfara flug-
vélina á Spáni meðan ferðalang-
amir flatmöguðu á sandströnd-
inni við Agadir í vikutíma.
„Þjónusta og aðbúnaður
þama er mjög góð og maturinn
mjög góður. Það vom fjölmargar
skoðunarferðir í boði. Okkur var
strax á öðmm degi boðið í veislu
og á skemmtun í gömlu kvenna-
búri hjá Berbum, sem er þjóóar-
brot þama. Þar var sungið og
dansað og sýndir ýmsir leikir
sem tilheyra menningu Ber-
banna. Daginn eftir var síðan
farió í fjallaferðina sem var ansi
glæfraleg. Vegimir þama upp
n
Ókeypássmácxr
Til sölu!
Til sölu er vel meö farinn lítill
Philco ísskápur. Verð kr. 10.000.
Upplýsingar í síma 453 6691.
Til sölu lítil Canon FC-2 ljós-
ritunarvél. í góðu lagi. Upplýs-
ingar í síma 453 6750.
Til sölu Lada 1600 árg. '81.BÍ11-
inn er í lagi. Tvöfaldur dekkja-
gangur á felgum. Selst mjög
ódýrt. Upplýsingar gefur Hjalti í
síma 453 5606 á kvöldin.
Til sölu sex hjóla vömbíll, Bens
1513 árgerð '71 með krana,
þokkalegur bíll. Einnig MMC
Lancer LGX.14x4 árgerð 1991.
Ekinn aðeins 38 þús. km.
Fallegur bíll. Ath! skipti á
ódýrari bíl koma til greina.
Upplýsingar í síma 452 7158.
Til sölu homsófi með drapplitu
áklæði. Upplýsingar í síma 453
5491.
Húsnæði óskast!
Óska eftir 2-3 herbergja íbúð á
Sauðárkróki eftir áramót.
Upplýsingar í síma 453 5544
(Ragnheiður).
Fæst gefins!
Þriggja mánaða hvolpar fást
gefins. Upplýsingar síma 467
1054.
fjöllin em ansi mjóir og ræfils-
legir á okkar mælikvarða. Það
var margt að sjá í Agadir og ná-
grenni, við litum m.a. inn í silf-
urverksmiðju, markaðstorgin em
mörg í borginni, veitingastaðir á
hverju strái og allt sem tilheyrir
baðstrandarlífinu“, segir Jóhann
Ingólfsson.
Land andstæðna
Marokko er konungsríkið
sem teygir sig frá Miðjarðarhafi
og niður norðvesturströnd Aff-
íku. Þetta er land andstæðna; nú-
tímalegar borgir, árhundraða aft-
urhvarf þegar komið er til sveita,
eyðimerkur og gróðursæld, flat-
lendi og hrikalegt fjalllendi og
inn á milli em fengsæl silungs-
vötn, gullnar baðstrendur og
ekki síst ómótstæðileg menning
og handverk sem alla heillar.
Þó arabísk menning marokko-
búa sé ákaflega sterk finna gestir
fljótlega fyrir frönskum áhrif-
um víða, enda var landið ný-
lenda Frakka í áraraðir. Meiri-
hluti landsmanna er mú-
hameðstrúar en í flestum borg-
um má sjá kaþólskar kirkjur og
bænahús gyðinga.
Borgin Agadir stendur á vest-
urströnd Marokko, skammt aust-
ur af Kanaríeyjum, enda er veð-
urfar svipað á þessum stöðum.
Sl. 35 ár hefur mikil uppbygging
átt sér stað, fjöldi glæsilegra hót-
ela, veitingastaða og verslunar-
hverfa hafa risið. Að mörgu leyti
minnir Agadir á borgir við
frönsku Riviemna, með breið-
götum og fallegum görðum og
alls staðar em veitingahús, barir
eða kaffihús jafht utan dyra sem
innan. Meðfram borginni liðast
síðan gullin sandströndin kíló-
metra eftir kílómetra. Ibúar Aga-
dir og úthverfa em um 300 þús-
und talsins og flestir þeirra hafa
ýmist atvinnu af ferðaþjónustu
eða fiskveiðum. Loftslag er ein-
staklega þægilegt, eða rúmlega
20°C meðalhiti að deginum í
janúar, en fer sjaldnast yfir 30°C
á sumrin.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug viö
andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdamóður, afa og langafa
Óskars Björnssonar
Freyjugötu 10 b Sauðárkróki
María Rósmundsdóttir
Rósamunda Óskarsdóttir Haraldur Friðriksson
Bragi Hrólfsson
Þórður Ragnarsson
Málfríður Haraldsdóttir
María Haraldsdóttir
Friðrik Haraldsson
Fannar Haraldsson
Hrólfur Bragason
Ómar Bragason
Heiðbjört Kristmundsdóttir
Guðný Jóna Petersen
Asmundur Baldvinsson
Baldur Baldursson
Rannveig Helgadóttir
Signý Einarsdóttir
og bamabarnaböm
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og hlýhug vió andlát og útför
móóur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Hólmfríðar Jónasdóttur frá Hofdölum
Hjalti Guðmundsson Kristín Svavarsdóttir
Anna Jóna Guómundsdóttir Sigurður Olafsson
Margrét Guðmundsdóttir Stefán Guðmundsson
Sólborg Valdimarsdóttir
bamaböm og bamabamaböm
Mesta & besta
úrvalið er hjá okkur
fyrir jólin
Verið velkomin
Skagfirðingabúð