Feykir - 12.01.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Hundrað milljónir
í skólabyggingar
„Okkur er sniðinn mjög
þröngur stakkur á þessu ári,
vegna þess að við munum láta
100 milljónir í uppbyggingu
grunnskólans á Sauðárkróki.
Við gerum þó ráð fyrir að
skuldir muni lækka um 20
milljónir á árinu, lán verði
greidd niður um 90 milljónir en
nýja lántökur verði 70 milljónir.
Ég tel að þessi áætlun sé mjög
raunhæf, en hinsvegar er ekki
neitt í þessari áætlun um sölu
eigna, s.s. ef við mundum selja
bréfin í Steinullarverksmiðjunni
að þá koma skuldir væntanlega
til með að lækka meira “, segir
Gísli Gunnarsson forseti sveit-
arstjómar Skagafjarðar, en fyrri
umræða um fjárhagsáætlun
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
var í sveitarstjóm í gær.
Gísli segir að rekstur og
framkvæmdir séu ansi háir lið-
ir í áætluninni, eða um 400
milljónir af 750 milljóna tekj-
um sveitarsjóðs. Skatttekjur, út-
svar, fasteignagjöld og framlag
frá jöfnunarsjóði em áætlaðar
728 milljónir. Þá er framlag
veitna til sveitarsjóðs áætlað 20
milljónir króna. „Það sem okk-
ur vantar em auknar tekjur í
sveitarfélaginu”, segir Gísli.
Helstu rekstrarliðir sveitar-
sjóðs em: Rekstur, gjöld kr.
715.685.000, tekjur kr.
766.399.000. Gjaldfærð fjár-
festing, gjöld kr. 56.820.000,
tekjurkr. 8.610.000. Eignfærð
fjárfesting, gjöld kr.
147.000.000, tekjur kr.
20.000.000.
Slökkt í þrettánda-
brennunni á Krók
Fjöldi manns mætti í blysför
og til þrettándabrennu hjá
skátafélaginu Eylífsbúum sl.
fimmtudagskvöld. Brennan
varð þó mjög endaslepp þar
sem vindur snérist snögglega til
austurs í þann mund sem kveikt
var í kestinum. Sá slökkiviliðið
sitt óvænna, enda stóð bálið
beint á fólkið, og slökkti í
kestinum. Myndaðist allmikill
reykur og var fólk fljótt að
forða sér að vettvangi, enda
breyttust aðstæður á skammri
stundu til hins verra.
Að sögn Óskars Óskars-
sonar slökkviliðsstjóra fóm
hlutimir eitthvað úr böndum
verðandi brennuna, þar sem að
bálksturinn var mun stærri en
leyfi var veitt fyrir, eða fimm
sinnum stærri eins og Óskar
orðaði það. Óskar sagði að
staðsening bálkastarins, skammt
frá Tengli og Bjama Har., byði
ekki upp á stóran köst, enda
hefði frekað verið um varðeld
að ræða en bálköst hingað til á
þessum stað. „Þetta bál hefði
eftir stærðinni að dæma frekar
átt að vera á brennustæði
bæjarins”, sagði Óskar.
Það gladdi þakklátt hjarta sjúklinga og starfsfólks sjúkradeildar Sjúkrahúss Skagfirðinga
þegar dansflokkur úr ungmennafélögunum Smára og Tindastúli sýndu álfadans á deidlinni
sl. laugardag. Mynd / Pétur Ingi Bjömsson.
Óvíst hvort sveitarstjóraskipti
verða í Skagafirði að sumri
„Ekki með mann á hendi“ segir forseti sveitarstjórnar
„Ég vinn samkvæmt mínum
samningi og hann gerir ráð
fyrir því að minn starfstími
sé úti í sumar. Annað hef ég
ekki um málið að segja”,
sagði Snorri Björn Sig-
urðsson sveitarstjóri. Snorri
var í upphafi kjörtímabils
ráðinn til tveggja ára og
samkvæmt því gætu orðið
sveitarstjóraskipti í sumar.
Gísli Gunnarsson forseti
sveitastjómar sagði að þetta
mál hefði ennþá ekki verið
rætt. „Við emm ekki með
mann í hendi til að taka við og
það er ennþá í gildi að
samningur Snorra renni út um
mitt sumar. Hins vegar er ekki
útlokað að sá samingur verði
endurskoðaður, komist aðilar
að samkomulagi um það.”
Aðspurður hvort það sé
ekki að ýmsu leyti slæmt að
ráða í svo veigamikið starf
fram á mitt kjörtímabil, sagði
Gfsli að það gæti sjálfsagt verið
álitamál. „Sumir vilja meina að
það sé minna um gott og reynt
fólk á lausu á miðju kjör-
tímabili, en ég vil meina að það
sé alltaf hægt að ná í gott fólk.
Síðan er það spumingin hvort
það sé betra eða verra fyrir
samstarfsaðila í sveitarstjóm að
ná saman um mann á miðju
kjörtímabili. En þetta em
kannski ákaflega loðin svör
sem ég gef þér, en eins og þú
heyrir þá er ekki hægt að slá
neinu föstu um það hvort að
sveitarstjóraskipti verða í
sumar eða ekki”, sagði Gfsli
Gunnarsson forseti sveitar-
stjómar.
Þó það komi vangaveltum
um sveitarstjóraskipti ekkert
við, þá má í leiðinni geta þess
að sveitarstjóri Skagafjarðar
hefur nú um stundir búið í
eigin húsnæði. Það varð til
þess að ákveðið var að selja
íbúð þá er sveitastjóri og áður
bæjarstjóri Sauðárkróks hafði
til umráða við Skagfirð-
ingabrautina. Hún var seld á
liðnu hausti ásamt bílskúr sem
henni fyldu og fékkst fyrir
þessa eign liðlega átta
milljónir.
—ICTCH^ÍH ekjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
mi
bílaverkstæði
Simi: 453 5141
Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
& Réttingar # Sprautun