Feykir


Feykir - 10.06.1998, Page 5

Feykir - 10.06.1998, Page 5
22/1998 FEYKIR 5 Þegar ég „hjólaði” í Heimi Karlakórinn Heimir 1937-1938. Fremri röð frá vinstri: Gísli Jónsson, Vigfús Sigurjónsson og Bjöm Olafsson. Önnur röð: Gunnlaugur Jónasson, Þorsteinn Sigurðsson, Jón Björns- son, Magnús H. Gíslason og Halldór Benediktsson. Efsta röð: Ingimar Bogason, Sigurður Kristófersson, Gísli Stefánsson, Tobías Jóhannesson og Björn Gíslason. Það verður víst ekki véfengt að Karlakórinn Heimir er nú orðinn 70 ára. Þessa merkisaf- mælis var minnst með íjöl- mennu og veglegu hófi í fé- lagsheimilinu Miðgarði nú fyr- ir nokkru. Þegar eg lít um öxl þá á eg dálítið erfitt með að átta mig á því að kórinn skuli vera orðinn þetta aldraður. Þegar eg gerðist þátttakandi hafði kórinn ekki starfað nema í 9 ár. En nú er hann bara allt í einu orðinn sjö- tugur. Já, „tíminn er fugl, sem flýgur hratt”. Innkoma mín í þetta sjötuga söngfélag var með næsta sér- kennilegum og óvæntum hætti. Veturinn áður höfðu söng- mennimir verið 19. Þegarfarið var að kanna liðið um haustið kom á daginn að einungis 9 ætluðu að halda áfram, auk söngstjórans, Jóns Bjömssonar. Tíu höfðu hætt, þeirra á meðal báðir einsöngvamir Haraldur á Völlum og Jón Gunnlaugsson. Þessir níu menn skiptust þannig í raddir: Annar bassi: Halldór Benediktsson Fjalli, Bjöm Gíslason Halldórsstöð- um, Tobías Jóhannesson Vall- holti. Fyrsti bassi: Gísli Stef- ánsson Mikley, Ingimar Boga- son Víðimýri, Sigurður Kristó- fersson Nautabúi. Annar tenór: Bjöm Ólafsson Kríthóli, Vig- fús Siguijónsson Brekku. Fyrsti tenór: Gunnlaugur Jón- asson Hátúni. Hér var ekki gott í efni. Gunnlaugur í Hátúni var að vísu miklum mun meiri og betri raddmaður en almennt gerðist, en engum var ætlandi að syngja einum á móti átta. En í engum var uppgjafahugur og niðurstaðan varð sú að ef takast mætti að fá þijá nýja liðsmenn, einn í annan tenór og tvo í þann fyrsta, þannig að þrír yrðu í rödd, þá skyldi starfmu haldið áfram. Og þetta tókst. I annan tenór kom Gísli Jónsson, þá á Víðimýri, og í þann fyrsta Þor- steinn Sigurðsson í Stokk- hólma og Magnús H. Gíslason í Eyhildarholti. Þegar Jón söngstjóri mæltist til þess að eg gerðist liðsmaður í Heimi, þá varð eg fljótur að verða við því. Eg bar mig mannalega og taldi mig svo sem engan nýgræðing í kór- söng. í Hólaskóla hafði eg sungið bæði í karlakór og kvar- tett, á Laugarvatni í karlakór og blönduðum kór. Mér varð hins vegar fljótlega ljóst að hér var um sumt ólíku saman að jafna, þótt eg hugsaði ekki út í það í byijun. Aður mátti heita að eg þyrfti ekki að ganga nema nokkur skref til þess að mæta á æfingar. Nú blöstu við margar bæjarleiðir og ekki alltaf auð- famar. Það átti eg síðar eftir að sannreyna. Mér eru í Ijósu minni fyrsta ferðin mín á raddæfingu hjá Heimi. Hún var í Varmahlíð en þar var þá orðin einskonar miðstöð fyrir starfsemi kórsins. Eg ákvað að labba upp í Hátún og verða Gunnlaugi, væntan- legum raddbróður mínum, samferða þaðan. Vötnin vora ísilögð svo ekki ullu þau erfið- leikum. Mér var tekið tveim höndurn í Hátúni, eins og jafn- an síðan. „Það er best að við förum á reiðhjólum fram eftir”, sagði Gulli. „Við verðum mun fljót- ari þannig”. Mér leist nú miðl- ungi vel á þessa tillögu. Eg hafði aldrei áður stigið á reið- hjól. Þar að auki var komið myrkur og bæði hjólin ljóslaus. Eg sagði Gulla auðvitað frá þessum menntunarskorti mín- um en hann fullyrti, að eg mundi óðara ná tökum á reið- skjótanum og mér til mikillar furðu reyndist hann þar sann- spár. Við fórum auðvitað lötur- hægt á ljóslausum hjólunum þaraa í myrkrinu en þó er eg ekki frá því að okkur hafi skil- að betur en ef við hefðum ver- ið gangandi. Segir nú ekki af ferðum okkar fyrr en við komum að brúnni á Grófargilsánni. Lítils- háttar brekka er niður að brúnni og vildi nú svo böslu- lega til, að eg missti stjómina á reiðskjótanum, sem tók rokuna niður brautarkantinn og hafn- aði niðri í ánni. Mér leist ekki á þetta ferðalag svo eg henti mér af baki og skildi þar með mér og færleiknum. Eg óttaðist að hafa stórskemmt hjólið, en Gulli hins vegar að eg hefði skrámast illa, en hvorugt reyndist rétt. Var nú skammt til Varma- hlíðar en þar var Jón söngstjóri mættur og farinn að þenja org- elið. Og því nær samtímis okk- ur kom Steini í Stokkhólma í hlaðið. Þar með var allur hinn föngulegi fyrsti tenór mættur og þar með þeir sem boðaðir höfðu verið á æfinguna. Kvöldið eftir var svo bössun- um boðið að mæta en Jón kenndi þessum þremur rödd- um. Um annan tenórinn sá Bjöm á Krithóli. Eg man það enn yfir hvaða lög við fórum á þessari fyrstu raddæfingu. Þau voru: Það laugast svölum úthafsöldum eftir Reissinger, Skálareglur eftir Fr. Abt, Kæreste bruder eftir Bellmann, Heyr þú móðir eftir Wennerberg og Ain niðar eflir Sigurð Þórðarson. Síðar var svo að sjálfsögðu mörgum lögum bætt við. Klukkan 11 lauk æfmgunni að þessu sinni og við héldum heimleiðis. Gulli stakk upp á því að eg gisti í Hátúni. Og þar sem mér lá svo sem ekkert á þá var ástæðulaust að vera að paufast austur yfir Eylendið í myrkrinu. Því tók eg boði Gulla með þökkum. Fyrsta æfingin mín hjá Heimi var að baki. Eg hafði lært þrjú ný lög. Hin kunni eg áður, og auk þess var eg orðinn útlærður á reiðhjóli. Fyrir því hafði eg orð Gulla. Þótt við söngmennimir vær- um nú ekki nema 12, - eða þrefaldur kvartett, einum færri en mér telst til að nú séu í fyrsta tenór í Heimi og er það þó fámennasta röddin, - þá var mikið sungið þennan vetur. Auk vikulegra æfinga voru op- inberar söngskemmtanir haldn- ar á Reykjum í Tungusveit (Laugarhúsinu), á Stóru- Ökrum, heima á Hólum, tvisvar úti á Sauðárkróki og svo auðvitað í Varmahlíð. Eg söng ekki í Heimi nema þennan eina vetur um sinn því svo hvarf eg burt úr héraðinu. Heimkominn var eg fljótur að endumýja kunningsskapinn. Vera má að eg víki að því síðar. Magnús H. Gíslason. Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga á Norðurlandi vestra Meginniðurstöður ársreiknings lífeyrissjóðsins sbr. 7. mgr. 3. greinar laga nr. 27/1991. Efnahagsreikningur 31/12 1997: Eignir í þús. króna Fjárfestingar Verðbréf með breytilegum tekjum............270.804 Verðbréf með föstum tekjum................694.268 Veðlán.....................................698.745 Aðrar fjárfestingar.........................11.500 Kröfur Kröfur á launagreiðendur....................45.335 Aðrar eignir Rekstrarfjármunir og efnisl. eignir..........2.849 Bankainnistæður og sjóðir.................644.163 Eignir samtals.......................... 2.367.664 Skuldir..........................................0 Hrein eign til greiðslu lífeyris.........2.367.664 Ýmsar kennitölur: Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum.........58,05% Kostnaður sem hlutfall af iðgjöldum.........4,91% Kostnaður sem hlutfall af eignum............0,37% Kostnaður á virkan sjóðfélaga...............4.511 Raunávöxtun m.v. neysluvísitölu.............8,71% Hrein raunávöxtun...........................8,31% Fjöldi virkra sjóðfélaga.....................1.804 Fjöldi lífeyrisþega............................490 Stöðugildi á árinu..............................2 Dómkórinn í Reykjavík syngur í Höfðaborg á Hofsósi laugardagskvöld kl. 20,30 og í messu í Hóladómkirkju á sunnudag. Aðgangur er ókeypis.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.