Feykir - 12.01.2000, Síða 3
2/2000 FEYKIR 3
Við lambaskoðun í haust. Kristján Óttar Eymundsson og Jóhannes Ríkharðsson, sem
heldur á væntanlegum lífhrút. Mynd/Örn.
Lífvænlegir hrútar frá
Skörðugili og Deplum
Dægurlagakeppni
kvenfélagsins byrjuð
Frestur til að skila lögum til 2. febrúar
Dægurlagakeppni Kvenfé-
lags Sauðárkróks 2000 er nú haf-
in. Þegar hefur verið auglýst eft-
ir lögum í keppnina en henni
mun ljúka með úrslitakvöldi í
Sæluviku Skagfirðinga föstu-
daginn 5. maí n.k.
Öllum laga- og textahöfund-
um landsins er heimil þátttaka.
Aðeins verða tekin til greina
verk sem ekki hafa verið flutt
opinberlega né gefin út áður.
Verkin skulu vera á hljóðsnæld-
um eða diskum og textar á ís-
lensku. Þátttakendur skili verk-
um sínum inn undir dulnefni á-
samt þátttökugjaldi kr. 1.000 fyr-
ir hvert lag. Rétt nafn og heimil-
isfang skal fylgja með í vel
merktu og lokuðu umslagi.
Síðasti skilafrestur er 2. febr-
úar 2000. Miðað er við að þátt-
tökugögn séu póstlögð í síðasta
lagi þann dag. Póstfang er
„Dægurlagakeppni Kvenfélags
Sauðárkróks”, Pósthólf93, 550
Sauðárkrókur.
Dómnefnd mun velja tíu lög
til að keppa á úrslitakvöldi þann
5. maí og mun þá sérstofnuð
hljómsveit flytja lögin ásamt
söngvurum sem höfundar velja.
Sérskipuð dómnefnd ásamt
áheyrendum munu velja sigur-
lag. Vegleg ve'rðlaun verða veitt.
Kvenfélagið áskilur sér allan rétt
til hvers kyns útgáfu á þeim tíu
lögum sem komast í úrslit.
Framkvæmdastjóri keppn-
innar er Helga D. Amadóttir og
hljómsveitarstjóm er í höndum
Eiríks Hilmissonar.
„Dægurlagakeppni Kvenfé-
lags Sauðárkróks” er árlegur við-
burður í Sæluviku Skagfirðinga.
Keppnin hefur áunnið sér fastan
sess í þjóðlífinu sem helsti vett-
vangur fyrir fjölmarga tón- og
textahöfunda sem vilja koma
verkum sínum á framfæri.
4000 lömb ómskoðuð í Skagafirði
Ekið á hross við
Geitaskarð í Langadal
„Ég skoðaði lömb á 80
bæjum í héraðinu í haust og
af þeim var um helmingur-
inn með hrúta í afkvæmis-
rannsókn. Nú er svo komið
að langflest stærri fjárbúin í
héraðinu láta skoða líflömb
með ómsjá og velja nteiri-
hluta lífgimbranna þannig.
Þetta hefur vaxið ár frá ári og
er það mesta sem ég hef
skoðað á einu hausti”, sagði
Jóhannes Ríkharðsson sauð-
fjárræktaráðunautur hjá Bún-
aðarsambandi Skagafjarðar
þegar tíðindamaður Feykis
innti hann eftir niðurstöðu úr
lambaskoðun haustsins.
Það voru 4000 lömb sem
mæld voru að þessu sinni,
þar af 527 hrútlömb. Af
þessum lömbum voru liðlega
800 sem urðu til við sæðing-
ar árið á undan, en sérstök
áhersla er lögð á að skoða
þau. Einnig voru skoðaðir
120 veturgamlir hrútar,
nokkrir af þeim aðkeyptir frá
Ströndum og Snæfellsnesi.
Ómsjáin gerir kleift að mæla
af nokkru öryggi bæði vöðva
og fitu í kindinni. Með því
móti er hægt að velja þannig
til lífs þá einstaklinga sem
hafa æskilegustu byggingu
til kjötframleiðslu.
Tveir stigahæstu lamb-
hrútar í héraðinu með 86,5
stig reyndust vera frá Syðra-
Skörðugili og Deplum.
Sömu heimili áttu einnig tvo
næstu hrúta sem hlutu 86
stig. Þar á eftir komu hrútar
frá Miðhúsum í Óslandshlíð,
Geldingarholti I-III og tveir
frá Óslandi með 85,5 stig. Af
veturgömlum hrútum stóð
Hvati frá Litlu-Brekku efstur
með 87 stig og næstur hon-
um kom hrútur frá Geir-
mundarstöðum, keyptur frá
Hjarðarfelli á Snæfellsnesi,
með 86,5 stig. En með 86
stig voru Saumur frá Syðra-
Skörðugili og Sindri frá
Þrasastöðum, keyptur frá
Smáhömrum í Strandasýslu.
Það var athyglisvert að af 40
stigahæstu lambhrútunum
voru aðeins 17 tvílembingar.
Það hlýtur að teljast óhag-
stætt hlutfall jafnvel þó svo
að frjósemi væri víða minni í
vor en í meðalári. ÖÞ.
Aflífa varð hross við Geita-
skarð í Langadal eftir að hrossa-
hópur hafði farið upp á veginn.
Fólk í fólksbíl, sem lenti á hross-
unum, slapp án teljandi meiðsla,
en bíllinn er nánast gjörónýtur.
Að sögn lögreglu er allt of
mikið um að hross séu við vegi
og eftirlit með þeim sé ekki
nægt, þar sem að það skapi ætíð
h'fshættu fyrir vegfarendur sleppi
hross úr hólfi. Sem betur fer hef-
ur þó ástandið verið betra nú í
vetur en oft áður, en betur má ef
duga skal. Að mati lögreglu er
tímabært að sveitarstjómir sam-
þykki að banna lausagöngu bú-
fjár og taki fastar á þessum mál-
um en gert hefur verið hingað til
víða.
Feykir
Síminn er
453 5757