Feykir - 15.12.1999, Qupperneq 9
43/1999 FEYKIR 9
verð 10.980 kr.
Ericsson
Aioi8s J
verð 14.980 kr.
með 2 auka framhliðum
Höklarnir sem rötuðu heim
Sagan af höklunum hennar
Hrafnhildar Sigurðardóttur
textílkonu, er hlaðin táknum,
tilviljunum og skemmtileg-
heitum. Sjálfír em þeir gullfal-
legir á að líta og fara prestin-
um á Hofstöðum, sr. Döllu
Þórðardóttur, mæta vel.
Höklamir vom í upphafi
ekki hannaðir fyrir Hofstaða-
kirkju í Skagafirði en eftir á að
hyggja er eins og þeir hefðu
hvergi annars staðar átt að
lenda. Greinarhöfundur hafði
tal að listakonunni Hrafnhildi,
sem nú stundar meistaranám í
skúlptúr í Colorado í Banda-
ríkjunum og henni sagðist svo
frá:
„Þetta byrjaði með því að
mér var boðið að vera með á
sýningu Kirkjulistahátíðar í
Hallgnmskirkju árið 1993. Ég
tók mig til og hannaði þessa
tvo hökla eftir að hafa fengið
fræðslu um kirkjuleg tákn og
annað tilheyrandi hjá hjálp-
sömum klerkum.
Eftir sýninguna vom grip-
imir svo til sölu í Kirkjuhús-
inu en hreyfðust ekki.
Kannski þóttu þeir dýrir en á
hvom þeirra vom þó aðeins
settar hundrað þúsund krónur
sem er mun minna en sér-
hannaðir höklar myndu kosta,
en það er önnur saga”, sagði
Hrafnhildur og bætti því við
að önnur ástæða sölutregð-
unnar kunni að hafa verið
skrautlegt útlit þeirra.
„Mér skilst að þeir hafi þótt
dálítið kvenlegir”, sagði hún
og hló, en gyllingar og sterkir
litir setja svip sinn á gripina.
„Ég hafði kynnt mér hökla úr
kaþólskum sið og þaðan fékk
ég þennan gyllta innblástur.”
Vildi litla
landsbyggðakirkju
En áfram með söguna:
„Skömmu síðar kom upp sú
staða í mínu lífí að ég vonað-
ist eftir að ákveðnir hlutir fæm
í ákveðinn veg. An þess að
eðli málsins skipti meginmáli
í þessari frásögn, má segja að
mikið hafi legið við og því
ákvað ég að heita á einhverja
góða kirkju og gefa henni
höklana ef atburðarrásin
gengi eftir”.
Hrafnhildur vildi síður
heita á Strandarkirkju eins og
allir aðrir, og heldur ekki á
kirkju á höfuðborgarsvæðinu
þar sem hún taldi að önnur
guðshús þyrftu meira á gjöf-
inni að halda. Hún ákvað því
að finna litla kirkju úti á landi
- „helst þar sem kvenprestur
þjónaði því ég vildi ekki gera
einhverjum vesalings karl-
presti það að þurfa að ganga í
kvenlegu höklunum mínum",
sagði hún og skellti upp úr.
Aheitið var {jess eðlis að
gjöfin átti að fara stækkandi
eftir því sem útkoman yrði
betri. „Ef það sem ég vonaðist
eftir yrði gott fengi kirkjan
einn hökul, ef það yrði betra
yrðu þeir tveir og svo koll af
kolli. Niðurstaðan var rúm-
lega tveir höklar”, sagði
Hrafnhildur og útskýrði í
gamansömum tón að með
námundarreikningi hafi gjöfin
á endanum orðið tveir heilir
höklar. Hvorki rúmlega né
tæplega.
í handbók kirkjunnar las
Hrafnhildur að sr. Dalla Þórð-
ardóttir væri prestur í fjómm
sóknurn í Skagafirði. Þar var
kominn kvenpresturinn sem
leitað var að og þótti Hrafn-
hildi Skagafjörður einnig
spennandi kostur þar sem hún
vissi að hún ætti ættir að rekja
þangað norður. „Þegar ég sá í
bókinni nafn Elínborgar
Bessadóttur formanns sóknar-
nefndar Hofstaðakirkju, vissi
ég að hún hlyti að vera skyld
mér því bæði nafn og föður-
nafn em algeng í minni ætt”,
sagði Hrafnhildur sem hringdi
strax norður til þess að athuga
málið.
Og það stóð heima Elín-
borg reyndist ættingi Hrafn-
hildar og fræddi hana í þeirra
fyrsta símasambandi um að
sóknamefndin væri einmitt á
leiðinni að funda um hökla-
kaup innan fárra daga. „Elín-
borg sagði mér líka að Hof-
staðir hefðu verið kirkjustaður
frá því í kaþólsku og fyrr á
tímum mikil áheitakirkja. Eft-
ir að endurgerð kirkjunnar
hófst fyrir um áratug tók fólk
upp á því að nýju að heita á
kirkjuna sem hefur að sögn
gefist afskaplega vel og kirkj-
an jafnan notið góðs af.”
Um allt þetta hafði Hrafn-
hildur ekki hugmynd þegar
hún ákvað að heita á Hof-
staðakirkju og leggja fram
höklana sína, sem vart þarf að
taka fram að vom þegar þegn-
ir með þökkum.
Langalangafi byggði
kirkjuna
í sumarlok líðandi árs fór
Hrafnhildur svo loks norður til
þess að afhenda hinar litríku
gjafir. „Haldin var stutt athöfn
í litlu kirkjunni og saga endur-
bygginga á staðnum rakin. Þá
kom enn ein tilviljunin í ljós;
það varenginn annaren langa
langafi minn, Bjöm Pétursson,
sem ásamt bróður sínum reisti
þá byggingu sem nú heitir
Hofstaðakirkja og er hann
jarðsettur þar í kirkjugarðin-
um ásamt fjölda annarra
skyldmenna minna”, sagði
Hrafnhildur að síðustu, enn
yfir sig undrandi á þessari
skemmtilegu atburðarás sem
magir myndu eflaust telja að
stýrt hefði verið af himneskri
hönd.
Sigurbjörg Þrastardóttir.
(höfundur er blaðamaður á
Morgunblaðinu og birtist greinin
í þættinum „daglegt líf’ á sínum
tíma).
Dalla Þórðardóttir prófastur og prestur í Hofstaðakirkju
ásamt Hrafnhildi Sigurðardóttur sem gerði höklana.
Fyrirframqreidd símkort
Vertu
frjáls!
veldu þína gjöf
Nokia 5110
S í MIN N -GSM
WWW.GSM.IS
Frelsi
GSM simamir okkar eru ólæstir. Tilboðin gilda i verslunum Simans. WWW.gsm.is/frelsi
Motorola 013288
Innifalið i Frelsi:
Simkort og simanúmer, 500 kr.
inneign auk 1000 kr. inneignar við
skráningu. Talhólf. Númerabirting.
SMS textaskilaboó.