Feykir - 01.03.2000, Qupperneq 2
2 FEYKIR 9/2000
Margt að gerast á Opnum
dögum í Fjölbrautaskólanum
Það var Valgeir Levý sem fékk verðlaun fyrir besta búninginn
á Söngvarakeppninni „Scream 2000“ sem fór fram í Bifröst í
síðustu viku. Ólafur Símon Ólafsson t.h. afhenti viðurkenn-
inguna, en hins vegar tókst ekki, vegna mikils sviðsreyks, að ná
hrúklegri mynd af sigurvegara söngvarakeppninnar, Sverri
Bergmann Magnússyni, en hann verður fulltrúi FNV í
Söngvarakeppni framhaldsskólanna.
í dag, miðvikudag, byrja í
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra hinir árlegu Opnu
dagar í skólanum, en þá er
brugðið er út af hcfðhundinni
stundaskrá og ýmiss menn-
ingar- og tómstundarmál tek-
in til umfjöllunar. Nemendur
og kennarar skemmta sér
saman við hin ýmsu uppátæki
og það er Nemcndafélagiö
sem stendur fyrir dagskránni
sem endar með árshátíð skól-
ans í lok vikunnar.
Eins og jafnan áður kennir
ýmissa grasa og verður dagskrá-
in mjög þétt og allir ættu því að
/jpBij Heilbrigðisstofmmin
Sauðárkróki
HUSNÆÐI OSKAST
Stofnunin óskar eftir íbúðum á leigu, á Sauðárkróki, fyrir
sumarafleysingafólk. Um er að ræða tímabilið júní - ágúst. n.k.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 455 4020.
(jWlij Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku
í stofnuninni í marz og apríl:
Tímabil
Læknar
1/3 - 10/3 Sigurgeir Kjartansson
13/3 - 17/3 Valur Þór Marteinsson
20/3 - 24/3 Vilhjálmur Andrésson
27/3 - 7/4 Ólafur R. Ingimarsson
10/4 - 14/4 Edward Kiernan
17/4 - 19/4 Sigurður Albertsson
Tímapantanir í síma 455 4000.
Sérgrein
skurðlæknir
þvagfæraskurðlæknir
kvensjúkdómalæknir
skurðlæknir
kvensjúkdómalæknir
skurðlæknir
fínna eitthvað við sitt hæfi.
Margir góðir gestir koma og
heimsækja skólann á ineðan á
Opnum dögum stendur, nægir
þar að nefna Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra, en hann
kemur og spjallar við nemendur
að morgni fyrsta dags Opnu
daganna, það er í dag.
Hljómsveitin landsfræga
Sigurrós kemur og heldur tón-
leika á fimmtudaginn öllum
vonandi til mikillar skemmt-
unnar, en hún hefureinmitt ver-
ið að gera það gott í Bretlandi á
síðustu missemm. „Þessi dag-
skráratriði eru aðeins brot af því
sem er í boði á opnum dögum,
hitt sem er í boði, er einfaldlega
svo yfirgripsmikið að ekki verð-
ur unnt að telja það upp að svo
stöddu. Opnu dögunum lýkur
svo með glæsilegri árshátíð
sem haldin verður í íþróttahús-
inu laugardaginn 4. mars, þar
verður mikið um dýrðir og næg-
ir að nefna að hljómsveitin
Skítamórall leikur fyrir dansi að
loknu borðhaldi. Góða skemmt-
un á Opnum dögum sem og
öðmm”, segir m.a. í tilkynningu
frá Nemendafélagi Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra, en þai'
er tekið ífam að að ölvun á þess-
ari árshátíð er með öllu óheim-
il.
Húnaþing vestra
Fimm sækja um
áfengisútsöluna
Fimm aðilar sýna áhuga á
rekstri útsölu ATVR sem á-
ætlað er opna í Húnaþingi
vestra í vor, en ÁTVR aug-
lýsti eftir samstarfsaðilum
nýlega. Forráðamenn áfeng-
isverslunarinnar ætla að
koma norður nú í vikunni,
ræða við þessa aðila og kynna
sér aðstöðuna sem þeir hafa
upp á að bjóða.
Þessir fimm aðilar munu
vera Verslunin Mirra á
Hvammstanga sem Jóhanna
Ágústsdóttir veitir forstöðu,
Slökkvitækjaþjónustan
Hvammstanga í eigu Skúla
Guðbjömsson, Kaupfélag Vest-
ur - Húnvetninga, Tölvuhljóð-
mynd sem er í eigu Gústavs
Daníelssonar og Verslunin
Tröllagarður á Laugarbakka
sem Regína Þórarinsdóttir rek-
ur.
Dorgveiðikeppni
á Vatnshlíðarvatni
Laugardaginn 4. mars held-
ur ferðamálabraut Hólaskóla
dorgveiðikeppni á Vatnshlíðar-
vatni. Keppnin hefst kl. 12,30
og stendurtil kl. 16. Keppnis-
gjald er 500 kr. en innifalið í
verðinu er vök og beita. Á
staðnum verður veiðafæraleiga
og sjoppa sem selur sælgæti og
heita drykki. Veitt verða verð-
laun fyrir mestu aflabrögðin og
stærstu fiskana ásamt ýmsu
öðru.
Rannsóknir hafa sýnt að
þéttleiki bleikjunnar í Vatns-
hlíðarvatni sé sá mesti á landinu
þannig að búast má við mikilli
veiði. Vatnið er sérstakt fyrir
þær sakir að þar eru tvö aðskil-
in afbrigði af bleikju.bnína af-
brigðið og silfraða afbrigðið.
Ferðamálabrautin í Hóla-
skóla hefur staðið að dorgveiði-
keppnum síðustu ár, þó sum
árin hafi fallið úr vegna veðurs.
Núna munu nemendur fiskeld-
isbrautar aðstoða á keppnisdag-
inn sjálfan við að bora vakir,
hjálpa fólki og veita fróðleik til
þeirra sem þess óska. Nánari
upplýsigar veita Guðrún Þóra
Gunnarsdóttir og Guðni Magn-
ús Eiríksson í síma 453 6300 og
í myndsíma 453 6301.