Feykir - 09.02.2000, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Skuldastaða sveitarfélaga í brennidepli
Skíigafjörður meðal
sjö skuldugustu
Sveitarfélagið Skagafjörður
er meðal sjö skuldugustu sveit-
arfélaga landsins, en forsvars-
menn þeirra fengu á dögunum
bréf frá eftirlitsnefnd félags-
málaráðuneytisins, þar sem seg-
ir að eftir að reikningsskil hafi
verið skoðuð, komi f ljós að
fjárhagsstaða sveitarfélaganna
sé alvarleg og virðist fjármál
þeirra stefna í verulegt óefni.
Skuldir Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar eru rúmlega 320 þúsund
á íbúa, en skuldugasta sveitarfé-
lagið er Ólafsfjörður með um
390 þúsund á íbúa.
Auk þessa tveggja sveitarfé-
laga, fengu sérstaka viðvörun
frá eftirlistnefnd félagsmála-
ráðuneytisins, Hríseyjarhreppur,
ísafjarðarbær, Vestmannaeyjar,
Vesturbyggð og Snæfellsbær.
Tólf sveitarfélög önnur fengu
mildari viðvömn frá eftirlits-
nefndinni og er Blönduósbær
þar á meðal. Óskað er eftir skýr-
ingum frá stjómendum sveitar-
félaganna hvað hafi þama farið
úrskeiðis, innan tveggja mánaða
ásamt greinargerð um hvemig
þróunin hafi orðið hjá viðkom-
andi sveitarfélagi á síðasta ári.
Forsvarsmenn sveitarfélags-
ins Skagafjarðar segjast taka
stöðuna alvarlega og á fundum
sveitarstjómar að undanfömu
hefur skuldastaðan borið nokk-
uð á góma. Leiðir til spamaðar
virðast þó vandfamar og í fjár-
hagsáætlun þessa árs er ekki
gert ráð fyrir sölu eigna. Snorri
Bjöm Sigurðsson sveitarstjóri
segir að vel geti þó komið til
greina að huga að því þegar líð-
ur á árið og Snorri segir sveitar-
félagið eiga eignir íyrir skuldum.
Fram hefur komið í máli
ráðamanna Skagafjarðar að
sameiningarárið 1998, eina
heila starfsár sveitarfélagsins
sem til eru reikningsskil yfir,
hafi verið mjög erfítt og fjármál
farið nokkuð úr böndum. Því sé
það ár ekki beint viðmiðunar-
hæft, en við umræður um fjár-
hagsáætlun á dögunum kom
fram að meirihlutinn telur að
fjárhagsáætlun síðasta árs hafi
staðist í meginatriðum. Ljóst er
þó engu að síður að það verður
verkefni sveitarstjómarinnar á
næstu mánuðum að fínna leiðir
sem leitt gætu til þess að laga
skuldastöðuna.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
stjómarformaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga segir að
sveitarfélögin sem áminning-
una fengu eigi það sammerkt að
þar hafi íbúum verið að fækka
síöustu árin, og sveitarsjóðimir
því orðið af skatttekjum og
tekjustofnar ekki komið á móti.
Vilhjálmur vísar því á bug að
um óráðsíu í fjármálastjóm
sveitarfélaganna sé um að
kenna hvemig staðan er.
Það fór vel á með þeim Stefaníu Ósk Stefánsdóttur formanni þorrablótsnefndar Öldunnar og
Guðmundi Sveinbjömssyni frá Sölvanesi á blótinu á dögunum.
Málefni Vindhælishrepps
enn í biðstöðu
Enn hefur ekkert gerst í mál-
efnum Vindhælishrepps, þó
íbúatala hreppsins sé búinn
að vera undir lágmarkstöl-
unni 50 um fimm ára skeiðog
því hafi hreppnum borið
skylda til að sameinast öðru
hreppsfélagi fyrir nokkru.
Húnbogi Þorsteinsson í fé-
lagsmálaráðuneytinu segir að
þetta mál hafi reynst erfitt.
Skagahreppur hafi neitað að
Arnar byrjar vel á nýju ári
Áhöfn frystiskipsins Amars á Skagaströnd
byrjar nýja árið eins og frá var horfið á því síðasta.
Skipið landaði á mánudag úr sinni fyrstu veiðiferð
á árinu afla að verðmæti um 108 milljónir króna.
Sem kunnugt er setti skipið met rétt fyrir jólin
þegar það fór fyrst frystiskipa yfir milljarð í
aflaverðmæti á ársgmndvelli.
Ámi Sigurðsson skipstjóri áAmari segistóttast
að árið verði ekki í takt við þennan fyrsta túr.
„Okkur finnst þetta ekki líta eins vel út og í fýrra.
Við vomm bara á réttu róli, byrjuðum héma fyrir
norðan og fómm svo austur fyrir en ekki vestur
fyrir land. Mér sýnist ýmislegt benda til þess að
það verði ekki eins mikið að hafa og í fyrra”, sagði
Ámi. Um 80% afla Amars var þorskur, en
Skagstrendingur hefur góða kvótastöðu í þorski
og það munar um það í tölum varðandi
aflaverðmætin.
sameinast Vindhælishreppi á
sínum tíma þegar það stóð til
og síðan hafi verið horft til ann-
arra sameininga í sýslunni, en
lítil hreyfing orðið á þeim mál-
um. „En við munum ekki láta
þetta ganga svona endalaust”,
sagði Húnbogi.
f hreppsnefnd Vindhælis-
hrepps vom kosnir við síðustu
kosningar: Bragi Kárason
bóndi Þverá, Jakop Guðmunds-
son Árbakka, Bjöm Bjömsson
á Ytri-Hóli, Stefán Stefánsson
Ytri-Ey og Daníel Magnússon
Eyjakoti. Hreppsnefndarmaður
sem Feykir hafði samband við
baðst undan því að þurfa á
nokkum hátt að ræða málefni
hreppsins.
Æa
bílaverkstæði
simi: 453 5141
Sæmundorgata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
^ Réttingar Sprautun
—KTen^iH —
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆUÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA