Feykir


Feykir - 10.01.1996, Síða 8

Feykir - 10.01.1996, Síða 8
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra 10. janúar 1996, 1. tölublað 16. árgangur. Auglýsing í Feyki fer víða! Að nema... ber ávöxt L N - A' M-A- N Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Sími 453 5353 Sameining Fiskiðjunnar Skagfirðings og HG: Velta FISK er áætluð hálfur fjórði milljarður á árinu Jón Arnar og Hulda með soninn Krister Blæ. Jón Arnar útnefndur íþróttamaður ársins Jón Arnar Magnússon frjáls- íþróttamaður úr Tindastóli var á dögunum útnefndur íþrótta- maður ársins og er þetta í fyrsta sinn sem skagfirskur íþróttamaður hlýtur þennan mikla heiður, en þetta var í 40. sinn sem Samtök íþróttafrétta- manna gangast fyrir kjörinu. í samtali við blaðamenn eftir út- nefninguna sagði Jón Arnar að þetta væri frábær byrjun á nýju ári og vonandi góð kjöl- festa fyrir áframhaldið, en mik- il og stór vcrkefni bíða hans á árinu. Hæst ber þar þátttaka á Ólympíuleikunum í Atlanta þar sem Jón hefur sett markið á 10. sætið, en hann var cinmitt í því sæti á lista yfir tugþraut- armenn þegar síðasta ár var gert upp af bandaríska frjáls- íþróttatímaritinu Track and field. Jón Amar náði frábærum ár- angri í tugþrautinni á síðasta ári og vænst er mikils af honum í framtiðinni. Hann rauf fyrstur ís- lendinga 8000 stiga múrinn með því að bæta árangur sinn verulega á móti í Götzis í Austurríki í maí þar sem hann hlaut 8233 stig, sem er aðeins 166 stigum frá Norður- landametinu. Hann fór aftur yfir 8000 stigin í Evrópubikarkeppn- inni, var síðan óheppinn á Heims- meistaramótinu þegar hann steig á línu og var dæmdur úr leik, en náði sér síðan aftur mjög vel á strik í keppni í Frakklandi seint á árinu. Það hefur margt drifið á daga Jóns Arnars að undanförnu og hann segist vera í skýjunum eftir þetta allt saman. Fyrst fæddist Jóni og Huldu Ingibjörgu Skúla- dóttur unnustu hans sonur 1. des- ember, sem hlotió hefur nafnið Krister Blær. Jón Amar var síóan valinn íþróttamaður ársins af les- endum DV og sömu nafnbætur fylgdu síðan í kjölfarið frá Frjáls- íþróttasambandinu og Samtökum íþróttafréttamanna, og er sú síó- asttalda mesti heiður sem íþrótta- mönnum hér á landi hlotnasL Jón Arnar hefur æft stíft að undanfömu og komiö hafa dagar þar sem æfingar hafa farið allt upp í 10 tíma og þá hefur hann farið þrisvar á æfingar yftr dag- inn. Æfingar Jóns eru fjölbreyttar enda tugþrautin samansett úr 10 greinum. Jón hefur sagt að að- stæður á Sauðárkróki henti sér á margan hátt vel til æfinga, Borg- arsandurinn kemur þar t.d. að góðum notum, en trúlega hefur ekki verið sérstakt að stunda æf- ingar í frostakaflanum á dögun- um. Það er tímamótasamningur sem gerður var síðasta sumar sem gerir Jóni Amari kleift að helga sig íþrótt sinni, en þá tóku hönd- um saman nokkur fyrirtæki á Sauðárkróki, ásamt Afreks- mannasjóði, Olympíunefnd og Fijálsíþróttasambandinu. Fiskiðjan Skagfirðingur er orðinn fjórða stærsta útgerð- arfyrirtæki landsins eftir að það sameinaðist llraðfrysti- húsi Grundarfjarðar á gaml- ársdag. Velta íyrirtækisins er áætluð um 3,5 milljarðar á þessu ári. Undirbúningur sameiningar hafði staðið í nokkurn tíma og hún er talin hafa ákveðna hagræðingu í för með sér. M.a. er ætlunin að sérhæfa vinnsluna þannig að hver fisktegund verði unnin á hverjum stað, rækju- og skelvinnslan verði áfram á Grundarfirði, vinnslan á Hofs- ósi verði sérhæfð fyrir ufsa, sein hingað tii hefur verið unninn á þremur stöðum, og önnur bolfiskvinnsla verði í frystihúsinu á Sauðárkróki. Góð sala hjá Skag- firðingi Skagfirðingur SK-4 gerði mjög góða sölu í Bremer- hafen í gær og fyrradag. Heildarverðmæti 219 tonna af karfa var 37,4 milljónir sem er það mesta síðan sama skip, er hét þá Vigri RE, seldi í ársbyrjun 1992. Meðalverð er 170 krónur iyrir hvert kíló og er ljóst að hásetahlutur er góður út úr þessum jólatúr Skagfirðings. Skafti seldi í síóustu viku bolfisk í Hull og fékk líka ágæt- is verð, seldi rúm 170 tonn fyrir 24,2 milljónir sem gerir 141 krónu meöalverð. Framboó var mikið á markaðnum og salan hjá Skafta nú því ekkert í lík- ingu við það sem hún var í fyira, en þá fékkst einstaklega gott verð, að sögn Gísla Svans Ein- arssonar útgerðarstjóra Fiskiöj- unnar Skagfirðings. Hegranesið selur síðan í dag og á morgun 130 tonn í Bremerhafen. Einar Svansson fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagftrðings segir að þorskerð- ingin síðustu árin hafi gert mönnum erfióara fyrir með sér- hæftngu. Frystihúsin hafí þurft að hverfa til fortíðar með því að fjölga fisktegundum í vinnslunni til að halda uppi starfsemi. Með sérhæftngunni sé fyrirtækið að vinna á móti kvótaskerðingunni. Einar segir litlar sem engar breytingar á yfirmannastöðum í fyrirtækinu eftir sameininguna. Eftir sameininguna er Fisk- iðjan Skagfirðingur með 10 þús- und þorskígildistonna kvóta, þann þriója mesta i landinu á eft- ir Granda og Útgerðarfélagi Ak- ureyringa. Hvað heildarkvóta varðar er FISK hinsvegar í Að morgni gamlársdags fannst fimm vetra reiðhestur dauður við girðingu hjá bæn- um Ási í Hegranesi. Hafði hesturinn rifið sig iililega á gaddavírsstreng efst í girðing- unni og blætt út um nóttina. Grunur leikur á að hesturinn hafi fælst af völdum skotelda kvöldið áður, en veður var mjög stillt þetta kvöld og hljóðbært og bæjarbúar á Sauðárkróki þegar farnir að fagna áramótum. Einar Valur Valgarðsson bóndi í Hegranesi sagði þetta einu skýringuna sem mönnum hefði dottið í hug vegna dauða hestsins, enda hesturinn mjög stilltur og gæfur og hefði unað sér vel meó hestunum í hólftnu. Þaó er alkunna að skepnur fælist í áramótafagnaðinum en sjaldgæft að ein skepna taki sig út úr hópnum með svo afgerandi fjórða sæti sjávarútvegsfyrir- tækja, Samherji vermir þriója sætið. Einar Svansson segir ekki ólíkiegt aö stjómendur fyrirtæk- isins fari að dæmi þeirra þriggja stærstu og kanni möguleika á út- vegi erlendis, en þess má geta að Fiskiðjan hefur átt gagnkvæm viðskipti við aóila í Bremer- hafen og hafa skipin Bremen og Evrópa landað fiski á Sauðár- króki tvö sl. sumur. FISK keypti sig inn í HG fyr- ir nákvæmlega þremur árum, með rúmlega 30% hlut. Síðan hefur hluturinn vaxið jafnt og þétt og var kominn í 85% fyrir sameiningu. Afkoma HG hefur verið í jámum undanfarin ár, en hagnaður verið talsverður hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi. hætti eins og hesturinn í Ási, sem var í eigu Haraldar Her- mannssonar á Sauðárkróki. Þannig fældust hross í Veðra- móti í Gönguskörðum á gamlárskvöld og rann stóðið eft- ir fjallshlíðinni inn á Laxárdals- heiöi, þar sem náðist til þess á nýársdagsmorgun. Einar Guð- mundsson bóndi á Veóramóti telur af hræðsla hrossanna hafi stafað að flugeldaskotum frá Sauðárkróki. Dauði hests rakinn til flugeldaskota Gæðaframköllun GÆDAFRAMKOL L UN BKYTOcXARS

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.