Feykir


Feykir - 18.12.1996, Blaðsíða 3

Feykir - 18.12.1996, Blaðsíða 3
43/1996 FEYKIR3 Ákvöröunarstaöur Tómas Guðmundsson lflcir til- veru okkar manna við undarlegt ferðlag í ljóði sínu Hótel jörð. Og til eru ýmsir, semferðalag þetta þrá, en þó eru margii; sem ferðalaginu kvíða ”, orti hann og má til sanns vegar færa. Tilfmningar okkar gagnvart framtíð- inni eru harla margslungnar, og reynslan hefur leitt í ljós, að menn eru misjafnlega ratvísir og veður- glöggir á óræðum vegum hennar. í samfélagi kristinna manna má þó með réttu tala um árvissa ferð, sem skipulögð var á mótunarskeiði kirkj- unnar og hefst við upphaf aðventu. Fyrsti áfanginn er til Betlehem. í flestum tilvikum gildir þá sá ferða- máti Jónasar skálds Hallgrímssonar, að sitja kyrr á sama stað, og samt að vera aðferðast. ” Þá var Jónas að yrkja um óhjá- kvæmilegan spamað sinn, enda kjör hans þröng á Hafnarslóð. En þó við ferðumst nú í huganum til landsins helga nær jólum, hefur um alllangt skeið verið haft á orði að þeirri för fylgi lítill spamaður. Hérlendis þyk- ir hún yfirleitt í næsta litlu samræmi við erfiða ferð, sem farinn var fyrir nær 2000 árum frá Nazaret til Bet- lehem, er þau Jósef og María hlýddu skipun sendiboða keisarans í Róm. En þau vom skyldurækin og þótt skipunin væri í þágu erlends valds og gjörð til tryggingar skatti og skyldum við handhafa þess, þá bmgðust þau vel við. Það hefur löngum verið einkenni fátæks fólks, að reyna í lengstu lög að halda sjálfsvirðingu sinni. Og Jósef var af húsi og kynþætti Davíðs. Ekki er ólíklegt að það hafi vakið metnað hans, að honum skyldi ætlað að halda til ættborgar þess fræga skáld- konungs, þegar hann, fátækur smið- ur var minntur á þessi konunglegu ættartengsl. Ósjaldan höfum við les- ið í íslenskum bókmenntum um fá- tæka kotkarla, sem höfðu sinnu á að rekja ættir sínar til kappa og kon- unga, þótt sjálfir hefðu þeir lítið til hnífs og skeiðar. Þannig leituðust þeir við að sætta sig við bág kjör og reyndu að eyða kvíðanum fyrir komandi mótlæti og basli. Á þröng- um palli sökktu þeir sér niður í ætt- artölur þar sem ljóma bar af nöfnum löngu látinna frægðarmanna og höfðingja. Nærtækt dæmi er snjöll lýsing Davíðs Stefánssonar á Helga Guðmundssyni, föður listamannsins auðnulitla, Sölva Helgasonar. Getur hann talist samnefnari þeirra fjöl- mörgu fátæklinga fyrr á tímum, er þannig brugðust við niðurlæging sinni. Að sjálfsögðu vitum við ekkert um hugrenningar Jósefs frá Nazaret, er hann ferðaðist um myrkur hirð- ingjaslóðar áleiðis til Betlehemborg- ar og teymdi undir verðandi móður, sem vænti sín þá og þegar. En hann var hlýðinn skyldu sinni og það breytti engu, þótt óvíst væri um húsaskjól eða þá aðhlynningu, sent heitmey hans var í þörf fyrir. Þau höfðu lagt af stað í staðfastri trú á þann Guð, sem Davíð konungur, forfaðir Jósefs, hafði treyst og orti því innblásinn af anda hans: Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, þvíþú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þeim var ekkert að vanbúnaði í fylgd þess drottins, sem þau höfðu þjónað af trúmennsku. Og áfanga- staðurinn í suðri stóð þeim iyrir liug- skotssjónum í ljóma frá fortíðardög- um. I fomum ritum var borgarinnar getið og um hana spáð. Samtíða- maður Jesaja, spámaðurinn Míka, hafði mælt fyrir mörgum öldum: „Og þú, Betlehem Efrata, þótt þú sért einna minnst af héraðsborgun- um í Juda, þá skal þó frá þér koma sá, er vera skal drottnari í ísrael, og ættemi hans vera frá umliðinni öld, frá fortíðardögum.” Höfðu ekki þessi orð úr gamalli bók getað snert streng í hjarta verð- andi móður og vakið hugboð um æðri tilgang þessa ferðalags? Margt hafði borið við í lífi hennar á liðnu ári, sem erfitt var að skýra. Og lífið sem hafði kviknað innra með henni og hún fann þroskast og dafna; fóstrið sem hún hafði beðið fyrir á hverjum degi og hugsað um með gleði og þó kvíðablandinni eftir- væntingu. Guð hafði trúað henni fyrir því. Hversu margþætt var til- finning ungrar móður gagnvart nýju lífi, sem henni var falið að fæða inn í miskunnarlausan heim. Sterkasti þáttur hennar var fómfús kærleikur, viljinn til að vemda þessa kær- komnu gjöf og vonin um að geta veitt ófædda baminu aðstæður til þroska og framfara, þrátt fyrir lítil efni. Það varð að fá að lifa og því hefur þessi langa ferð um varhuga- verðar slóðir valdið henni áhyggj- um. - Var hún ekki að bregðast skyldum sínum við Guð? Nei, hún varð að treysta því, að hann væri með þeim í þessari för og unnusti hennar hughreysti hana og veitti henni styrk. Þreflaus skemmtiferð gat hún síður en svo talist. Þau vom að rækja skyldur sínar að boði yfir- valda og það myndi ekki síst tryggja velferð þessa bams. Það skyldi ekki þurfa að blygðast sín fyrir foreldra sína, heldur treysta þeim og heiðra þá með ljúfu geði. Maður af húsi og kynþætti Davíðs þekkti lögmál Guðs og efaðist aldrei um gildi góðrar samvisku. Að áliti hans var það undirstaða eilífrar farsældar og innri friðar. í þeim friði vildu þau lifa og deyja. Þegar þau komu í áfangastað var stundin mnnin upp. María fann fyr- ir fyrstu hríðunum þar sem þau höfðu búið um sig í hálmi í íjárhús- um, eftir að þeim var úthýst af íbú- um ættarborgarinnar. Þama í næturkyrrðinni urðu þáttaskil í sögu heimsins. Komabam grét í myrkrinu uns það fann brjóst móður sinnar. Minningin um þenn- an atburð hefur lifað og nú reynir mikill hluti mannkyns að fylgja þessum foreldmm eftir. Við gemm okkur inyndir af misjafnlega miklu raunsæi og við ólíkar aðstæður: - Foreldramir með barnið, hin heilaga fjölskylda færð í konungleg- an skrúða af pelli og puipura, með glitrandi geislabauga úr eðalmálmi og dýrum steinum, og fjárhúsið líka höll. Sterk óskhyggja hefur þannig sett mót sitt á hugmyndimar. Rót- gróin virðing manna fyrir verald- arauði og valdi breytti þeim, gerði þær ósjaldan hégómlegar og úr öllu samræmi við veruleikann. Þannig misskildu menn guð, þegar hann kom til móts við þá hógvær og þeir sættu sig ekki við hina raunsönnu mynd, sem ætluð var þeim til lær- dóms, til frelsis og friðar. í heiminn var kominn friðarhöfðingi og frels- ari, fæddur af fátækri móður, sem hafði verið úthýst úr borg Davíðs. Fyrir þessu umkomulitla barni beygðu vitringarnir úr Austurlönd- um kné sín og réttu fram glitfagrar gjafir, táknrænar fyrir fallvelti heimsins og vanmagn okkai' manna gagnvart almætti Guðs, sem birtist hér í fullkominni hógværð. Þáttur vitringanna í fæðingarsögu Jesú Krists er til þess fallinn að gera hana ljósari. Þeir áttu langa leið að baki, þegar þeir komu til Betlehem. Knúðir af sterku hugboði og köllun héldu þeir yfir fjöll og firnindi, til þess að sjá hvítvoðung í móðurörm- um og veita honum lotningu. Þannig urðu fulltrúar mannlegrar speki að lúta einföldum sannindum trúai'inn- ar, sem síðan hafa staðið af sér aðför margslunginna kerfa dáðra speki. Sennilega hafa vitringamir hætt virðingu sinni og velgengni, er þeir lögðu upp í svo óviss för. Enginn veit hvemig þeim var innanbrjósts. Hvort þeir kviðu ferðalaginu eða ef- uðust aldrei. Af fáum orðum helgrar bókar má ráða, að hin tæra og óbrotna sýn, er við þeim blasti á ákvörðunarstað, hafi eytt öllum efa. Guð gefi nú nær tuttugu öldum síð- ar að við megum standa við hlið þeirra á hátíðinni, sem í hönd fer. Hann gefi okkur hógvært hugarfar, frið og fögnuð sannrar hátíðar.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.