Feykir


Feykir - 10.01.1996, Page 4

Feykir - 10.01.1996, Page 4
4FEYKIR 1/1996 Gunnar Gunnarsson Syðra-Vallholti: Gamlir fara fyrir Skagann Félagarnir Fúsi Steindórs og Þorvaldur. Sagt er að mánudagur sé til mæöu. Það var því ekki lít- il áhættan sem þeir tóku, prestamir sr. Ólaíur á Mæli- felli og sr. Gunnar í Glaum- bæ ásamt Lionsklúbbnum í framhluta Skagafjarðar, aö bjóða gamla fólkinu á þessu svæði til nokkurrar upplyftingar, í ferðalag, einmitt á mánudeginum 14. ágúst sl. Ferðin var farin fyrir Skaga eins og heitir á góóri íslensku. Ekiö rang- sælis út Skaga aó austan, inn aö vestan og heim yfir Þverárfjall. Þessi mánudag- ur varö svo sannarlega til lukku og ánægju, því ferðin tókst mjög vel í alla staói. Fararstjóri var sr. Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli og leiðsögumaður sr. Gunn- ar Gíslason Glaumbæjar- klerkur, nú búsettur í Varmahlíö, situr þar í hárri elli eftir gott ævistarf. Hann er þaulkunnugur á þessum slóðum, um Skaga, hafsjór af ffóðleik, sem brátt kom á daginn. Allt er þá þrennt er. Ekki má gleyma skólastjóra Steinsstaóa- skóla, honum Kristjáni Krist- jánssyni. Hann fór með stórt hlutverk, var fulltrúi lionshreyf- ingarinnar sem bauð til þessarar ferðar. Kristján bar virðingar- heitið matarstjóri og öll stjómun í höndum þessara manna var vel af höndum leyst, - væri von á góðu ef þeir stýrðu þjóðarskút- unni um stundarsakir og leyfðu pólitíkusum aó fara í næstu ferð, sem væntanlega yrði þá eitthvað út úr landinu. Vagnstjórinn í þessari ferö var Valdimar Gunnarsson á Kot- um og vagninn traustasti skóla- bíllinn í öllu héraðinu. Renndi hann í hlað hjá KS í Varmahlíð á auglýstum tíma, kl. 10 fyrir há- degi, og feróafólkið þusti strax í bílinn og kom sér fyrir í bestu sætunum. Fyrirmenn roguðust með allan vaminginn framan á bumbunni. Greinilegt að enginn sylti, slíkur var kosturinn, öl og kaffi, smurt brauð, kex og kökur, svo eitthvað sé nefht. Hófst nú ferðin. Þeir klerkar léku á als oddi, allt til enda ferð- ar, og mátti ekki á milli sjá, hvomm mæltist bemr, svo orð- glaðir vom þeir að einungis tókst að syngja eitt einasta lag í allri ferðinni. Það var þriðji prestur- inn sem átti heiðurinn af því ffamtaki, sr. Egill Hallgrímsson í kirkjunni að Hofi á Skagaströnd. Tína ber í beygjunni Ekið var sem leiðir liggja út í hina búsældarlegu sveit, Lang- holtið. í Glaumbæjartorfunni gripum við Gunnlaug í Hátúni og frú, í Staðarbeygjunni Siguró og ffú á Reynistað. Var þá oróið allvel skipað liðið og þó effir að bætaá. Sæti vom ennþá laus í þess- um góóa vagni, en Svarfaðardal- urinn var setinn frá Sauðárkróki, í þess orðs fyllstu merkingu. A öldmnarheimili sjúkrahússins komu þeir öðlingamir og nafn- amir, Bjöm á Sveinsstöðum og Björn á Mælifellsá, ásamt nokkrum gömlum og góðum konum, broshýrum með til- hlökkunarglampa í augum. Niðri í bænum var Fúsi Steindórs grip- inn glóðvolgur úti á götu, ásamt manni að nafhi Þorvaldur, alveg stórskemmtilegum náunga, og þeir báðir og allt þetta góða fólk. Ofarlega var í honum am- bögugerðin, og ekki ófáar vísu- byrjanimar hjá þessum meistara. Komst hann þó sjaldan lengra en með fyrstu hendinguna. Hálfhað verk þá hafið er sagði hann, og ætlaði svo öómm að ljúka. Þetta gekk nú svona upp og ofan. Þorvaldur sat mér á hægri hlið, bróóurpartinn, og var ekki langt í fyrstu hendinguna hjá honum, er hann sagði: Tína ber í beygjunni. En þar stóó hnífurinn í kúnni, sagði Þorvaldur. Fúsi Steindórs hefur verið að leita að botni við þetta á annað ár og ekki fundið. Ja, hver skr..hrökk út úr mér. Er Fúsa að förlast, eins og framhaldið er þó klárt. Klárt, hváði Þorvaldur, hreint ekki. Þetta er óbotnandi and.segir Fúsi. Blessaður góði, sagði ég. Ekkert mál. Vísan er alveg klár. Það lá við að Þorvaldur stæði upp í bílnum, svo hissa virtist hann verða. Lof mér að heyra, sagði hann með galopin augu. Tína ber í beygjurmi, bömin eru að eta. Svo tognafer á teygjunni, uns tútna út sver ogfreta. Eg fann ekki annað en Þor- valdi líkaði, þótt ljót væri vísan. Á kunnum slóðum Á Sauðárkróki settist Bjöm ffá Sveinsstöðum við hlið mér. Hann leit til mín kankvís og sagði: Eg sest héma hjá Skíða- staðaættinni. Vitanlega tók ég vel þessari góðu kveðju. Við Bjöm þekkjumst ffá fomu fari, en innan stundar komst ég þó að því að hann vissi engin deili á mér. Vió eigum að þekkjast, sagöi ég. Eg þekki orðið svo fáa, sagði Bjöm. Það gerir ellin. Hún fer svona með mann. En Skíða- staðasvipinn sé ég. Frá Sauðárkróki var ekið í ró- legheitum, enda lá okkur ekkert á. Flest var fólk við aldur og engin störf sem kalla. Bíllinn þræddi stíga um Skörð, og rann svo léttílega noróur hina grösugu Laxárdalsheiði og Laxárdal, sem er svo rennisléttur og grasgefmn, undir vestuihlíðum Tindastóls. Fyrir mörgum ámm, fyrst er ég fór um hinn fagra dal, fannst mér sem ég væri að koma heim, þegar ég leit alla þessa fegurð ofan af heiðinni. Þarna voru Skíðastaðir, jörðin sem ætt mín var kennd við, hvar Laxáin liðast í sveigum um þetta grösuga und- irlendi. Eg hugsaði mér að áin væri full af laxi. Kannski hefur hún verið það, hver veit? Valdimar bílstjóri ók ótrauð- ur ffam veginn og lagði hvem kílómetra af öðrum að baki. Leiðsögumaðurinn sr. Gunnar malaði í hljóðnemann. Þau ógrynni sem maðurinn veit, hugsaði ég. Frá öllu skýrói hann og dró ekki af lýsingum. Bætti svo jafinan við. Svo leiðréttir hún Guðrún frá Hrauni mig, fari ég með rangt mál. Hún veit þetta allt saman betur en ég. Þarna er, og þarna er, og þama er, og þama er, þusaði prestur í hljóðnemann, og sagði ffá hinu og þessu sem við hafði borið frá hinum ýmsu tímum, þótt ekki væri tíundað í þessari ffásögn. Bíllinn bmnaði út dalinn, og nú nálgumst við æskuheimili mitt, sagði sr. Gunnar, þegar sást heim að hinu foma höfuðbóli, Hvammi í Laxárdal. Ekið var í hlaðið heim, húsin virt og metin, hvar áður voru gleði geim, afgœfumönnum setin. Fariði gætilega Nú var þetta svipur hjá sjón. Enginn stóð í bæjardyrunum að bjóða gesti velkomna. Allt í eyði. Kirkjugarðshliðið ólæst, við gengum um garðinn, lásum á legsteina framliðinna, signdum og krossuóum sem vera ber. Kirkjan var hinsvegar læst og einhver sagði: Það verður að læsa kirkjum vegna þjófa sem vaða uppi. Það er ekkert lengur ffjálst í þessu ffelsarans landi. Fram var haldið ferðinni og farið út á Skagann. Sævarlands- víkin blasti við, heillandi fögur, og eyjamar úti á firðinum, alveg dýrleg sjón, og þó hefði mátt vera ögn bjartara. Það var dálítíll suðvestan garri, troðinn í lofti, og kastaði dropum öðm hverju. Annars var besta veður. Næst var numið staðar viö Ketubjörgin, þessi himinháu þverhníptu björg, hamraveggi. Farið þið nú gætilega bað sr. Gunnar, þegar hópurinn þusti fram á bjargbrúnina. Það var geigvænlegt að horfa niður í ffeyóandi brimlöðrió vió strönd- ina, djúpt undir fótum manna. Hér leynast hættur í homi og hægast aö fara gætilega. Ketubjörgin brött og há, bjóða hœttu srtáða. Afremstu brún að tylla tá, tœpast er til ráða. Áð við minni Laxárdals, skammt frá bújörð forfeðra minna á Skíðastöðum.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.