Feykir


Feykir - 18.12.1996, Blaðsíða 12

Feykir - 18.12.1996, Blaðsíða 12
12 FEYKIR 43/1996 Bara prestur á sunnudögum Pétur Þ. Ingjaldsson prófastur á Skaga- strönd lést nú í sumarbyrjun, þá áttatíu og fimm ára. Hann var þjóðsagnapersóna í lif- anda lífi; einstaklega vinsæll á meðal sókn- arbarna sinna og annarra er lil hans þekktu og kunnur af hnyttnum tilsvörum og spaugi- legum athugasemdum. Fyrir nokkrum árum tók séra Pétur Þ. Ingjaldsson þátt í spumingakeppni á vegum Ungmennasambands Austur-Húnvetninga. Var þar meðal annars lesinn upp kafli úr Biblíunni og áttu þátttakendur að þekkja hvaðan hann væri tekinn. Séra Pétur var skjótur til svars og nefndi bókina Ástir sam- lyndra hjóna og var þá kveðið: í guðsorðalestri á gati hann stár, þetta gáfnaljós kirkjunnar þjóna. Aftur á móti er hann afburða klár í Ástum samlyndra hjóna. Séra Pétur var eitt sinn viðstaddur þar sem menn voru að ræða um slagsmál er höfðu brotist út á dansleik og voru einhveij- ir Skagstrendingar orðaðir við þau ásamt piltum úr öðm byggðarlagi. Séra Pétur braut sér leið inn í umræðuna með því að spyrja: „Og hvemig stóðu mennimir sig”. Séra Pétur gerðist aldrei heilagur maður og vílaði ekki fyrir sér að taka til hendinni við hin óþrifalegustu störf ef svo bar undir. Og var hann þá ekkert að hugsa um virð- ingu prestsemdættisins eða hvað sóknar- börnunum kynni að þykja viðeigandi af presti sínum. Eitt sinn var séra Pétur að taka upp mó með bræðmnum Bimi og Sveinbimi Albert (sem alltaf var kallaður Atli) Magnússon- um. Kom þar að maður úr sókninni og hafði orð á því við grútskítugan prestinn að það væri erfitt fyrir sig að sjá hann svona til fara. Séra Pétur svaraði að bragði: „Já, en ég er enginn andskotans prestur nema á sunnudögum.” Bókaútgáfan Hólar sendir nú frá sér aðra bók er hefur að geyma gaman- sögur af prestum. „ Þeim varð á..... Menntamálaráðherra og ókvæðisorð Á heimasíðu Bjöms Bjama- sonar menntamálaráðherra á Alnetinu og í fjölmiðlum, hef- ur komið fram að einn nem- andi í Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra hafi kallað að honum ókvæðisorð á fundi í skólanum. Þar sem undirrit- aður á þar hlut að máli þykir rétt að gefa stutta skýringu: Ég ber að sjálfsögðu alla ábyrgð á orðum mínum á fundinum en hvorki skólinn né aðrir nemendur skólans. Þegar ljóst var að ekki fengjust nauðsynleg svör um fallskattinn svokallaða, gekk ég út af fundinum og kallaði um leið: „Pereat, Bjöm Bjamason”, sem vísar í þekkt minni í Islandssögunni þegar nemendur hrópuðu Svein- bjöm Egilsson rektor Lærða- skólans af. Pereat útleggst nánast, setjum hann af. Eftirá að hyggja vom jretta óþarflega hvatskeytleg ummæli og orð- um mínum hefði mátt stilla betur í hóf. Sjálfsagt er að biðjast afsökunar á þeim. Mig furðar hinsvegar á því að slíkt sagnaminni sé kallað ókvæð- isorð og gert að fjölmiðlamat, enn ven'a finnst mér að reynt sé að gera Fjölbrautaskóla Norðurlands vesrta tortryggi- legan vegna þessa máls. Freyr Rögnvaldsson, Flugumýrarhvammi. FULLT AF NYJUM TÖLVULEIKJUM Sony leikjatalva stgr. kr. 22.900 pi Urval af leikjum -yrrw Viðgerðir á rafeindatækjum. ©M TÖLVUBÚNÁBUIR Sjúkrahús Skagfirdinga Heimsóknartímar á sjúkrahúsi og dvalarheimili yfir hátíðarnar Sjúkrahús: Aðfangadagur kl. 18-22, Jóladagurkl. 15-17 og 19-21 Gamlársdagur 18-22 Nýársdagur 15-17 og 19-21 Heimsóknartímar á Dvalarheimili alla daga frá kl. 13-21. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Skagfirskar æviskrár Út er komið annað bindi í ritröð frá tímabilinu 1910 - 1950, alls 112 æviskrárþættir . „Þetta er besta bók á íslandi í dag“, sagði einn ánægður lesandi. Sögufélag Skagfírðinga Safnahúsinu Sauðárkróki sími 453 6640 Sögufélag Skagfírðinga óskar félagsmönnum sínum og öðrum velunnurum Gleðilegra jóla og farsœls komandi árs V erslunarmannafélag Skagfirðinga sendir félagsmönnum sínum bestu óskir um Gleðileg jól og farsœlt komandi ár

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.