Feykir


Feykir - 09.02.2000, Qupperneq 3

Feykir - 09.02.2000, Qupperneq 3
6/2000 FEYKIR 3 Bvlting hjá skíðafólki Nýja skíðasvæðið í Tindastóli vígt með glæsibrag Skíðaáhugafólk í Skagafirði og nágrenni er í sjöunda himni með nýja skíðasvæðið sem opnað var í Tindastóli um helg- ina. Um 300 voru viðstaddir vígslu nýrrar skíðalyftu á laug- ardagsmorgun og þann dag var vel á fjórða hundrað manns á skíðum í fjallinu. Fjölmennt var einnig á sunnudag og er þegar útlit fyrir að þetta nýja skíðasvæði eigi eítir að laða til sín marga, enda hefur með til- komu þess orðið algjör bylting á aðstöðu til skíðaiðkunar á svæðinu. Skíðafólk frá Skaga- strönd og Siglufirði var meðal þeirra er fyrstir renndu sér í nýju brekkunni, sem Egill Jó- hannsson formaður Skíðasam- bands íslands segir að sé ann- ar tveggja bestu stórsvigsbakka landsins. Margt góðra gesta var við- statt vígslu skíðalyftunnar á laugardag, en hún er 1200 metra löng með um 250 metra fallhæð. Bygging hennar hefur gengið ævintýralega vel, en framkvæmdir hófust 20. des- ember. Hermann Sigtryggsson fulltrúi Vetrariþróttamiðstöðvar Islands á Akureyri, var meðal gesta og lauk hann miklu lofs- orði á aðstöðuna í Tindastóli og það framtak sem dugmikil sveit heimafólks hefur unnið. Her- mann sagði m.a. að ef hann hefði komið á svæðið í desem- ber þá hefði ekki þýtt að segja sér að það ætti að fara að reisa skíðalyftu. hvað þá að hún yrði reist á svo skömmum tíma sem raun ber vitni. Hermann sagðist þess fullviss að skíðasvæðið í Tindastóli ætti eftir að ala af sér margan góðan skíðamanninn og veita fólki ómælda ánægju í framtíðinni, og gaman væri að fylgjast með skíðamótum á þessum stað. því greinilega biði það upp á góða möguleika hvað mótahald snerti. Hermann færði skíðadeild Tindastóls áletraðan skjöld frá Vetraríþróttamiðstöðinni í til- efni dagsins og svo gerðu einnig fulltrúar Skíðasam- bandsins, Egill Jóhannsson for- maður og Ásgeir Sverrisson stjómarmaður. Egill hafði orð á því í ávarpi sínu að fjöllin þama í kring bæm það með sér að hér yrði gott að skíða og snjóinn skorti ekki. Þá yrði þess áreið- anlega ekki langt að bíða að Skagfirðingar létu að sér kveða í skíðaíþróttinni, enda sleipir í Mikið fjölmenni var viðstatt vígslu skíðalyftunnar. öðmm íþróttum og nefndi í því sambandi tvo af bestu íþrótta- mönnum landsins, Eyjólf Sverr- isson og Jón Amar Magnússon. Þetta var langþráður dagur hjá fomstusveit skíðadeildar Tindastóls og ungmennafélags- ins. Páll Ragnarsson formaður félagsins sagði í ávarpi sínu að hér væri stórt skref stigið í í- þróttamálum Skagafjarðar og takmarki náð sem lengi hefði verið stefnt að. Breyttar aðstæð- ur í þjóðfélaginu kölluðu á bætta möguleika til afþreyingar fólks, þar sem að nú heyrði það sögunni til að unnið væri myrkranna á milli. Fólk hefði rýmri tíma til tómstunda en áður og sérstaklega væri það yfir veturinn sem afþreyingar væri joörf. Páll sagði að nú þætti hverju héraði nauðsyn að geta boðið upp á aðstöðu sem þessa og kvaðst þess fullviss að skíða- svæðið ætti eftir að veita mörg- um þá ánægju og lífsfyllingu sem fælist í heibrigðri íþrótt og útivist. Páll vék að aðdraganda ákvarðanatöku varðandi skíða- svæðið í sveitarstjóminni og sagðist virða þær skoðanir sem þar hefðu komið fram, en lét jafnframt í ljósi óskir um að eining yrði um skíðasvæðið nú þegar málið væri afgreitt. Formaður Tindastóls gat þess mikla sjálfboðaliðastarfs sem unnið var við uppsetningu skíðalyftunnar, og nefndi þar sérstaklega þá Viggó Jónsson, Gunnar Bjöm Rögnvaldsson og Steinar Pétursson, sem vom í fylkingarbrjósti við fram- kvæmdina, og einnig nefndi Páll til gamans þátt Sigurðar Gísli Gunnarsson forseti sveitarstjómar Skagafjarðar afhenti Gunnari Bimi Rögnvaldssyni formanni skíðadeildar Tinda- stóls blóm í tilcfni dagsins. Kársonar vélamanns, sem varði mestum hluta síns frítúrs á Málmeynni uppi á skíðasvæði og teldist áhugáhópnum til að Sigurður yrði næst í landi í aprílmánuði. Það var Viggó Jónsson sem fór fyrstu ferðina í lyftunni en áður hafði Gísli Gunnarsson forseti sveitarstjómar flutt ávarp þar sem hann lýsti yfir ánægu fulltrúa sveitarfélagins með hvernig til hefði tekist og óskaði Gísli skíðaáhugafólki til hamingju og alls hins besta í framtíðinni. Að lokinni athöfninni var öllum gestum boðið upp á kakó og kleinur í skíðaskálanum, sem greinilega verður rijótlega barns síns tíma, þar sem hann rúmar ekki nema um 30 manns þegar best lætur. Kostnaður við uppbyggingu skíðasvæðisins nemur í dag rúmum þrjátíu milljónum króna og hafa áætl- anir staðist í meginatriðum. Samvinnubókin og KS-bókin Tveír góðir kostir til að ávaxta spariféð þitt in er með 5,40% vexn^mindin í 3 ár og verðtryggð Ársávöxtun 10^22°/^ Samvinnubó^in er með laiisri bincH^B^nafnvextir 9,0%, Ársávöxtun 9,20%jy. |, - -«1 f'* . ▼ Inf^msdeikl Ji

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.