Feykir - 18.12.1996, Qupperneq 4
4FEYKIR 43/1996
Hofstaða-María komin heim
Við messu í Hofstaðakirkju 8. september sl. var söfti-
uðinum færð höfðingleg gjöf, útskorið Maríu-
líkneski, gert af Sveini Olafssyni myndskera. Gef-
endur eru hjónin Margrét Jónsdóttir frá Ytri-Hof-
dölum og Trausti Arnason frá Syðri-Hofdölum,
ásamt börnuni þeirra og fjölskyldum.
Maríumynd þessi er eftinnynd líkneskis nr. 10944 í
Þjóðminjasafni íslands, sem talið er að sé Hofstaða-
María, sú er var í Hofstaðakirkju í kaþólskum sið og
mikil helgi hvíldi á. Maríulíkneskið í Þjóðminjasafninu
fann danskur maður, Gudmann að nafni, í Hjaltadal á
fyrri hluta 19. aldar og var myndin gefin danska Þjóð-
minjasafninu árið 1853 en skilað til Islands árið 1930
ásamt mörgum íslenskum munum, sem verið höfðu í
Þjóðminjasafni Dana.
Selma Jónsdóttir listafræðingur skrifaði um Maríu-
mynd þessa og aðrar Maríumyndir bók, þar sem hún
leiðir að því sterkum líkum að líkneski þctta sé Hof-
staða-María.
Hofstaða-Maríu er víða getið í heimildum á öldum
áður. I Kirkjusögu Finns Jónssonar, sem gefin var út
1772-1778, segir t.d. að Hofstaða-María hafi verið dýrk-
uð líkt og krossinn helgi í Kaldaðamesi og hafi mann-
fjöldi mikill flykkst til HofsUtða á hverri Maríumessu til
að gera heit og bæn sína.
Hofstaðakirkja er Maríukirkja og eina kirkjan í
Skagafirði, sem helguð er Maríu guðsmóður einni. Enn
í dag þykir mörgum gott að heita á Hofstaðakirkju og
berst kirkjunni árlega töluvert af áheitum, sem hefúr ver-
ið vel varið í uppbyggingu þessarar fallegu kirkju og
umhverfi hcnnar.
Á fögrum haustdegi við fyrrgreinda guðsþjónustu
voru stödd hjónin Margrét Jónsdóttir og Trausti Áma-
son með bömum og afkomendum. Þar fómst Trausta
m.a. svo orð:
„Langt er síðan við hjónin höfum verið við messu
hér í Hofstaðakirkju. Við vomm fennd hér í kirkjunni
fyrir meira en hálfri öld, en þó fmnst mér ekki svo ýkja
langt síðan. Sú afhöfn verður mér minnisstæðari en all-
ar aðrar hátíðarstundir lífs míns. Gamli Hofstaðabærinn
er fallinn, en kirkjan stendur enn. Þökk sé sóknarböm-
um, sem lagt hafa sig fram um að varðveita þennan
helgidóm.
Sagan um Hofstaða-Maríu hefur orðið okkur hug-
stæð. Við ákváðum þess vegna að láta gera eftirmynd af
líkneskinu í Þjóðminjasafninu og gefa Hofstaðakirkju til
minningar um og í virðingarskyni við allt það góða fólk,
sem virti kirkju sína og sannfæringu. Við hjónin viljum
svo afhenda kirkjunni gjafabréf fyrir þessum grip. Við
viljum trúa því að blessun fylgi og Hofstaða-María sé
komin heim.”
Eftirlíking líkneskisins af Hofstaða-Maríu í Hof-
staðakirkju.
Séra Gísla þökkuð
stöfin í Fljótum
Nemendur ferðaþjónustubrautar Hændaskólans á Hólum buðu til glæsilegs jólahlaðborð sl.
Fóstudag 13. desember og var það vel sótt. Sjálfsagt hafa hátt í eitt hundrað manns setið að
veisluborði. Jafnhliða þcssum veisluhöldum var haldin Lúsíuhátíð, sú fyrsta á Hólum, en í vetur
stunda nám við skólann fimm sænskar stúlkur, þar semLúsíuhefðin er hvað ríkust og ævinlega
haldin þennan dag desembermánaðar, á eftir lengstu nótt ársins þar í landi, til að fagna komu
Ijóssins. Það var Sigrún Þórsteinsdóttir organisti Hóladómkirkju sem lék undir og stjórnaði söng
stúlknanna og var mál manna að ákaflega vel hefði til tekist, bæði með matinn og sönginn. Þá
flutti Bolli Gústafsson vígslubiskup einnig stutt ávarp. Á myndinni sjást Ijósum prýddar
Lúsíurnar ganga í salinn.
Lítil umferð um Hveravelli í haust
„Það hefur nú verið frekar ró-
legt hjá okkur héma í haust, lítil
umferð og sjálfsagt hafa gosið og
hlaupið á suðausturlandi haft þar
eitthvað að segja. Fólk hefur frek-
ar kosið að beina för sinni þangað
en til okkar. Annars erum við bara
í rólegheitum í jólaföndrinu að
undirbúa komu jólanna”, segir
Magnús Bjömsson veðurathugun-
armaður á Hveravöllum.
Magnús kvaðst eiga von á
jólaglaðningnum á miðvikudag (í
dag): hráefni í jólamatinn, jóla-
pökkunum og kortum frá vinum
og kunningjum. ,Já við búumst
bara við að eiga hér friðsæl og góð
jól, og síðan fer væntanlega að örla
á ferðamönnum hér, jafnvel strax á
annan í jólum, en jafnan er nokkuð
af fjallafólki hér milli hátíða og yfir
áramótin, bæði jeppa- og vélsleða-
fólki”, sagði Magnús. Áðspurður
sagði hann að snjór væri í minna
lagi á Hveravöllum en sér skildist
að snjóþyngra væri í nágrenninu.
Þetta er þriðja árið sem Magn-
ús og sambýliskona hans, Sigrún
Þórólfsdóttir, em við veðurathug-
anir á Hveravöllum. „Við emm
ekki búin að ákveða hvort við
verðum áfram, segjum eins og
áður að við tökum bara eitt ár í
einu. En okkur líður vel héma,
alltaf nóg að gera”, sagði Magnús.
í haust urðu nokkrar breyting-
ar á skipan prestsþjónustu í
Skagaflrði. Þá tók séra Gísli
Gunnarsson við Sauðárkróks-
prestakalli til eins árs. Hann
mun cinnig þjóna söfnuðum
Reynistaðar- og Glaumbæjar-
kirkju áfram, en njóta aðstoðar
séra Döllu Þórðardóttur. Dalla
mun hinsvegar annast þjónustu
í Víðimýrarsókn. Þá tók séra
Bragi J. Ingibergsson á Siglu-
firði viö prestþjónustu í Barðs-
sókn í Fljótum en Gísli í
Glaumbæ hefur þjónað tveim-
ur síðast töldu sóknunum und-
anfarin ár.
Segja má að prestaskiptin í
Fljótum hafi formlega fatið fram
í tengslum við aðventukvöld í
Barðskirkju í byrjun aðvenunnar.
Þar komu báðir prestamir ásamt
eiginkonum sínum og bömum. 1
hugvekju sem séra Gísli llutti við
þetta tækifæri rifjaði hann upp
nokkur minnisstæð atvik frá ell-
efu ámm sem hann hefur verið
sóknarprestur Fljótamanna.
Að lokinni athöfn í kirkjunni
bauð sóknamefnd til kafft-
drykkju. Þai' vom flutt ávörp og
Gísla og konu hans Þuríði Þor-
bergsdóttur afhent blóm sem
þakklætisvottur frá sóknarböm-
um fyrir sérlega góð og vinsam-
leg samskipti á liðnum ámm.
Einnig var organistanum Önnu
Jónsdótturog Stefáni R. Gíslasyni
afhent blóm en þau hafa leikið við
flestar kirkjunnar athafnir í Fljót-
um undanfai'in ár, einkum Anna
sem auk þess æfði og stjómaði
kirkjukór Barðskirkju í mörg ár.
Einnig þakkaði Gísli fyrir
sainstarf og margar ánægjulegar
stundir sem hann og fjölskylda
hafa átt hér ytra á undangengnum
ámm. sérstaklega þakkaði hann
Heiðnínu og Símoni á Barði fyr-
ir margvíslega aðstoð og færði
þeim blómvönd af þessu tilefni.
Við þetta tækifæri vom séra Bragi
og kona hans Stefama Ólafsdótt-
ir boðin velkomin til starfa með
söfnuði Barðskirkju sem væntir
góðs af samstarfi við þau hjón í
framtíðinni.
Þess má að lokum geta að við
athöfnina í Barðskirkju söng sem-
eiginlegur kirkjukór Víðimýrar-
og Glauinbæjarkirkju við undir-
leik Stefáns R. Gíslasonar. ÖÞ.
Laust starf hjá Rafveitu Sauðárkróks
Laust er til umsóknar starf rafvirkja við veitukerfið.
Umsóknarfrestur til 6. janúar nk.
Upplýsingar gefur rafveitustjóri.