Feykir - 10.06.1998, Blaðsíða 8
10. júní 1998, 22. tölublað, 18. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJORBOK
✓
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hæstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
íslands u'j
í forystá til framtfðar
Útibúið á Sauöárkrókí - S: A
Fulltrúar frá Rauðakrossdeild Skagafjarðar og Sauðárkrókssöfnuði við líkbílinn glæsilega.
Gamli sjúkrabíllinn búinn
að skipta um hlutverk
Sjómannadagurinn á Skagaströnd
Nýi sóknarpresturinn
vígður til starfa
Á síðasta ári gaf Rauða-
krossdeild Skagafjarðar kirkj-
unni sjúkrabíl sem verið var að
taka úr notkun. Bíl þessum hef-
ur nú verið breytt og verður
framvegis notaður sem líkbíll.
Mun kirkjuvörður, Sverrir
Svavarsson, hafa yfirumsjón
„Það er eins og veðurfarsleg
skilyrði séu ekki lengur til
staðar fyrir smitleiðir og mót-
staðan í hrossunum hafi auk-
ist. Nú leggjum við bara
áherslu á það að menn haldi
þetta út fram yfir landsmót,
verji keppnishross sín gagn-
vart sýkingu, en eftir lands-
mót vonumst við til að geta
létt af öllum vörnum
gangvart útbreiðslu veikinn-
ar”, segir Sigríður Björns-
dóttir dýralæknir hrossa-
sjúkdóma á Hólum.
Hrossasóttin hefur ekki
breiðst meira út í Skagafirði.
Síðast veiktist hross, að því er
vitað er, fyrir um þrem vikum,
með rekstri bílsins, en fyrirhug-
að er að hann verði ekki ein-
göngu notaður við útfarir við
kirkjuna á Sauðárkróki, heldur
hvar sem er í Skagafirði verði
þess óskað, hvort sem er á flutn-
ingi frá sjúkrahúsinu til kirkju,
eða úr kirkju til greftrunarstaðar.
en Sigríður segir að möguleiki
sé á því að veikin sé orðin það
væg í hrossum í stóði t.d. að
þess verði varla vart er hrossin
taki smitið. Það er einungis á
Flugumýrarbúunum þremur og
Hjalla þar sem Flugumýrar-
menn sinntu gegningum í vetur,
sem veikinnar hefur orðið vart.
Aðspurð um þá kenningu að
veiran sem veldur hrossasótt-
inni sé til staðar erlendis, sagði
Sigríður að leiddar hefðu verið
að því sterkar líkur, en end-
punktinn varðandi það atriði
vantaði þó, það er staðfesting-
una.
í gær fékkst þó samþykkti
fyrir því í bækistöðvum Evr-
Stjóm Rauðakrossdeildar-
innar afhenti sóknamefnd Sauð-
árkrókskirkju bílinn formlega sl.
miðvikudag og var myndin tek-
in við það tækifæri. Bíllinn, sem
er mjög fallegur, hjálpar vafa-
laust til að gefa athöfnum virðu-
legan blæ.
ópusambandsins í Bmssel að
hrossútfiutningur gæti hafist að
nýju, en Halldór Runólfsson
landlæknir gerði sérstaka úllögu
um hvemig útflutningi yrði
hagað. Sú tillaga byggist á því
að unnt sé að flytja út hross
allsstaðar af landinu, en áður
verði þau í sóttkví í 10 daga.
Áma Pássyni rannsóknar-
lögreglumanni á Sauðárkróki
var falið að rannsaka hvemig
hrossasóttin hefði borist í
Skagafjörð. Ámi sagði í samtali
við Feyki að rannsóknin væri í
fullum gangi og hann vonaðist
til að niðurstaðan lægi fyrir á
næstunni, effir svo sem viku eða
hálfan mánuð.
Fjölmenni tók þátt í hátíða-
höldum sjómannadagsins á
Skagaströnd, sem hófust að
venju með skrúðgöngu ffá hafn-
arsvæðinu til kirkju. í sjó-
mannadagsmessunni að þessu
sinni var nýr sóknarprestur
Skagstrendinga vígður til starfa.
Það er Guðmundur Karl
Brynjarsson 32ja ára Keflvík-
ingur, sem kemur frá Reykja-
vík. Prófasturinn séra Guðni
Þór Ólafsson á Melstað fram-
kvæmdi athöfnina. Þá afhenti
frú Dómhildur Jónsdóttir ekkja
séra Péturs Þ. Ingjaldssonar sem
var prestur Skagstrendinga í 40
ár, og synimir Jón Hallur og
Ingólfur, kirkjunni að gjöf ný
skrúðklæði fyrir sóknarprestinn.
Gjöfin er til minningar um séra
Pétur. I lok messu var svo lagð-
ur blómsveigur við minnisvarða
um dmkknaða sjómenn á
Skagaströnd.
Eftir hádegi var farið í
skemmtisiglingu með bátunum
Hefúr verið
allaævina
á sjónum
Góð þátttaka var í hátíða-
höldum sjómannadagsins á
Hofsósi. Að sögn Finns Sigur-
bjömssonar í sjómannadags-
nefnd hefur sjaldan eða
nokkum tíma komið eins mik-
ill íjöldi í sjómannadagskaffið í
Höfðaborg. Einn aldraður sjó-
maður var heiðraður í tilefni
dagsins. Það er Friðvin Jónsson
sem nú er á 67. aldursári. Frið-
vin er sjómaður að lífi og sál og
hefur stundað sjóinn allt sitt líf
má segja. Undantekningamar
em einungis eitt haust sem
Friðvin vann á Keflavíkurflug-
velli, tvær vetrarvertríðir í
Grindavík vann hann í landi
og einnig núna tímabil á
síðustu missemm vegna van-
heilsu.
Hafrúnu og Ólafí Magnússyni
og var fjöldi manns um borð.
Þegar komið var að landi um
tvöleytið hófst kappróður og
síðan tóku við leikir og
skemmtun sem tilheyrir sjó-
mannadeginum á Skagaströnd.
Fóm þeir fram á hafnarplaninu
og bmgðu ýmsar starfsstéttir á
leik með sjómönnunum. Kynn-
ir var eins og oft áður Láms
Ægir Guðmundsson. Einn aldr-
aður sjómaður var heiðraður,
Indriði Hjaltason.
Búið er að halda sjómanna-
daginn hátíðlegan á Skaga-
strönd frá lýðveldisárinu 1944
og fljótlega var ráðist í smíði
tveggja kappróðrabáta sem ætíð
hafa verið notaðir á sjómanna-
daginn. Þeir hafa jafnan verið
kallaðir Gustur og Gola og nú
vom einmitt liðin 50 ár frá því
þeir vora fyrst teknir í notkun.
Guðmundur Finnbogason sjó-
maður flutti af þessu tilefni tölu
þar sem rakin var saga þessara
báta, frá því undirbúningur fyr-
ir smíði þeirra hófst, en þeir
munu hafa verið smíðaðir á Ak-
ureyri.
Það er Slysavamardeildin á
Skagaströnd sem annast fram-
kvæmd hátíðahaldanna á sjó-
mannadaginn. Mjög fjölmennt
var í sjómannadagskaffinu í fé-
lagsheimilinu Fellsborg. Tvær
málverkasýningar vom í skól-
anum. Þar sýndu Skagstrend-
ingurinn Jón Ivarsson og Ingólf-
ur Heimisson sem er ættaður af
Ströndinni. Kvikmyndasýning
var síðdegis í Fellborg og
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar lék síðan fyrir dansi á sjó-
mannadagsballinu um kvöldið.
Hross ekki veikst af sóttinni
á þriðju viku í Skagafirði
Útflutningur hrossa gæti hafist bráðlega
Gæðaframköllun
BÓKABÚÐ
BRYKfcJARS